Fréttatíminn - 22.05.2015, Blaðsíða 72
Í takt við tÍmann UnnUr Helgadóttir
Á hundrað pör af skóm
Unnur Helgadóttir er 27 ára og vinnur í Landsbankanum og The Body Shop. Hún hefur vakið athygli að undanförnu
fyrir meistararitgerð sína í mannauðsstjórnun. Í ritgerðinni fjallar Unnur um hugarfar atvinnumannsins í íþróttum
en hún tók viðtal við átta leikmenn í íslenska landsliðinu í knattspyrnu og annan þjálfarann. Unnur er nýkomin úr
siglingu í Karabíska hafinu og ætlar á Þjóðhátíð í Vestmanneyjum í sumar.
Staðalbúnaður
Ég er með frekar klassískan fatasmekk
en með skvísulegu ívafi. Ég fer ekki út
úr húsi án þess að vera vel skóuð enda á
ég tæplega hundrað pör af skóm. Ég veit
ekki af hverju, ég er bara með einhverja
áráttu fyrir skóm. Ef það losnar gólfpláss
heima þá líður ekki á löngu áður en ég
fylli það með skópari.
Hugbúnaður
Ég bý ein í miðbænum og neyðist því
svolítið oft til að kíkja á djammið, það
er bara partur af þessu öllu saman. Mér
finnst voðalega gaman að fara á b5 en fer
líka á Íslenska barinn og Dönsku krána.
Á barnum panta ég yfirleitt bjór. Ég er
fáránlega mikið afmælisbarn og vil helst
að það taki sér allir frí í vinnunni þegar
ég á afmæli. Mínir nánustu vita að það er
ekki í boði að geyma það frameftir degi
að hringja og óska mér til hamingju með
daginn, það á helst að
gerast rétt eftir tólf á miðnætti. Og ef ég
fengi einhverju ráðið væri skrúðganga,
trúðasjóv og flugeldasýning. Ég er forfall-
inn Helga Björns-aðdáandi og tjúna ræki-
lega upp í útvarpinu þegar það kemur
lag með honum. Núna er uppáhalds lagið
mitt nýja lagið, Land Rover-lagið. Þú trúir
ekki hvað ég er spennt yfir því að hann sé
að fara að gefa út nýja plötu í haust.
Vélbúnaður
Ég er dyggur stuðningsmaður Apple, það
verður bara að viðurkennast. Ég er með
iPhone 6, sem ég er ansi ánægð með,
Macbook Air og iPod. Pinterest-appið er
mjög skemmtilegt og ég fylgist vel með
því en annars er ég bara á þessum hefð-
bundnu samfélagsmiðlum, er temmilega
virk á Facebook og Instagram og svona.
Maður verður að sýna sig og sjá aðra.
Aukabúnaður
Ég er ekki dugleg að elda en okkur
ömmu finnst voða gott að fá okkur salat
á Local, til að halda
okkur í góðu formi. Ég er líka hræðilegur
bakari og veit fyrir víst að fjölskyldan
mín þakkar fyrir það á hverjum degi að
ég vinn ekki í þeim bransa. Mér finnst
rosa gott að fara út að hlaupa og þá er ég
mikið að vinna með Kanye West og Justin
Timberlake. Ég á Toyota Yaris sem heitir
Barbara og við erum góðar vinkonur. Ég
er svolítill safnari; auk skósafnsins á ég
mikið af úrum og jökkum og auðvitað
snyrtivörum. Ég er búin að vinna í Body
Shop í tíu ár og elska þetta fyrirtæki og
vörurnar. Um daginn, þegar ég taldi, átti
ég 16 dósir af Body Butter, ég gæti senni-
lega stofnað Body Shop búð heima hjá
mér. Í sumar ætla ég að fara á Þjóðhátíð
í Vestmannaeyjum. Þetta verður sjöunda
skiptið mitt og þetta er alltaf hrikalega
skemmtilegt. Annars er ég nýkomin úr
siglingu um Karabíska hafið og frá Flór-
ída. Það var ansi gott að liggja í 30 stiga
hita úti á hafi, drekka Mojito í morgun-
mat og hlusta á Helga Björns. Ég get ekki
neitað því.
Ljósm
ynd/H
ari
Hljómsveitin Pink
Street Boys heldur út-
gáfutónleika á Kaffi-
stofunni, Hverfisgötu
í kvöld, föstudags-
kvöld. Hún var stofnuð
snemma árið 2013
og spiluðu meðlimir
sveitarinnar sína fyrstu
tónleika í maí sama ár á
skemmtistaðnum Dillon
og hafa verið mjög
virkir síðan.
Tónlist Pink Street
Boys mætti lýsa sem
háværu gítarrokki með
taktföstum trommum
og rifnum söng, en þeir
sækja innblástur sinn
frá rokktónlist sjöunda
og áttunda áratug
síðustu aldar, þó með
nýmóðins yfirbragði.
Sveitin kom óvænt
fram á sjónarsviðið á
síðasta ári þegar hún
gaf út sína fyrstu kass-
ettu og jafnframt fyrstu
útgáfu „Trash From The
Boys“ á vegum La-
dyboy Records. Platan
sló rækilega í gegn en
hún er samansafn af
demóum sem áttu aldrei
að koma út. Trash from
The Boys fékk kraums-
verðlaun árið 2014 og
var tilnefnd til Nordic
Price verðlaunanna
2015. Í desember síðast-
liðnum kom svo út
fyrsta breiðskífan sem
nefnist Hits #1 og hefur
hún fengið prýðilegar
viðtökur.
Á tónleikum sveitar-
innar á Kaffistofunni
koma einnig fram sveit-
irnar Singapore Sling,
Russian girls, Godchilla
og Seint. Tónleikarnir
hefjast klukkan 21. -hf
tónlist ÚtgáfUtónleikar Pink street Boys
Hrár hávaði
Á tónleikum
sveitarinnar
á Kaffistof-
unni koma
einnig fram
sveitirnar
Singapore
Sling, Russi-
an girls,
Godchilla
og Seint.
72 dægurmál Helgin 22.-24. maí 2015
MEXICO,
GUATEMALA &
BELIZE
Á SLÓÐIR MAYA INDÍÁNA
4. - 19. OKTÓBER
Verð kr. 568.320.-
Innifalið í verði: Flug, hótel, allar ferðir, skattar og íslenskur fararstjóri
Við kynnumst stórkostlegri náttúru, dýralífi og hinum forna
menningarheimi Maya indíána. Skoðum m.a. píramída, gamlar
menningaborgir, syndum í sjónum við næst stærsta kóralrif heims
og upplifum regnskóginn. Endum svo álúxus hóteli við Karabíska,
þar sem allt er innifalið.