Iðnaðarmál - 01.04.1967, Qupperneq 18
Útdráttur úr ritgerð ejtir dr. GUNNAR SIGURÐSSON,
•yjirverkjrœðing Landsvirkjunar Hver feiknaöfl um auðnarlöndin stór,
sem öllum drekkir hafsins dauði sjór!
En framtíð á vor þjóð — með þessa fossa,
með þessi römmu tröll í samhljóms kór.
Úr „Dettifoss“ eftir Einar Benediktsson.
Inngangur:
íslendingum var lengi ljóst, að
mikil auðlegð bjó í fallvötnum lands-
ins. Lengst af var þessi hugmynd
draumsýn framsýnna manna og
skálda, og einna bezt hefur Einar
Benediktsson túlkað þessar vonir
landsins sona. Nú er liðin rétt hálf
öld, síðan raforkufélög hans létu
gera fyrstu áætlanir um virkjun
Þjórsár, en það var ekki fyrr en á
síðasta ári, að draumurinn tók á sig
mynd veruleikans, þegar Alþingi og
ríkisstjórn tóku ákvörðun um virkj-
un Þjórsár við Búrfell og hafizt var
handa um framkvæmdir.
Þessi virkjun er langsamlega
stærsta og vandasamasta mannvirki,
sem íslendingar hafa ráðizt í að
byggja. Virkjunin á að skila um 2,4
sinnum meira afli en öll orkuverin
við Sogið. Byggingarkostnaður allra
mannvirkja, orkuvers og raflína, er
áætlaður nálega 1700 milljónir ís-
lenzkra króna og með vaxtakostnaði
um 2000 milljónir. Þessi framkvæmd
á tvímælalaust eftir að verða lyfti-
stöng stórfellds iðnaðar á íslandi í
framtíðinni, auk fyrirhugaðrar ál-
bræðslu.
Þjórsárvirkjunin er athyglisvert
dæmi um jákvæða samvinnu margra
þjóða við nútíma tækniframkvæmdir.
Islendingar sjálfir eiga stærstan þátt
í rannsóknum og undirbúningi virkj-
unarinnar. Norðmenn gerðu líkön af
virkj unarmöguleikum, bandarískt
firma hannaði verkið og hefur eftir-
lit með framkvæmdum, Danir, Svíar
og íslendingar byggja það, hverfla,
rafala og spennistöðvar gera Japanir,
Frakkar gera rafbúnað í háspennu-
línu, Italir stöðvarkranann, Þjóð-
verjar lokur í göngum og fóðrun
ganga, Finnar íbúðarhús væntanlegs
starfsfólks, og íslendingar borga að
lokum brúsann með velviljaðri að-
stoð Alþjóðabankans í Washington.
Þjórsá
Þjórsá, ásamt þverám, er orku-
mesta fallvatn landsins. Vatnasvæði
hennar er um 6350 ferkílómetrar of-
an Búrfells, þar af 16% jöklar. Lengd
hennar frá upptökum til sjávar er um
230 km og fallhæð um 600 m. Áætl-
1. mynd. Boranir í hjálpargöngum.
pjórsároirkjiM oib j3úr fell
52
IÐNAÐARMÁL