Fréttatíminn - 22.05.2015, Side 40
Hreinsun
Það er ágætis regla að þrífa pallinn á
vorin, en við þá iðju má einfaldlega nota
þvottakúst og milda sápu. Pallar sem
þarfnast ekki yfirborðsmeðhöndlunar,
líkt og harðviðarpallar og pallar unnir úr
blöndu af við og plastefnum er gott að
þrífa reglulega.
Viðarvörn
Það er mikil vinna að halda pallinum fal-
legum og ef vel á að vera þarf að bera á
pallinn viðarvörn annaðhvert ár. Ef það
á að viðarverja pallinn þarf að byrja á
að athuga rakastigið í viðnum. Æskilegt
er að rakastigið sé ekki hærra en 18%
þegar borið er á hann. Ef pallurinn hefur
verið viðarvarinn áður og er farinn að
láta á sjá þarf að skafa allan skít og lausa
viðarvörn af. Þessi undirvinna, ásamt
rakastiginu í viðnum, skiptir miklu máli
hvað varðar endinguna á viðarvörninni
sem sett er á pallinn og þar af leiðandi
timbrinu sjálfu.
Efnisval
Mín reynsla sýnir að betra er að nota
hálfþekjandi efni en þekjandi efni á lóð-
rétta fleti utandyra og pallaolíu á lárétta
fleti. Hálþekjandi efni gengur lengra inn
í viðinn en þekjandi efni og flagnar því
síður af. Við val á viðarvörn er æskilegt
að gera það í samráði við framleiðendur
efnanna.
Pallaefni
Náttúrulegt pallaefni, líkt og furan,
gránar og fúnar hraðar ef ekki er borið
á hana viðarvörn. Ef halda á pallinum
fallegum þarf helst að bera viðarvörn á
pallinn annað hvert ár. Pallaefni líkt og
Húsið og Pallurinn bjóða upp á, sem er
samsett úr plastefnum og viðarflögum,
þarfnast ekki yfirborðsmeðhöndlunar
líkt og furan og dugar því einfaldlega að
þrífa pallinn með þvottakústi og mildri
sápu. Til eru náttúruleg pallaefni sem
ekki þarf að viðarverja, líkt og ýmis
harðviður, en harðviðurinn á það til
að hreyfast mikið og svigna. Saman-
borið við harðviðinn er lítil hreyfing í
pallaefnum líkt og því sem við erum að
bjóða upp á.
Kostnaður
Kostnaðurinn við pallinn er líklegast
veigamesti þátturinn hjá flestum. Fyrir
þá sem hafa ánægju af því að snudda í
pallinum, bera á og dytta að honum er
furan líklega ódýrasti kosturinn. Fyrir
þá sem hafa litla ánægju af því að hugsa
um pallinn ætti fólk að velta öllum
kostum fyrir sér. Pallaefni unnið úr
plastefnum og viðarflögum og harðviður
er sannarlega dýrari kostur í grunninn,
en þegar viðhaldskostnaður fram-
tíðarinnar er tekinn með í reikninginn
eru þetta ekki síðri kostir.
Hugsaðu vel
um pallinn
í sumar
Feðgarnir og húsasmíðameistararnir Rúnar Guðnason og Guðni
Guðjónsson eru margfróðir um húsbyggingar og viðhald húsa.
Saman reka þeir fyrirtæki sem býður upp á efni til nýbygginga
og viðhalds og taka þeir auk þess að sér alls kyns smíðaverkefni,
þar á meðal pallasmíði. Fréttatíminn fékk Rúnar til að veita
lesendum nokkur góð ráð sem snúa að viðhaldi á pallinum.
É g og faðir minn erum báðir húsasmíðameistarar og höf-um eytt lunganum úr starfs-
ævinni við húsbyggingar og viðhald
húsa. Síðasta vor létum við verða af
því að fara til útlanda og kynna okk-
ur það nýjasta í byggingarefnum og
verkfærum. Í framhaldinu ákváð-
um við að flytja inn pallaefni sem er
unnið úr endurunnum viðarflögum
og plastefnum og er því 100% endur-
nýtanlegt efni,“ segir Rúnar. Í kjöl-
farið stofnuðu þeir, ásamt bróður
Rúnars, fyrirtækið Húsið og Pall-
urinn ehf. Ýmislegt þarf að hafa í
huga þegar kemur að pallafram-
kvæmdum og viðhaldi á pallinum.
Rúnar deilir hér nokkrum ráðum
með lesendum sem eru í pallahug-
leiðingum.
Feðgarnir Rúnar og Guðni segja að þegar kemur að viðhaldi palla sé mikilvægt að hreinsa hann vel áður en hafist er handa við
að bera á hann. Ekki þurfa þó allir pallar á yfirborðsmeðhöndlun að halda, það fer algjörlega eftir pallaefninu. Ljósmynd/Hari.
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
plankaparket
Verðdæmi:
190 mm Eik Rustik burstuð
mattlökkuð 6.990.- m2
40 viðhald húsa Helgin 22.-24. maí 2015