Fréttatíminn - 22.05.2015, Side 43
Tilboð
45.880
Upphengt
salerni með
innbyggðum
kassa
DrainLine niðurfallsrennur
Idex ehf. á sér yfir 30 ára sögu á Íslandi og er þekkt fyrir þá
gæðavöru sem fyrirtækið hefur að bjóða íslenskum bygg-
ingamarkaði.
M arkmið Idex ehf. er að þjónusta byggingariðn-aðinn með gæðavöru á
hagkvæmu verði. Starfsmenn Idex
leggja allan sinn metnað í að þjón-
usta og leita lausna fyrir viðskipta-
vini sína. Hjá Idex er að finna gæða-
vörur sem þarf fyrir endurnýjun og
viðhald húsa innan- og utanhúss.
Gæðavara í 30 ár
Idex hefur boðið upp á glugga og
hurðir fyrir íslenskan markað í
hartnær 30 ár. „Við bjóðum upp á
vandaða timburglugga, álklædda
tréglugga og hurðir frá danska
framleiðandanum Rationel,“ seg-
ir Ástvaldur Eydal Guðbergsson,
sölufulltrúi hjá Idex. Rationel hefur
hannað og framleitt timburglugga
í yfir hálfa öld. „Á þeim tíma hafa
þeir hannað mikinn fjölda glugga
bæði í timbri og síðan ál og timbri.
Þeir bjóða upp á mikla möguleika
í opnanlegum fögum og hurðum,
margar tegundir glers, til dæmis
háeinangrandi gler, sólvarnargler
og öryggisgler. Auk þess bjóða þeir
upp á mikið úrval af öryggisvörum
fyrir glugga og hurðir,“ segir Ást-
valdur. Helstu kostir glugganna frá
Rationel er hátt einangrunargildi,
Gluggar
fyrir allar
gerðir húsa
Idex býður upp á vandaða timburglugga og álklædda tréglugga frá Danmörku, auk
álglugga sem eru framleiddir á Íslandi. Rík áhersla er lögð á að gluggarnir henti
gömlum jafnt sem nýjum húsum. Mynd/Hari.
Ástvaldur Eydal Guðbergsson, sölu-
fulltrúi hjá Idex. Mynd/Hari.
margir litamöguleikar, sérvalin
fura auk fimm ára ábyrgð á fram-
leiðslu. „Hvort sem það er nýbygg-
ing, endurbætur, einbýlishús eða
fjölbýlishús þá finnur þú lausnina
hjá okkur. Við leggjum auk þess
áherslu á að gluggarnir henti bæði
fyrir gömul og ný hús. Markmið
okkar er að nýir gluggar samsami
sig vel með gömlum húsum,“ segir
Ástvaldur.
Íslensk framleiðsla
Idex framleiðir og selur einnig ál-
glugga og hurðir undir merkjum Idex
álgluggar og hófst sú framleiðsla
árið 2008 og er verksmiðja fyrir-
tækisins staðsett í Reykjanesbæ en
söluskrifstofa er hjá Idex í Kópavog-
inum. „Gluggarnir eru framleiddir
úr álprófílum frá þýska fyrirtækinu
Schüco sem er leiðandi fyrirtæki í
framleiðslu á álprófílum til glugga- og
hurðaframleiðslu,“ segir Ástvaldur.
Þar sem gluggarnir eru framleiddir
á Íslandi er um skjótan afgreiðslu-
tíma að ræða í flestum tilvikum. „Við
bjóðum upp á að skoða aðstæður og
komum með hugmyndir ásamt því
að gefa verðtilboð,“ segir Ástvaldur.
Idex er staðsett á Smiðjuvegi 3, í
hjarta atvinnustarfsemi í Kópavogi.
Nánari upplýsingar má nálgast hjá
söluráðgjöfum Idex og á www.idex.is.
Unnið í samstarfi við
Idex ehf.
viðhald húsa 43 Helgin 22.-24. maí 2015