Iðnaðarmál - 01.04.1967, Page 5
(-------------\
'Gfm
Skýrsla um verkstjórnarnám-
skeiffin veturinn 1966—’67 .. 38
Skipulagsbygging atvinnuveg-
anna í sviffsljósi. — Forystu-
grein ...................... 39
Þróun framleiðni á Islandi .... 40
Tæknibókasafn IMSÍ -— Nýjar
bækur — Vinsæl tímarit .... 47
Skýrsla um starfsemi Stjórnun-
arfélags íslands starfsárið
1966—1967 ..................... 48
Sala á húsgögnum á markaffi
framtíðarinnar ............. 50
Orbylgjuhitun — ný tækni .... 51
Þjórsárvirkjun við Búrfell ____52
Vöxtur byggingariðnaffarins í
Finnlandi (Framh. úr síffasta
blaði) ..................... 58
Afköst í teppaiffnaffi tvöfaldast
fyrir áhrif vinnurannsókna .. 63
Tímaskipulagning framkvæmda-
stjórans ................... 64
Eitthvaff fyrir íslenzka skósala 68
Vísindamenn telja sig geta
hindraff ölvunarakstur ......69
Stórrekstur í matvöruverzlunum
í Svíþjóff ................. 69
Nytsamar nýjungar.............. 70
Nýjungar á næsta leiti ....... 71
Forsíða:
Þjórsárvirkjun viff Búrfell.
Hjálpargöng í klakaböndum.
Ljósmynd: Leifur Þorsteinsson.
Endurprentun háð leyfi útgefanda.
Ritstjórn:
Sveinn Björnsson (ábyrgðarm.),
Þórir Einarsson,
Stefán Bjarnason.
Utgefandi:
ISnaðarmálastofnun Islands,
Skipholti 37, Reykjavík.
Sími 81533—4.
Áskriftarverð kr. 200,00 árg.
PRENTSMIÐJAN HOLAR HF.
______________________________________
Iðnaðarmal
14. ÁRG. 1967 . 3.-4. HEFTI
Skipulagsbygging atvinnuvegamia i sviðsljósi
Á síSastliðnu ári urðu á opinberum vettvangi nokkrar umræður um nauð-
syn þess að styrkja samkeppnishæfni atvinnuveganna með því að víkja frá
þeim smáu rekstrareiningum, sem sett hafa svip sinn á skipulagsbyggingu
þeirra og efna til stækkunar rekstrareininga með samstarfi og samruna.
Nýafstaðin ráðstefna Stjórnunarfélags Islands að Bifröst (31. 8,-—2. 9.
1967) um „Þróun í skipulagsbyggingu atvinnuveganna — samstarf, samruna
og stækkun rekstrareininga“, markar tímamót í þessum málum hérlendis,
því það er í fyrsta skipti, sem stjórnendur fyrirtækja og fræðimenn á sviði
hagstjórnar og fyrirtækjastjórnunar setjast niður og gera sér skipulega grein
fyrir hinni dreifðu skipulagsbyggingu atvinnuveganna í smáar einingar og
hvernig megi ráða bót á þeim veilum.
Á ráðstefnunni voru nefnd tvö nýleg dæmi, annars vegar um samruna
(vélsmiðjur á Suðurnesjum) og hins vegar um samstarf (frystihús á Suður-
eyri, Súgandafirði), en það eru þær tvær grundvallarleiðir, sem færar eru
fyrir fyrirtæki er vilja samlagast í einhverri mynd.
Hið makverðasta við ráðstefnuna mun þó einkum verða talið það, að hún
dró upp mynd af því, hvernig haganlegast verði í framtíðinni unnið að hag-
ræðingu í skipulagsbyggingu atvinuveganna, á þann hátt að örva fyrirtækin
til samstarfs og samruna í þeim tilgangi að auka samkeppnishæfni þeirra.
Þannig áleit ráðstefnan, að frumkvæði að slíkum endurbótum yrði að
koma frá fyrirtækjunum sjálfum, þau yrðu ekki þvinguð til samstarfs eða
samruna með valdboði.
Hlutverk hinna einstöku samtaka atvinnuveganna yrði fyrst og fremst að
beita sér fyrir umfangsmikilli fræðslu- og upplýsingastarfsemi fyrir meðlimi
sína, um kosti þess að samlagast í einni eða annarri mynd, hvernig aðdrag-
anda þess verði bezt hagað, hvaða sérfræðilegrar aðstoðar þeir þurfa að
vera aðnjótandi og hvaðan hún geti komið.
Hlutverk ríkisvaldsins skyldi að áliti ráðstefnunnar vera að tryggja hin
almennu skilyrði fyrir samruna og samstarfi með löggjöf, s. s. á sviði skatta-
mála og með þjónustustofnunum, sem veitt gætu fyrirtækjum, sem áhugr
hefðu á að samlagast, nauðsynlega sérfræðilega aðstoð.
I þessu sambandi upplýsi Jóhann Hafstein iðnaðarmálaráðherra, sem var
gestur ráðstefnunnar, að auk þess að veita sérfræðilega aðstoð við samruna
vélsmiðja á Suðurnesjum, hefði ráðuneyti hans og Jðnþróunarráð farið þess
á leit við ríkisstjórnina, að varið yrði nokkru fé á næstu fjárlögum til þess
að styrkja í ríkari mæli sérfræðivinnu við undirbúning að samstarfi eða
samruna fyrirtækja.
Þá lagði ráðstefnan mjög mikla áherzlu á þýðingu peningastofnana, bæði
viðskiptabanka og lánasjóða fyrir þróun til samruna eða samstarfs, að þær
séu hverju sinni dómbærar á mikilvægi ráðstafana til samlögunar, bæði út
frá hagsmunum viðkomandi fyrirtækja og þjóðarheildar. Þ.E.
IÐNAÐARMÁL
39