Fréttatíminn - 22.05.2015, Page 66
Í The Entire Population of Iceland eru margir skemmtilegir leikarar af yngri kyn-
slóðinni, til að mynda Dóra Jóhannsdóttir, Bjarni Snæbjörnsson, Salóme R. Gunn-
arsdóttir og Steiney Skúladóttir.
LeikList Dóra JóhannsDóttir stýrir spunaLeikhóp
Spunahópur til New
York með íslenskt grín
The Entire Population of
Iceland er spunaleikhópur
innan leikfélagsins Improv Ís-
land. Hópurinn samanstendur
af fólki úr öllum áttum sem
hefur æft „long-form improv“
(langspuna) undir stjórn
Dóru Jóhannsdóttur leikkonu
síðustu misseri. Dóra hefur
verið að læra aðferðina hjá
hinu fræga Upright Citizeń s
Brigade (UCB) leikhúsi í New
York síðastliðin 2 ár. Hópurinn
mun fara til New York í júní og
taka þátt í stórri spunhátíð og
segir Dóra að það sé partur af
því að læra meira um hvernig
eigi að standa að slíkum
sýningum á Íslandi.
Í spunaleikhópnum The Entire
Population of Iceland sem fer til
New York í næsta mánuði eru
m.a leikarar, leikstjórar, tónlistar-
menn, verkfræðingur, sundlaugar-
vörður og frístundakennari. Þetta
eru samtals 18 manns sem munu
sýna á Del Close spunahátíðinni
hjá UCB leikhúsinu í New York.
„Ég hef verið að stunda þetta í
rúm tvö ár og þetta er í rauninni
fyrir alla sem hafa áhuga á gríni
almennt,“ segir Dóra Jóhanns-
dóttir leikkona. „Þetta er eitthvað
sem margir af þekktustu gaman-
leikarar Bandaríkjanna hafa farið í
gegnum og valið í stað hefðbundna
leikaranámsins,“ segir hún. Del-
Close hátíðin er haldið til heiðurs
Del Close heitnum sem var einn
helsti frumkvöðull „improv“ í
Bandaríkjunum en hann kenndi
m.a Tinu Fey, John Candy, Bob
Odenkirk, Mike Myers og Bill
Murray.
Á hátíðinni eru spunasýningar
sýndar í 7 leikhúsum út um alla
Manhattan, allan sólarhringinn í
72 klukkutíma. Þetta er í 17. sinn
sem hún er haldin og í ár kemur
íslenskur leikhópur þar fram í
fyrsta skipti. „Hópurinn okkar
er mjög blandaður og þarna eru
bæði leikarar og fólk sem aldrei
hefur lært leiklist, en hefur gaman
af gríni,“ segir Dóra. „Fólk þarf
ekkert að hafa lært leiklist til þess
að vera með í þessu,“ segir hún. Í
„long-form improv“ er gamanleik-
rit spunnið á staðnum út frá einu
orði frá áhorfanda. Ýmis form og
aðferðir eru til innan „long-form“
og mun íslenski hópurinn sýna
spunasýningu innan forms sem
það setur saman sérstaklega fyrir
hátíðina, sem kallast: „The Imp-
rovised Saga“, eða: „Uppspunnin
Íslendingasaga“.
Hópurinn verður með fjár-
öflunarsýningar í Þjóðleikhús-
kjallaranum föstudaginn 22. maí
og miðvikudaginn 27. maí. „Við
gerum þær sýningar þannig að
við fáum eitt orð úr sal, og gerum
30 mínútna leikrit úr frá því á
staðnum,“ segir Dóra. „Við setjum
okkur í spor höfunda, dramtúrga,
leikstjóra og leikara allt í senn.
Eftir hlé ætlum við svo að setja upp
spunasöngleik sem er gríðarlega
spennandi en um leið mjög kvíð-
vænlegt,“ segir hún. „Við verðum
með Karl Olgeirsson píanóleikara
með okkur sem hjálpar okkur í
gegnum þetta,“ segir Dóra. „Eftir
næstu áramót er svo planið að
vera með vikulegar sýningar og er
þátttaka okkar á hátíðinni um leið
lærdómsferð þar sem við sjáum
og lærum hvernig þetta er gert
hjá fleirum en okkur,“ segir Dóra
Jóhannsdóttir leikkona.
Fjáröflunarsýningarnar verða
í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld,
föstudaginn 22. maí og miðviku-
daginn 27. maí, klukkan 19 og 21.
Miðasala er við innganginn.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík
sími: 557 9510 - www.patti.is
Opið virka daga kl. 10-18
laugard. 11-16
ÍSLENSKIR SÓFAR SNIÐNIR AÐ ÞÍNUM ÞÖRFUM
MÁL OG ÁKLÆÐI AÐ EIGIN VALI
Mósel Basel NevadaRoma
Torino
Með nýrri AquaClean tækni
er nú hægt að hreinsa nánast
alla bletti aðeins með vatni!
Erfiðir blettir eins og eftir tómatsósu, léttvín, kaffi, te, meira að
segja kúlupenna, nást á auðveldan hátt úr áklæðinu.
Áklæði
w w w.forlagid. i s | Bókabúð Forlags in s | F i sk i s lóð 39
SKUTLURNAR
HANS VILLA!
SIK
KSA
KKA
RIN
N
FRÁBÆR SAMVERUBÓK FYRIR
ALLA FJÖLSKYLDUNA!
Metsölulisti
Eymundsson
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
66 menning Helgin 22.-24. maí 2015