Iðnaðarmál - 01.04.1967, Blaðsíða 25
þetta húsbyggingasvið, sem er svo
rækilega undir eftirliti, eru nýjar iðn-
væðingaraðferðir að leggj a undir sig.
Af þeim byggingum, sem lán mun
verða veitt til árið 1965, munu 60—
70% verða reistar með opna og lok-
aða kerfinu.
Ríkið hefur einnig séð fyrir tak-
mörkuðum fjárupphæðum til rann-
sókna og þróunar á iðnvæddum bygg-
ingaraðferðum. Verðmæt framlög
hafa komið frá Tæknirannsóknar-
stofnun ríkisins (Finnish States Tech-
nical Research Institute). Svipuð
rannsóknarstarfsemi einkaðila og
ráðgefandi fyrirtækja hefur og gefizt
allvel. Þótt ekki hafi verið varið
nema um 30.000 pundum árlega í
þessu skyni síðan árið 1952, hefur
það leitt til árangurs, sem hefur knú-
ið byggingafélögin til að halda áfram
þessu þróunarstarfi af eigin ramm-
leik. Eitt meginrannsóknarefnið hef-
ur verið framleiðnin. Rannsóknir á
því sviði hafa smám saman verið
færðar út, svo að þær ná yfir hin
skipulagslegu vandamál og starfsemi
alls byggingariðnaðarins.
Ríkið hefur ekki enn séð fyrir nein-
um beinum lánum eða fjárhagsaðstoð
til þróunar vélvæðingu eða verk-
smiðjuframleiðslu á húsum.
2.4 Nýjar byggingaraðferðir og tækni
(innifelur iðnvæðingarkerfin og
verksmiðjuframleiðslu, og endur-
bætur á hefðbundnum aðferðum).
Hinn öflugi framleiðnivöxtur staf-
ar af tveimur meginþáttum:
— Nýjum byggingaraðferðum, á-
samt endurbótum hinna gömlu, og
— skipulagsþróun byggingarstarf-
seminnar í heild, bæði að því er
snertir eigendur, verktaka og ráð-
gjafa.
Ég ætla að snúa mér að fyrri þætt-
inum:
Hefðbundnar byggingaraðferðir
geta þróazt eftir margvíslegum leið-
um. Sumir byggingamenn og verk-
takar hafa haft samstarf við ráðu-
nauta um að hreyta grundvallargerð-
um, gera þær einfaldari og auðveld-
ari í byggingu, en ávallt gengið út
frá því, að burðarbyggingin sjálf
skuli reist á staðnum. Síðan eru staðl-
aðir hyggingahlutir með fullgerðu
yfirborði festir við burðarbygging-
una. Meðal hinna stöðluðu eininga
eru dyr og gluggar, skápar, mið-
stöðvarofnar, heilir stigar o. s. frv.
Það hefur verið sagt, að þróunin
stefni að því marki, að þessir sam-
setningarhlutir verði settir á sinn
stað af starfsliði í hvítum skyrtum
og með hreinar hendur. Eftir að hin-
ir „hefðbundnu" hafa öðlazt viðeig-
andi, lítinn vélbúnað og stöðluð
steypumót (fleka og skorður), hefur
þeim tekizt að auka framleiðninameð
undraverðum hraða. Gamlar bygg-
ingaraðferðir hafa því dregizt saman
í þessari „byltingu án blóðsúthelling-
ar“, jafnvel þótt verkferillinn sé enn
ekki hinn sami og í opna eða lokaða
kerfinu.
Annar hagnaður af hefðbundnu
aðferðinni er þessi: Auðvelt er að ná
miklum gæðum. Hlj óðeinangrun veld-
ur t. d. engum erfiðleikum.
Vér getum haldið áfram að færa
oss í nyt hina miklu framleiðslugetu
múrsteinaiðnaðarins. Undir lok sjötta
áratugs aldarinnar minnkaði múr-
steinanotkunin nokkuð, en nú er
framleiðslan orðin hin sama og hún
var fyrir tíu árum. Hefðbundna að-
ferðin í sínu endurbætta formi hefur
þannig haldið sínu, þó að útþenslan
í byggingastarfseminni hafi orðið
vegna notkunar nýrra aðferða.
Opna kerjið aðgreinist frá hinu
hefðbundna í notkun meiri fjölda
verksmiðjuframleiddra eininga, sem
sumar eru framleiddar í sérstökum
byggingahlutaverksmiðjum. — Enda
þótt engin greinileg markalína liggi
milli hins hefðbundna og hins opna
kerfis, auðkennist hið síðarnefnda af
eftirfarandi einkennum:
Styrkíarbyggingin er úr steinsteypu
og er reist að nokkru leyti á staðnum
og að nokkru leyti úr verksmiðju-
framleiddum einingum.
Hinir steinsteyptu yfirborðsfletir
eru gerðir svo sléttir, að ekki er þörf
á múrhúðun. Fyrir flekana eru yfir-
leitt notuð veggmót með krossviðar-
eða stályfirborði, sem auðveld eru í
uppsetningu. Fletirnir eru svo sléttir,
að unnt er að líma veggfóður beint
IÐNAÐARMÁL
59