Fréttatíminn - 22.05.2015, Síða 39
Mest seldu ofnar
á Norðurlöndum
áreiðanlegur hitagjafi
10 ára ábyrgð
LÁGHITA
MIÐSTÖÐVAROFNAR
Gæði fara aldrei úr tísku
Vellíðan og
garðrækt
helst í hendur
Auður Ingibjörg Ottesen er búsett á Selfossi þar sem hún hefur
komið sér upp kjöraðstæðum fyrir garðrækt, sem er hennar
helsta ástríða. Hún er með stóran garð og gróðurhús, auk þess
sem hún sér um sérstakan grenndargarð þar sem bæjarbúar
rækta saman grænmeti. Auður segir að það sé lítið mál að
stunda garðrækt, allt sem til þarf er áhugi og vilji.
A uður er einn þriggja eig-enda tímaritsins Sumar-húsið og garðurinn sem
kemur út fimm sinnum á ári. Hún
hefur auk þess komið að útgáfu 12
bóka sem snúa að garðrækt á einn
eða annan hátt. Auður er ættuð úr
Hveragerði en hefur verið búsett
á Selfossi síðastliðin fjögur ár. Þar
hefur hún komið sér upp stórum
og fallegum garði auk gróðurhúss.
„Ég býð upp á eins konar sýni-
kennslu á námskeiðunum mínum,“
segir Auður, sem býður meðal
annars upp á námskeið í matjurta-
ræktun. Hún byggir garðinn sinn
því upp sem sýningar- og kennslu-
garð. „Í gróðurhúsinu rækta ég
meðal annars kúrbít, tómata og
villimaís, en það er einkar hentugt
að rækta þessar tegundir saman,
eins og indíánarnir komust að á
sínum tíma.“ Í bílskúrnum hefur
hún svo komið sér upp aðstöðu þar
sem verkleg kennsla fer fram.
Þekkt sem „gulrótarkonan“
Auður sér einnig um svokallaða
grenndargarða á Selfossi. „Þar
koma bæjarbúar saman og rækta
sitt eigið grænmeti. Grenndar-
garðar voru settir af stað við Ell-
iðavatn stuttu eftir hrun, að frum-
kvæði Garðyrkjufélags Íslands.
Þá var 60 reitum úthlutað til um
100 ræktenda. Ég var meðal
þeirra og ræktaði grænmeti sem
dugði fjölskyldunni næstum því
allt árið,“ segir Auður. Hún vildi
því innleiða þessa hugmynd á
Selfossi. „Það hefur tekist í sam-
vinnu við bæjaryfirvöld og nú
erum við að fara á fullt með rækt-
unina og að henni koma margar
hendur, stórar og smáar.“
Auður hefur kynnst aragrúa
fólks í tengslum við störf sín í
garðræktinni. Þeirra á meðal er
sex ára nágranni hennar sem
hefur sýnt garðræktinni áhuga
frá þriggja ára aldri, en þá flutti
Auður í hverfið. „Hann kallar
mig alltaf gulrótarkonuna og ég
kalla hann því gulrótardreng-
inn minn. Í sumar ætlum við að
halda ræktuninni áfram ásamt
ömmustelpunni minni.“
Allir geta stundað garðrækt
Auður segir að allir geti stundað
garðrækt. „Þetta snýst bara um
að prófa sig áfram. Í sumar ætla
ég til dæmis að prófa að rækta
melónur, okra og fjölda baunateg-
unda.“ Fyrir þá sem eru að stíga
sín fyrstu skref í garðrækt ráð-
leggur Auður að kaupa forræktað-
ar plöntur. „Það er einnig gott að
byrja með fáar tegundir og prófa
sig svo áfram. Það er tilvalið að
byrja að sá fyrir salati og spínati.“
Auður segir að jarðvegurinn
skipti höfuðmáli. „Frjósamur
og góður jarðvegur er nauðsyn-
legur. Það er því sniðugt að
verða sér úti um hrossa- eða
hænsnaskít til að blanda saman
við jarðveginn því lífræn mold
heldur betur hita og raka. Einnig
er gott að breiða káldúk yfir mat-
jurtareitinn.“
Þeir sem ekki hafa aðgang að
garði geta notast við potta við
ræktunina. „20 lítra pottar henta
vel til ræktunar, en þá skiptir
vökvunin höfuðmáli.“ Þeir sem
eru að koma sér upp gróðurhúsi
þurfa að fylgjast með skordýrum
að sögn Auðar. „Ég mæli með
því að nota eingöngu lífrænar
varnir, það er til dæmis hægt að fá
skordýr til að losna við lúsina. Svo
þarf að muna eftir að lofta vel út á
sólríkum degi.“
Garðræktin stuðlar að
vellíðan
„Það er eitthvað svo töfrandi við
að skapa sér svona undraheim,“
segir Auður og á þá við gróður-
húsið. Hún hefur blendnar til-
finningar gagnvart komandi
sumri en segir gott að geta alltaf
leitað í gróðurhúsið. „Vorið hefur
verið óvenju kalt sem er þó að
vissu leyti gott því gróðurinn hef-
ur ekki þjófstartað. Við verðum
svo bara að bíða og sjá hvað
verður. En sama hvernig veðrið
er, þá er alltaf mikil vellíðunartil-
finning sem fylgir garðræktinni.“
Áhugasamir geta fylgst með
Auði og garðræktinni á Facebook
síðunum „Sumarhúsið og garður-
inn“ og „Grenndargarðar.“
Erla María Markúsdóttir
erlamaria@frettatiminn.is
Auður hefur komið sér upp glæsilegum skrúðgarði á Selfossi. Ljósmyndir/Páll Jökull Pétursson
Auður I. Ottesen lýsir sér sem súper garðyrkjukonu. Hér er hún fyrir utan fræðasetr-
ið Fjölheima á Selfossi þar sem hún hélt garðyrkjuuppistand á dögunum.
Í sumar ætlar Auður að halda áfram að
rækta það helsta, gúrku og tómata, en
mun einnig prófa sig áfram með alls
kyns baunategundir, villimaís og kúrbít,
svo dæmi séu nefnd.
Helgin 22.-24. maí 2015 viðhald húsa 39