Iðnaðarmál - 01.04.1967, Síða 14
Jakoh Gíslason, orkumálastjóri, formaður SFÍ:
Skýrsla um starfsemi stjórnunarfélags
íslands starfsáríð l966-’67
Stjórnunarfélagið hélt á starfsár-
inu 1966—1967 sjö félags- og
fræðslufundi. Fyrsti fundurinn,
haldinn í nóvember 1966, fjallaði um
„framkvæmdarst j órn“ (Operation
Research). Flutningsmaður aðaler-
indis var Kjartan Jóhannsson, verk-
fræðingur, sem tekið hefur MS-próf
í þessum fræðum við bandarískan há-
skóla. Töluverðar umræður urðu um
erindið, og skýrði Þóroddur Th. Sig-
urðsson, vatnsveitustjóri, frá notkun
„framkvæmdarannsókna“-aðferð-
anna við rannsókn á möguleikum til
„bestunar“ (optimalisering) í síld-
veiðum við Island. Sú rannsókn er
framkvæmd af íslenzkum og dönsk-
um vinnuhópum í samvinnu. Um
þessa rannsókn var einnig rætt á ráð-
stefnu Verkfræðingafélags Islands
um sjávarútvegsmál nú í vor.
Dagana 18. og 25. febrúar og 11.
marz 1967, voru haldnir 3 fræðslu-
fundir um vinnurannsóknir að Hótel
Loftleiðum.
Fyrsti jundurinn fjallaði um vinnu-
aðferðarannsóknir, og voru flutnings-
menn þeir Agúst Elíasson, hagræð-
ingarráðunautur Vinnuveitendasam-
bands Islands, og Kristmundur Hall-
dórsson, hagræðingarráðunautur Al-
þýðusambands Islands.
Annar jundurinn fjallaði um taja-
rannsóknir, og voru flutningsmenn
þeir Guðhrandur Árnason, hagræð-
ingarráðunautur Iðju, félags verk-
smiðjufólks í Reykjavík, og Óskar
Guðmundsson, hagræðingarráðu-
nautur Fulltrúaráðs verkalýðsfélag-
anna í Reykjavík.
Þriðji jundurinn fjallaði um á-
kvœðisrannsóknir, og voru flutnings-
menn þeir Ágúst Oddsson, hagræð-
ingarráðunautur Félags íslenzkra
iðnrekenda, Böðvar Guðmundsson,
hagræðingarráðunautur Vinnumála-
sambands samvinnufélaganna, og
Bolli B. Thoroddsen hagræðingar-
ráðunautur Verkamannasambands
Islands.
Fundarsókn var ágæt.
I maímánuði voru svo haldnir 3
fræðslufundir um vinnurannsóknir
fyr.'r starfsfólk Raforkumálastjóra og
Rafmagnsveitna ríkisins. Um 50
manns sóttu þessa fundi, og voru
undirtektir mjög góðar.
Nómskeiðahald
Um námskeiðahald Stjórnunar-
félagsins er þetta helzt að segja:
I júní- og júlímánuði 1966 var
haldið námskeið í „næmisþjálfun“
(Sensitivity Training Course). Leið-
beinandi var norskur sálfræðingur,
Tryggve Johnstad, starfsmaður við
„Statens Teknologiske Institutt“ í
Ósló. Þeim, sem vildu kynnast nánar,
hvað „næmisþj álfun“ er, skal vísað
á grein í tímaritinu „Iðnaðarmál-
um“, 2.—3. hefti 1965. Þetta nám-
skeið var fyrir takmarkaðan hóp
manna og var ekki auglýst til al-
mennrar þátttöku. En vonandi verður
hægt að endurtaka það, áður en langt
um líður.
Critical Path Method-námskeið
Stj órnunarfélagsins hafa reynzt mjög
vinsæl, og hafa þegar verið haldin
14 frá byrjun með um 300 þátttak-
endum alls.
Dagana 7.—11. febrúar í ár var
haldið í Reykjavík C.P.M.-námskeið
með 19 þátttakendum.
Dagana 24., 25. og 26. febrúar
1967 hélt SFÍ C.P.M.-námskeið á Ak-
ureyri með 36 þátttakendum. Er
þetta í fyrsta skipti, sem námskeið
er haldið á vegum SFÍ á Akureyri.
Aðalhvatamenn þessa á Akureyri
voru þeir Ingólfur Árnason, rafveitu-
stjóri og Jón E. Aspar frá Útgerðar-
félagi Akureyringa hf. Námskeiðið
þótti takast með ágætum, og er fyrir-
hugað annað C.P.M.-námskeið þar
bráðlega.
I marzmánuði síðastliðnum var
með milligöngu Hjálmars Blöndals,
hagsýslustj óra Reykj avíkurborgar,
haldið sérstakt C.P.M.-námskeið fyr-
ir forstjóra fyrirtækja og stofnana
Reykjavíkurborgar, 26 að tölu, með
borgarstjóra, Geir Hallgrímsson,
Frá C.P.M.-námskeiðsslitum í Borgarráðssal: Geir Hallgrímsson, borgarstjóri, Jakob
Gíslason, orkumálastjóri, jormaður SFI, J>óroddur Th. Sigurðsson, vatnsveitustjóri og
Hjálmar Blöndal, hagsýslustjóri.
48
IÐNAÐARMÁL