Fréttatíminn


Fréttatíminn - 22.05.2015, Page 76

Fréttatíminn - 22.05.2015, Page 76
HELGARBLAÐ Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300 ritstjorn@frettatiminn.is www.frettatiminn.is Eyrún Elly Valsdóttir  Bakhliðin Orðheppin fyrirmynd Nafn: Eyrún Elly Valsdóttir Aldur: Jafngömul Helenu Paparizou. Maki: Ásgeir Pétur Bjarnason. Börn: Tvö. Menntun: Íslenskufræðingur með M.A. í blaða- og fréttamennsku. Starf: Sérfræðingur á skrifstofu vel- ferðarsviðs Reykjavíkurborgar. Fyrri störf: Hjá Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar og Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Áhugamál: Aðallega Júróvisjón og FÁSES á þessum tíma árs. En einnig útivist, lestur góðra bóka og verkferlagerð. Stjörnumerki: Vatnsberi. Stjörnuspá: Ýmsar nýjungar eru á döfinni hjá þér og þú ert ágætlega í stakk búinn til að fást við þær. Haltu henni fyrir þig eða milli þín og náins vinar. Eyrún systir er mikil fyrir-mynd, eldklár, orðheppin, sniðug og með stórundar- leg áhugamál, Júróvisjón þar á meðal,“ segir Diljá Valsdóttir, systir Eyrúnar. „Það er líka henni að þakka að ég var ekki alveg á pari við jafnaldra mína þegar kom að tónlist og tísku á unglingsár- unum. Hún getur sagt þér af hverju orðið „dýrindi“ er með ein- földu þegar „yndi“ tekur ypsílon, nýjustu samþykktu mannanöfnin og síðast en ekki síst hver keppti fyrir hönd Noregs í Eurovision árið 1993,“ segir Diljá. Eyrún Elly stofnaði FÁSES (Félag áhuga- fólks um söngvakeppni evrópskra sjón- varpsstöðva) ásamt fimm öðrum áhuga- mönnum árið 2011, og hefur hún verið formaður frá stofnun. Á þeim tíma hefur fjölgað í félagsskapnum úr 6 manns í ríflega 400 skráða félaga. Langflestir eru Íslendingar en alls eru félagar frá um 11 löndum. Hennar uppáhaldslag í ár er framlag Belgíu, en um leið er hún smá hrifin af Noregi og Ástralíu. Hvað varðar uppáhaldslag allra tíma getur hún ekki gert upp á milli Satellite með Lenu 2010 ásamt Nostalgiju með Magazin & Lidiju 1995. Hrósið... ... fær Sigmar Guðmundsson, ritstjóri Kast- ljóssins, sem tekst nú á við áfengissýki sína af fullum krafti og skrifar opinberlega um þá baráttu á Facebook-síðu sinni. Rains regnfatnaður Laugavegur 45 Sími: 519 66 99 Vefverslun: www.myconceptstore.is

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.