Fréttatíminn - 22.05.2015, Blaðsíða 76
HELGARBLAÐ
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300 ritstjorn@frettatiminn.is www.frettatiminn.is
Eyrún Elly Valsdóttir
Bakhliðin
Orðheppin
fyrirmynd
Nafn: Eyrún Elly Valsdóttir
Aldur: Jafngömul Helenu Paparizou.
Maki: Ásgeir Pétur Bjarnason.
Börn: Tvö.
Menntun: Íslenskufræðingur með M.A.
í blaða- og fréttamennsku.
Starf: Sérfræðingur á skrifstofu vel-
ferðarsviðs Reykjavíkurborgar.
Fyrri störf: Hjá Innri endurskoðun
Reykjavíkurborgar og Stofnun Árna
Magnússonar í íslenskum fræðum.
Áhugamál: Aðallega Júróvisjón
og FÁSES á þessum tíma árs. En
einnig útivist, lestur góðra bóka og
verkferlagerð.
Stjörnumerki: Vatnsberi.
Stjörnuspá: Ýmsar nýjungar eru á
döfinni hjá þér og þú ert ágætlega í
stakk búinn til að fást við þær. Haltu
henni fyrir þig eða milli þín og náins
vinar.
Eyrún systir er mikil fyrir-mynd, eldklár, orðheppin, sniðug og með stórundar-
leg áhugamál, Júróvisjón þar á
meðal,“ segir Diljá Valsdóttir,
systir Eyrúnar. „Það er líka henni
að þakka að ég var ekki alveg á
pari við jafnaldra mína þegar kom
að tónlist og tísku á unglingsár-
unum. Hún getur sagt þér af
hverju orðið „dýrindi“ er með ein-
földu þegar „yndi“ tekur ypsílon,
nýjustu samþykktu mannanöfnin
og síðast en ekki síst hver keppti
fyrir hönd Noregs í Eurovision
árið 1993,“ segir Diljá.
Eyrún Elly stofnaði FÁSES (Félag áhuga-
fólks um söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva) ásamt fimm öðrum áhuga-
mönnum árið 2011, og hefur hún verið
formaður frá stofnun. Á þeim tíma hefur
fjölgað í félagsskapnum úr 6 manns í
ríflega 400 skráða félaga. Langflestir
eru Íslendingar en alls eru félagar frá um
11 löndum. Hennar uppáhaldslag í ár er
framlag Belgíu, en um leið er hún smá
hrifin af Noregi og Ástralíu. Hvað varðar
uppáhaldslag allra tíma getur hún ekki
gert upp á milli Satellite með Lenu 2010
ásamt Nostalgiju með Magazin & Lidiju
1995.
Hrósið...
... fær Sigmar Guðmundsson, ritstjóri Kast-
ljóssins, sem tekst nú á við áfengissýki sína
af fullum krafti og skrifar opinberlega um þá
baráttu á Facebook-síðu sinni.
Rains
regnfatnaður
Laugavegur 45
Sími: 519 66 99
Vefverslun: www.myconceptstore.is