Fréttatíminn - 22.05.2015, Blaðsíða 68
www.odalsostar.is
TINDUR
OSTUR ÚR SKAGAFIRÐINUM
Þessi bragðmikli meðlimur Óðalsfjölskyldunnar
er framleiddur í Skagafirði og nefndur eftir
fjallinu Tindastól. Tindur er einstakur ostur sem
fengið hefur drjúgan þroskunartíma þar til hinu
einkennandi þétta bragði hefur verið náð.
Óðals Tindur er sérstaklega bragðmikill, hæfir
við ýmis tækifæri og er dásamlegur einn og sér.
Tindur parast vel með sterku bragði enda lætur
hann fátt yfirgnæfa sig.
14. maí - 20. júní / 14 May-20 June 2015
TVEIR HRAFNAR
listhús, Art Gallery
Baldursgata 12 101 Reykjavík
+354 552 8822 +354 863 6860 +354 863 6885
art@tveirhrafnar.is www.tveirhrafnar.is
Opið/Open
Fim-fös;12-17/Thu-Fri; 12pm-5pm
Lau;13-16/Sat; 1pm-4pm
og eftir samkomulagi/and by appointment
Hulda Hákon
„björg, sólskin, hetjur, himinn, haf og fuglar”
“cliffs, sunshine, heroes, sky, sea and birds”
Sýningin er hluti af dagskrá 29. Listahátíðar í Reykjavík 2015.
Þ etta byrjaði hægt og rólega á mánudaginn þar sem við vorum með raflistanám-
skeið í samstarfi við Listaháskól-
ann,“ segir Áki Ásgeirsson, einn
skipuleggjanda Raflosts. „Á mið-
vikudagskvöldið vorum við svo með
allsherjar YouTube partí þar sem
öllum gestum, listamönnum og þátt-
takendum var frjálst að koma með
og sýna tengla á áhugaverðar slóðir
internetsins sem snúa að nýsköpun í
listum, sem var gríðarlega skemmti-
legt. Á fimmtudagskvöldið var
svo sýning í samstarfi við Listahá-
skólann þar sem nemendur sýndu
rafræna og gagnvirka gjörninga og
innsetninga, sem þau unnu á nám-
skeiðunum á mánudag og þriðjudag.
Í dag, föstudag er opnun sýn-
ingar pixlaverks í Kling & Bang.
Þar er umfjöllunarefnið samspil
listar og loftslagsbreytinga. Í kvöld
er lokakvöld hátíðarinnar þar sem
fram koma íslenskir raflistamenn
úr ýmsum áttum á Reykjavik Yacht
Club,“ segir Áki.
Raftónlist spilar stóran þátt í dag-
skránni og m.a. koma fram þeir
Tómas Manoury og Kippi Kanínus
sem skipa hljómsveitina MANKAN.
Einnig koma fram raftónlistar-
mennirnir Steindór Kristinsson
og Hlöðver Sigurðsson sem eiga
það sameiginlegt að nota gjarnan
skyndikóðun (live-coding) til fram-
köllunar á tónlist sinni. Leikið verð-
ur á Theremin, gjörningar fluttir og
rafdúettinn Raf & Stuð mun gera til-
raun í vöðvastjórnun með rafmagni.
Áki segir þróunina í raflist vera
mjög öra í ljósi þess að tækniþróun
sé mög ör. „Mesta breytingin hjá
okkur í þessum raflistaheimi er
hvað tæknin er orðin almenn,“ segir
hann. „Í byrjun var meira vesen að
redda réttu tækjunum og slíkt, en
í dag eru mjög þróuð tæki í hönd-
unum á okkur daglega, eins og í
nútíma snjallsímum. Hvernig fólk
er svo að nota þessi tæki er svo mis-
jafnt,“ segir Áki. „Fólk þekkir ekki
allt sem er í boði og eitt af því sem
við gerum er að beina fólki á þær
brautir hvar úrvalið er sem mest,“
segir Áki Ásgeirsson, skipuleggj-
andi Raflosts.
Viðburðurinn í Kling & Bang
hefst í dag, föstudag, klukkan 17
og í kvöld á Reykjavik Yacht Club
klukkan 20. Aðgangur er ókeypis.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Raflistahátíð Mikil ÞRóun áR fRá áRi
Raflost í Reykjavík
Raflistahátíðin
Raflost fer fram
í níunda sinn í
þessari viku og nær
hámarki í kvöld,
föstudagskvöld,
í húsnæði Kling
& Bang, þar sem
fram koma íslenskir
raflistamenn úr
ýmsum áttum. Áki
Ásgeirsson, einn
skipuleggjanda
hátíðarinnar,
segir hátíðina í ár
hafa verið mjög
áhugaverða og segir
gaman að fylgjast
með hvernig þró-
unin í raflistaheim-
inum breytist frá ári
til árs.
Jesper Pedersen, Ríkharður H. Friðriksson og Áki Ásgeirsson skipuleggjendur hátíðarinnar Raflost.
Vikuna 22. til 29.
maí sýna útskriftar-
nemendur af sviðs-
höfundabraut sem
útskrifast með BA
gráðu frá sviðs-
listadeild Listahá-
skólans, lokaverk-
efni sín.
Útskriftarnem-
endurnir eru átta að
þessu sinni og end-
urspegla lokaverk-
efni þeirra áherslu
námsins á frum-
sköpun í sviðslistum.
Verkefnin eru því
mjög fjölbreytt, allt
frá sviðsetningu á
internetinu til leik-
stjórnarverkefna
og leiklesturs. Við
vinnu útskriftarverk-
efna er lögð áhersla
á að nemendur móti
sér einstaklings-
bundna sýn á form
sviðslistanna og stígi
fram sem sviðshöf-
undar.
Miðapantanir á
sýningar eru á midis-
vidslist@lhi.is og
allar upplýsingar um
sýningaríma er að
finna á www.lhi.is -hf
listaháskólinn ÚtskRiftaRvika
Listamenn
framtíðarinnar
... endur-
spegla
lokaverkefni
þeirra [út-
skriftarnem-
anna] áherslu
námsins á
frumsköpun í
sviðslistum.
68 menning Helgin 22.-24. maí 2015