Iðnaðarmál - 01.04.1967, Blaðsíða 15
Frá C.P.M.-námslceiði S. F. 1. jyrir Re)'kjavíkurborg: Hjálmar Blöndal, hagsýslustjóri,
Sveinn Ragnarsson, jélagsmálastjóri, Haukur Benediktsson, jramkvstj. sjúkrahúsnefndar,
Hjörleijur Hjörleijsson, jjármálajulltrúi Rafmagnsveitu Reykjavíkur, Sigurjón Sveinsson,
byggingarjulltrúi, Þóroddur Th. Sigurðsson, Vatnsveitustjóri, Rúnar Bjarnason, Slökkvi-
liðsstjóri, Ragnar Georgsson, skólajulltrúi, Aðalsteinn Richter, skipulagsstjóri, Geir Hall-
grímsson, borgarstjóri, Þór Sandholt, skólastjóri, Oskar Þórðarson, deildarstjóri, bygg-
ingadeild, Jóhannes Zoega, hitaveitustjóri.
meðal þátttakenda. Er þetta í fyrsta
skipti sem SFI hefur haldið sérstakt
námskeið fyrir Reykjavíkurborg.
Þann 1.—3. apríl var svo haldiS í
Reykjavík C.P.M.-námskeiS fyrir
sveitarstjóra víSs vegar aS meS þátt-
töku 21 manns. Var námskeiS þetta
haldiS í samvinnu viS Samband ís-
lenzkra sveitarfélaga og er vonandi
upphafiS að langri og góðri sam-
vinnu milli þess og SFl.
Dagana 25.—26.—27. maí var loks
haldið C.P.M.-námskeiS að Hótel
LoftleiSum undir leiðsögn Mr.
Dwight A. Zink, ráðunautar frá
Bandaríkjunum, sem verið hefur hér
áður og er okkur að góðu kunnur
frá fyrri námskeiðum hans hér, m. a.
að Bifröst. Kynntar voru allar þær
nýjungar í C.P.M., er fram hafa kom-
ið til þessa, en jafnframt lögð sér-
stök áherzla á kostnaðareftirlit með
C.M.P.
I þessu sambandi skal ég leyfa mér
að segja frá því, að á ráðstefnu um
ácetlanagerð á sviði opinberra jram-
kvœmda, sem Efnahagsstofnunin stóð
fyrir nú nýlega, ræddi sérfræðingur
frá AlþjóSabankanum, Mr. Water-
ston, um opinbera áætlunargerð. I er-
indi sínu lagði hann áherzlu á, að
framkvæmdaáætlanir væru ófull-
komnar og næðu ekki tilgangi sínum,
ef þær væru ekki svo úr garði gerð-
ar, að auðvelt væri að nota þær til
þess að fylgjast til hlítar með verk-
inu og kostnaði þess, jafnóðum og
því miðar áfram. Notkun C.P.M.- og
PERT-aðferða við framkvæmdaáætl-
anir tryggði einmitt þetta — sagði
Mr. Waterston.
Ráðsteína um opinberan rekstur
I nóvember 1966 var, sem kunnugt
er, haldin á vegum fjármálaráðu-
neytisins ráðstefna um opinberan
rekstur SFÍ veitti að ósk ráðuneyt-
isins Hagsýslustofnun ríkisins nokkra
aðstoð við undirbúning og fram-
kvæmd ráðstefnu þessarar.
Opinber viðurkenning ó fræðslu-
starfsemi SFI
Á fjárlögum ársins 1967 eru veitt-
ar 100.000 kr. til stuðnings fræðslu-
starfsemi SFl. Má líta á þessa fjár-
veitingu sem opinbera viðurkenningu
á fræðslustarfsemi félagsins. Metur
stjórn SFÍ þá viðurkenningu mikils
og þakkar öllum þeim velvildarmönn-
um, sem þar eiga hlut að máli, og þá
eigi sízt menntamálaráðherra, dr.
Gylfa Þ. Gíslasyni, sem hefur frá
fyrstu tíð verið eindreginn styrktar-
og stuðningsmaður Stj órnunarfélags
íslands og starfsemi þess.
Starfsmannabreytingar
Snemma á árinu 1966 var samið
við Jón Bjarklind um að taka að sér
bókhald og gj aldkerastörf.
í des. sl. var Árni Þ. Árnason,
f ramkvæmdastj óri Stj órnunarfélags-
ins, ráðinn sem deildarstjóri til iðn-
aðarmálaráðuneytisins og lét því af
framkvæmdastjórastörfum fyrir SFÍ,
er hann hafði gegnt frá upphafi fé-
lagsins.
Árni hefur innt af hendi mikið
og óeigingjarnt starf í þágu félags-
ins og sýnt óþrjótandi áhuga á efl-
ingu félagsins og framgangi þeirra
mála, sem það hefur á dagsskrá
sinni, og er honum þakkað hans á-
gæta starf.
I febrúar 1967 var ráðinn nýr
framkvæmdastjóri SFl, Konráð Ad-
olphsson, viðskiptafræðingur, er áð-
ur hafði starfað hjá Coldwater Sea-
food Corp., dótturfyrirtæki Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna í Banda-
ríkjunum.
Stjórnarfundir
hafa verið haldnir viku- til hálfs-
mánaðarlega. Eru nú bókaðir stjórn-
arfundir orðnir alls 187 frá stofnun
félagsins, en æði oft liafa stjórnar-
menn þurft að hittast og ræðast við
utan reglulegra funda.
Aðild að CIOS (Connseil International
de l'Organisation Scientiiique)
Félagsmönnum SFÍ hefur á und-
anförnum árum verið gefinn kostur
á að sækja ýmsar ráðstefnur og al-
þjóðlegt mól CIOS, þar sem stjórn-
unarmenn frá öllum heimshlutum
hafa borið saman bækur sínar og
færustu rithöfundar og vísindamenn
á stjórnunarvettvangi flutt erindi og
haldið umræðufundi.
Fjórtánda alþjóðaþing CIOS
(„CIOS XIV“) var haldið í Rotter-
dam í september 1966. Frá íslandi
sóttu þingið formaður, gjaldkeri og
framkvæmdastjóri SFÍ, en aðrir
ekki. Þeir þrír sátu jafnframt sem
fulltrúar SFÍ eftirtalda fundi:
1) Framkvæmdastjórafund CIOS
(All CIOS Staff Meeting) sótti ÁÞÁ.
IÐNAÐARMÁL
49