Fréttatíminn - 22.05.2015, Qupperneq 80
útivist & hlaup Helgin 22.-24. maí 20154
Hjólum í vinnuna
-og heim aftur :-)
Focus Planet 1.0
Verð 256.000 - TILBOÐ 199.000
Dalshrauni 13 - Hafnarfirði
Sími 565 2292 - www.hjolasprettur.is
Focus Planet 1.0 hjólin eru sérstaklega viðhaldsfrí, töff, þægileg, hraðskreið og skemmtileg bæjarhjól.
Það hægt er að setja á þau bretti, standara, bögglabera og nagladekk. Það er búið glussa diskabremsum,
innbyggðum 8 gíra Shimano gírbúnaði og endingargóðri carbon reim sem endist tífalt lengur en
hefðbundin keðja. Þannig losnar maður við að þurfa að smyrja skítuga ryðgaða keðju á samgönguhjólinu
sem er í stöðugri notkun. Vönduð Þýsk hönnun og verkvit færir manni úrvals hjól á góðu verði.
www.birkiaska.is
Bodyflex Strong vinnur gegn stirðleika
og verkjum í liðamótum og styrkir
heilbrigði burðarvefja líkamans.
2 hylki tvisvar á dag í tíu daga. Síðan er hægt
að minnka skammt í 2 hylki á dag. Inniheldur
hvorki laktósa, ger, glúten né sætuefni.
Bodyflex
Strong
F jallvegir hafa mýkra undir-lag en malbikið og fer oft bet-ur með skrokkinn. Sumum
finnst betra að stunda fjallahlaup
þar sem þú ert í raun ekki alltaf á
sama hraða og á götunni, því þú
ferð óneitanlega hægar yfir. Þá er
bæði hægt að skokka eða ganga upp
bröttustu brekkurnar, sem kallar á
maður stoppi oft,“ segir Sigrún. Þar
að auki telur hún fjallahlaup vera
mun fjölbreyttara en götuhlaup og
sé tilvalið að stunda á sumrin, enda
séu ekki alltaf aðstæður til þess á
veturna. „Maður fyllist mikilli gleði
á sumrin við að stunda fjallahlaup.
Bæði vegna ómældrar náttúrufeg-
urðar, svo ekki sé minnst á fjarlægð
frá allri bílaumferð. Fjölbreytileik-
inn er mikill og við eigum svo marg-
ar skemmtilegar leiðir sem hægt er
að fara, upp á, yfir og á milli fjalla.“
Á höfuðborgarsvæðinu eru Esjan
og Úlfarsfellið vinsælustu staðirnir
fyrir fjallahlaup, auk fjalla í Mos-
fellsdal. „Það er í raun hægt að finna
sér hvaða fjall sem er til að hlaupa
upp á og yfir,“ segir Sigrún og mæl-
ir meðal annars með hlaupaleiðinni
við Svínaskarð, þar sem farið er á
milli Móskarðshnjúka og Skála-
fells og komið niður við Esjumela í
Mosfellssveit. „Það er endalaust af
skemmtilegum leiðum.“
Fjallahlaup er ekki bara fyrir
lengra komna, ef svo má að orðið
komast, og hentar því byrjendum líka,
að mati Sigrúnar. „Í raun er það fyrir
alla þá sem vilja styrkja sig og auka
úthald og njóta náttúrunnar á sama
tíma, sem er það besta við fjallahlaup.
En það er mikilvægt að minna á að
vera vel búinn og í réttu skónum, og
þá er maður fær í flestan sjó.“
Þó ekki hafi verið stofnaður fé-
lagsskapur sérstaklega fyrir fjalla-
hlaup fara margir hlaupahópar
Af malbikinu
í mosann
Fjallahlaup sameina sívaxandi áhuga landsmanna á hlaupi og útivist,
og fjölmörg eru skipulögð yfir sumartímann hérlendis. Við spjöll-
uðum við Sigrúnu Erlendsdóttur sem hefur stundað hlaup í mörg
ár, bæði götuhlaup og fjallahlaup. Auk þess hefur hún tekið þátt í
mörgum fjallahlaupum og þar á meðal hlaupið Laugaveginn þrisvar
sinnum. Aðspurð segir hún skilgreininguna á fjallahlaupi vera hlaup
þar sem hlaupið er upp á fjöll og farið utan vega og af götunni.
Sigrún Erlendsdóttir hefur hlaupið Laugaveginn þrisvar sinnum. Ljósmynd/Geir Harðarson
H vort sem verið er að tala um stuttar eða langar göngu-ferðir eða stærri leiðangra
þá er Fjallakofinn staðurinn til að
byrja á. Við eigum, eða útvegum,
nánast allt sem þarf af útbúnaði til
góðrar útivistar frá mörgum þekkt-
um og virtum framleiðendum,“ seg-
ir Halldór Hreinsson, eigandi Fjalla-
kofans.
Skódeildin stækkar
Fjallakofinn opnar nýja og þrefalt
stærri skódeild í verslun sinni í
Kringlunni 7 sem er bein afleiðing
af því að skómerkið Scarpa hefur
notið mikilla vinsælda meðal úti-
vistarfólks hér á landi. „Við fyllumst
gleði við að selja Scarpa og fögnum
vinsældum merkisins enda einn af
virtari skóframleiðendum heims, en
við erum að selja yfir 10.000 skópör
á ári. Scarpa er fjölskyldurekið fyr-
irtæki og hefur verið rekið sem slíkt
í 80 ár. Ég hef átt viðskipti og sam-
skipti við þau í 30 ár og líður eins
og ég sé hálfpartinn hluti af þessari
fjölskyldu,“ segir Halldór. Scarpa
býður upp á gönguskó sem henta í
léttari og erfiðari göngur, auk þess
sem Mojito línan hefur notið mikilla
vinsælda. „Scarpa tekur þátt í lita-
gleðinni sem einkennir fjallabúnað
almennt í dag og setur skemmti-
legan blæ á fjallamennskuna í dag.
Útivistarfatnaður og -búnaður er
auk þess ákveðin fjárfesting og við
viljum gera okkar besta til að að-
stoða fólk við að vanda valið. Góð-
ur búnaður er grunnurinn að góðu
ferðalagi og við hjá Fjallakofanum
fylgjum þér alla leið,“ segir Halldór.
Rík þjónustulund og áhugi á
útivist
Starfsfólk Fjallakofans er þrau-
treynt á sviði útivistar og útiveru
og segir Halldór að það, ásamt sí-
vaxandi fjölda þeirra sem sækja í
fjallaferðir, og vinsældir SCARPA,
vera ástæðu þess að stækka þurfti
verslunina í Kringlunni og þá sér-
staklega skódeildina. „Starfsfólk
okkar hefur mikinn áhuga á hvers
konar fjallaferðum og hefur mikla
þekkingu á þeim búnaði sem er
nauðsynlegur í slíkar ferðir.“
Skemmtilegt sumar fram
undan
Fjallakofinn rekur þrjár verslan-
ir, á Reykjavíkurvegi 64 í Hafnar-
firði, Kringlunni 7 í Reykjavík og
á Laugavegi 11 Reykjavík, sem er
eitt elsta verslunarhúsnæðið í mið-
bænum. Nánari upplýsingar má
nálgast í síma 510 9505 og á www.
fjallakofinn.is. Fjallakofinn er einn-
ig virkur á samfélagsmiðlum. „Við
hvetjum alla til að fylgjast með okk-
ur á Facebook, en það er ýmislegt
skemmtilegt á döfinni hjá okkur í
sumar,“ segir Halldór.
Unnið í samstarfi við
Fjallakofann
Fjallakofinn stækkar við sig
Fjallakofinn rekur þrjár útivistarvöruverslanir á höfuðborgar-
svæðinu og býður upp á vörur í háum gæðaflokki. Gönguskór af
ýmsu tagi hafa notið mikilla vinsælda og þar trónir ítalski skófram-
leiðandinn Scarpa á toppnum. Skódeild Fjallakofans í Kringlunni
hefur nú tekið á sig nýja mynd og er þrefalt stærri en áður.
landsins oft af malbikinu og hlaupa
utan vegar og á fjöll yfir sumartím-
ann. „Þá er fólk búið að fá nóg af
malbikinu. Auk þess eru margir að
æfa fyrir fjallahlaupin sem haldin
eru víða yfir sumarið og eru þá að
breyta æfingunum sínum í takt við
það.“
Þó nokkuð er af skipulögðum
fjallahlaupum á sumrin. Þar á með-
al Laugavegurinn sem er 55 kíló-
metra leið, Snæfellsjökulshlaupið
sem telur rúma 20 kílómetra, Sjö
tinda hlaupið í Mosfellsdal þar sem
er í boði að hlaupa yfir þrjá, fimm
eða sjö tinda, Jökulsárhlaupið þar
sem hlaupið er frá Dettifossi inn í
Ásbyrgi og er 32 kílómetrar. „Stef-
án Gíslason stórhlaupari stendur
reyndar fyrir mörgum fjallahlaup-
um sem kosta ekkert. Eru meira
svona eins og góðar æfingar og
enginn skilinn eftir. Hann er með
heimasíðu sem heitir Fjallvega-
hlaup.com og stendur hann til dæm-
is fyrir því skemmtilega hlaupi Þrí-
strendingi þar sem hlaupið er farið
þvert yfir Ísland sama daginn, þar
sem það er mjóst. Mjög skemmti-
legt hlaup þar sem engin eru tíma-
mörkin og gleðin er við völd.“
Upplýsingar um flest fjallahlaup
má finna á hlaup.is Einnig eru
námskeið í Fjallahlaupum hjá Arc-
tic Running og Fjallafélaginu sem
heitir Fjallafitt.
Starfsmenn Fjallakofans búa yfir mikilli reynslu á sviði útivistar og útiveru. Hér má sjá þau Sigríði Kragh, Halldór Hreinsson og
Ingu Dagmar Karlsdóttur. Mynd/Hari.
Í raun er það fyrir
alla þá sem vilja
styrkja sig og
auka úthald og
njóta náttúrunnar
á sama tíma.