Iðnaðarmál - 01.04.1967, Blaðsíða 2
Skýrsla um verkstjórnarnám-
skeíðin veturinn l966-’67
Námskeiðin s.l. vetur, eða veturinn
1966—1967 voru með svipuðum
hætti og árið áður. Hin almennu
fjögurra vikna námskeið voru sem
fyrr aðalverkefni námskeiðanna, en
jafnframt var haldið annað sérnám-
skeiðið, sem reglugerð námskeiðanna
gerir ráð fyrir að stofnað verði til,
eftir því sem ástæður leyfa. Var það
námskeið fyrir verkstjóra sveitar-
félaga.
Almennu námskeiðin eru, sem
kunnugt er, skipulögð með það fyrir
augurn, að þau geti sótt þátttakendur
úr öllum starfsgreinum jafnt, yfirleitt
allir, sem stjórna og bera ábyrgð á
daglegri vinnu annarra. Þessi nám-
skeið eru haldin í tvennu lagi, tvær
vikur hvort sinn. Fyrri hlutinn er
einkum helgaður verkstjórn og
vinnusálfræði, en síðari hlutinn fjall-
ar aöallega um ýmsar greinar hag-
ræðingartækni.
Starfsárið hófst með því, að hald-
inn var síðari hluti almenns nám-
skeiðs fyrir verkstjóra, sem lokið
höfðu fyrri hluta námskeiðsins í lok
starfsársins á undan eða dagana 2.—
14. maí 1966. Þessi síöari hluti var
lialdinn dagana 3.—15. okt. 1966.
Var það 16. námskeiðið frá upphafi
námskeiðanna.
Að öðru leyti var námskeiðahald
eins og sýnt er í 1. töflu á 63. bls.
Voru þessi námskeið almenn nám-
skeið, nema það 19., sem var sérnám-
skeiÖ það fyrir verkstjóra sveitarfé-
laga, sem áður er að vikið.
Alls luku 49 þátttakendur námi á
almennu námskeiðunum, en auk þess
17 á sérnámskeiðinu, og hafa því alls
lokið námskeiðum á þessum vetri 66
þát'takendur. Fjögur fyrstu starfsár-
in luku alls 223 þátttakendur þessum
námskeiðum, og er heildartalan nú
komin í 289.
Kennsluaðferðir á þessum nám-
skeiðum eru breytilegar eftir efni og
ástæðum. Má t. d. nefna fyrirlestra,
lausn verkefna í fjögurra til 6 manna
flokkum þátttakenda, umræður í
kennslustundum, ýmsar verklegar
æfingar í vinnurannsóknum og hag-
ræðingartækni og sýndar margar
Nemendur 17. námskeiðisins ásamt 3 kennurum.
Sigurður Ingimundarson,
jorstöðumaður námskeiðanna.
kvikmyndir úr Tæknimyndasafni
IMSI. Kennslustundir voru alls 133 á
hverju námskeiði.
A almennum námskeiðum hafa tólf
sérfræðingar annazt kennslu eða
haldið fyrirlestra um ýmis efni, og
hafa námsgreinar og kennarar verið
eins og fram kemur í 2. töflu á 63.
bls.
Eins og áður er að vikið, var á
þessu starfsári haldið sérnámskeið
fyrr verkstjóra sveitarfélaga. Var það
19. námskeiðiö, sem getið er um hér
að framan.
Reglugerð námskeiöanna gerir ráð
fyrir, að reynt sé að efna til sérnám-
skeiða fyrir verkstjóra í hinum stærri
og þýðingarmeiri starfsgreinum og
að námskeið þessi séu skipulögð í
samráði við félagasamtök þessara
starfsgreina og sérfræðinga þeirra.
Markmiðið er að sjálfsögðu að reyna
að aðhæfa námsefnið hinum sér-
stöku kröfum og viðfangsefnum
hverrar starfsgreinar. Fellt var niður
úr hinu almenna námsefni það, sem
ekki er talið nauðsynlegt fyrir við-
komandi starfsgrein, en bætt við
öðru, sem nauðsynlegra var talið.
Námskeið þetta var haldiö eftir
beiðni Samb. ísl. sveitarfélaga og
skipulagt í samráði við það, borgar-
verkfr. í Reykjavík og ýmsa starfs-
menn hans, einkum þó Guðlaug Stef-
ánsson deildarslj.
Framh. á 62. bls.
38
IÐNAÐARMAL