Fréttatíminn - 22.05.2015, Side 86
útivist & hlaup Helgin 22.-24. maí 201510
Eitt skot = 1 líter af rauðrófusafa eða 6 rauðrófur. 100% lífrænt
Meiri orka
þrek og úthald
WE BEET
THE COMPETITION
1 skot 30 mín. fyrir æfingar / keppnir. Blandað í 100 - 150 ml af vatni.
Endist 6 tíma í líkamanum. Bætt blóðflæði og súrefnis upptaka 30 mín. eftir inntöku.
Fæst í öllum Heilsuhúsum - Heilsuveri og sumum apótekum.
Upplýsingar í síma 896 6949.
vitex.is
BE
ET
EL
IT
E l
ey
nd
ar
m
ál
þe
irr
a s
em
sk
ar
a f
ra
m
úr
. -
w
ww
.ne
og
en
iss
po
rt.
co
m
Óskar, Gísli Einar og Kristján Logi hitt-
ust á dögunum á Akureyri. Þeir eru þó
bjartsýnir á að það verði snjólaust að
mestu þegar hlaupið fer fram í byrjun
júlí. Ljósmynd/Trausti Árnason.
Níu maraþon
á jafn mörgum
döguam
Félagarnir Óskar Jakobsson og Gísli Einar Árnason ætla að hlaupa
frá Reykjavík til Akureyrar í júlí. Hlaupaleiðin liggur yfir Kjöl og
mun taka alls níu daga. Markmið hlaupsins er að vekja athygli á
málefnum langveikra barna.
H laupið ber yfirskriftina „Hlaupið heim“ og er þetta í annað sinn sem Óskar
hleypur til að vekja athygli á mál-
efnum langveikra barna. Árið 2013
hljóp hann frá Reykjavík til Ísafjarð-
ar, en Óskar sleit barnsskónum fyr-
ir vestan. Hlaupaleiðin er um 450
kílómetrar og safnaði Óskar áheit-
um fyrir Finnboga Örn Rúnarsson,
ungan Vestfirðing sem hefur þurft
að glíma við langvinn veikindi. Nú,
tveimur árum síðar, langaði Óskar
að endurtaka hlaupið fyrir annan
Vestfirðing, Kristján Loga Vest-
mann Kárason, 9 ára gleðigjafa og
ofurhetju, en hann er fjölfatlaður
og langveikur. Hann er búsettur á
Akureyri ásamt fjölskyldu sinni og
því er förinni heitið norður en ekki
vestur að þessu sinni.
Eitt maraþon á dag í níu daga
„Við munum hlaupa um 45-50 kíló-
metra á dag í 9 daga og munum
því hlaupa eitt maraþon og rúm-
lega það á hverjum degi. Þetta var
svo gaman síðast að mig langar
að endurtaka leikinn. Kristján
Logi er flottur strákur með mörg
áhugamál og þarf hann á ýmsum
hjálpartækjum að halda svo hann
geti stundað útivist af ýmsu tagi
með fjölskyldunni,“ segir Óskar, en
hann og Kári, faðir Kristjáns, eru
góðir vinir úr æsku. Félagi þeirra,
Gísli Einar, ákvað að slást í för með
Óskari og munu þeir hlaupa saman
alla leið. Gísli er auk þess búsettur á
Akureyri. „Það á því vel við að hafa
heimamann með í hlaupinu,“ segir
Óskar. Allur ágóði af hlaupinu mun
renna í hjálpartækjasjóð Kristjáns
Loga, auk þess sem sérdeild Gilja-
skóla og barnadeild Sjúkrahúss-
ins á Akureyri munu njóta góðs af
söfnuninni.
Hlaupið um hálendið
Óskar og Gísli munu leggja af stað
frá Reykjavík þann 3. júlí og liggur
hlaupaleiðin um Hveragerði, Sel-
foss, Árnes, Hrauneyjar, Skrok-
köldu, Nýjadal, Laugafell og þaðan
niður í Eyjafjörð. Hlaupinu lýkur svo
á Akureyri. „Það er öllum velkomið
að hlaupa með okkur, eins lengi og
þeir treysta sér til. Við fögnum öll-
um stuðningi,“ segir Óskar. Hægt
er að fylgjast með undirbúningnum
á Facebook síðunni Hlaupið heim.
Þeir sem vilja leggja söfnuninni
lið geta lagt inn á reikning 565-14-
404427, kt. 141005-3750.
Erla María Markúsdóttir
erlamaria@frettatiminn.is
Snjallari hreyfing
Hvort sem þú
ert hreyfifíkill
eða nýtur þess
að stunda
létta hreyfingu
verður iðkunin
skemmtilegri
með þessum
snjallsímafor-
ritum. Hversu
mörgum
kaloríum ertu
að brenna?
Hversu langt
ertu að fara?
Hvað eru
vinir þínir að
gera? Svör
við þessum
spurningum
og mörgum
öðrum færðu
með neðan-
greindum
hreyfingar
„öppum“.
Endomondo
Eitt vinsælasta appið hjá ís-
lenskum snjallsímanotendum
í dag. Hægt er að fylgjast
með brennslu, hjartslætti og
vegalengd við hvers konar
íþróttaiðkun, allt frá hlaupi til
flugdrekabrettis (e. kitesurf-
ing). Endomondo er vel tengt
við samfélagsmiðla og því
getur þú fylgst með hreyfingu
vina þinna, til dæmis skoðað
þeirra hlaupaleiðir og skorað
á þá á hinum ýmsu sviðum.
Appið er bæði til í ókeypis
útgáfu og svokallaðri premium
útgáfu sem greiða þarf fyrir.
Stýrikerfi: Android, iOS og
Windows Phone
FitStar
Með Fitstar færðu ókeypis þinn
eigin stafræna einkaþjálfara.
Einkaþjálfarinn aðlagar
æfingarnar að þínu getustigi,
þannig að þær verða alltaf
krefjandi án þess að verða of
erfiðar. Tilvalið fyrir þá sem eru
mikið á ferðinni og hafa ekki
alltaf aðgang að líkamsrækt.
Einnig er hægt að setja sér
persónuleg markmið og skora
á aðra notendur.
Stýrikerfi: iOs
Strava
Strava er á hraðri uppleið með
að verða vinsælasta appið fyrir
þá sem vilja hreyfa sig. Appið
hentar frábærlega fyrir hjól-
reiðamenn og hlaupara til að
fylgjast með æfingunum sínum
og félaga sinna. Helsti kostur
Strava er að þú getur borið þig
saman við aðra hjólreiðamenn
með því að fylgjast með
frammistöðunni á sérstökum
leiðarbútum. Einnig er hægt að
búa til sérstaka hlaupa- og/eða
hjólahópa sem setja sér mark-
mið og safna æfingum sem
virkar afar hvetjandi.
Stýrikerfi: Android, iOs