Iðnaðarmál - 01.04.1967, Side 29
Afköst í teppaiðnaði tvöfaldast
fyrir áhrif v iiiiiuraiiiisókna
Afköst vefara tvöfölduðust, tekjur
þeirra hækkuðu frá 15—35%, vinnu-
kostnaður lækkaði um næstum 30%
og gæðin jukust vegna breytinga, er
gerðar voru, eftir að vinnurannsókn-
ir höfðu farið fram hjá Gripper Ax-
minster framleiðsludeildinni hj á
Heckmondwike Manufacturing Co. í
Bretlandi.
Fyrirtækið hefur um 400 manna
starfslið, og voru vinnurannsóknirn-
ar gerðar að heiðni stjórnendanna.
Það var vinnurannsóknarmiðstöð
Ullariðnrekendaráðsins (Wool Tex-
tile Employers’ Council), sem ann-
aðist rannsóknirnar.
Allt frá byrjun voru höfð samráð
við Northern Carpet verkalýðsfélag-
ið, og bryti í veitingastofu vefar-
anna, er síðar var útnefndur fram-
kvæmdastjóri deildarinnar, var ráð-
inn á fullum launum til aðstoðar við
rannsóknirnar.
Fyrsta meiri háttar breytingin, er
samið var um við verkalýðsfélagið,
var fækkun í starfsliði vefstóladeild-
arinnar. Áður starfaði einn reyndur
vefari ásamt einum aðstoðarmanni
við hvern af 12-feta og 9-feta vef-
stólunum (breiðstólunum). Við
þröngu vefstólanna starfaði einn
maður við hvern.
Reynslutími
Á reynslutímabili fyrir einn breið-
stól og tvo þrönga stóla voru margar
breyttar aðferðir kynntar — sumar
þeirra höfðu lagfæringar á verk-
1. tafla:
Heil verkstjórnarnámskeið veturinn 196G—1967
Fyrri hluti
17. námskeið
18. námskeið
19. námskeið
20. námskeið
24. okt.—5. nóv. 1966
14.—26. nóv. 1966
13.—25. febr. 1967
6.—18. marz 1967
Síðari hluti
9, —21. jan. 1967
23. jan.—4. febr. 1967
10. —22. apríl 1967
24. apríl—9. maí 1967
2. tafla:
Námsgreinar og kennarar verkstjómarnámskeiðanna veturinn 1966—1967
Fyrri hluti:
Námsgreinar Kennslust. Kennarar
Verkstjórn .................... 38 Sigurður Ingimundarson verkfr.
Vinnusálfræði ................. 10 Orn Helgason sálfræðingur
Atvinnulöggjöf ................ 12 Sigurður Líndal hæstaréttarritari og
Björn Guðmundsson lögfræðingur
Öryggismál .................... 9 Friðgeir Grímsson verkfræðingur
Hjálp í viðlögum............... 4 Jón Oddgeir Jónsson fulltrúi
Síðari hluti:
Námsgreinar Kennslust. Kennarar
Vinnurannsóknir ............... 17 Sigurður Ingimundarson verkfr.
Vinnuaðferðarannsóknir o.fl. .. 15 Sveinn Björnsson verkfræðingur
Skipulagstækni ................ 10 Óskar Guðmundsson hagr.ráðun.
Rekstrarhagfræði .............. 10 Þórir Einarsson viðskiptafr.
Atvinnuheilsufræði ............... 4 Guðmundur Þórðarson læknir
Lýsing á vinnustað ............... 2 Aðalsteinn Guðjohnsen verkfr.
Hollustuhættir á vinnustað .... 2 Sören Sörensson heilbr.eftirlitsm.
smiðjunni í för með sér. Vefstólalið-
inu var fækkað niður í einn vefara á
hvern breiðstól og einn vefara á
hverja tvo þrönga stóla.
Við breiðstólana hafði aðstoðar-
maðurinn stundum verið á bak við
vefstólinn, meðan hann var í gangi,
en vefarinn var alltaf fyrir framan.
Nú getur vefarinn farið á bak við
stólinn og yfirgefið hann án þess að
sinna honum stöðugt, því að stöðv-
unartakki er innan seilingarsviðs,
hvar sem hann er að störfum. Einn
reyndur vefari er þannig fær um að
hafa eftirlit með allri starfseminni;
gæðin hafa aukizt. Endurbætur á
vefstólunum, vikuleg hreinsun og
notkun „molybden“-olíu hefur við-
haldið og aukið afkastagetu stólanna.
Afköst eins vefara hafa aukizt um
100% í fermetrum á hverja vinnslu-
stund, miðað við afköst eins vefara
og eins aðstoðarmanns^ður.
Meðan þjálfunartímanilið stóð yf-
ir, voru nokkrir aðstoðarvefarar
valdir til nákvæmrar þjálfunar, svo
að þeir gætu tekið að sér vefnaðinn
í þröngu stólunum, þegar áætlunin
yrði látin koma til framkvæmda. Við
það gátu nokkrir vefarar þröngu stól-
anna flutt sig yfir að hreiðstólunum.
Engin oíijölgun
Vegna endurbótanna var fært að
framlengja tvískiptar vinnuvaktir.
Hinu venjulega tvískiptingarfyrir-
komulagi var breytt þannig, að starf-
semin var aukin á 12-feta stólunum.
Heildarframleiðslan jókst um 30%,
aðallega á breiðu stólunum.
Vefararnir fengu sín venjulegu
laun allan reynslutímann, að við-
bættri þóknun fyrir aukið vinnufram-
lag. Umfangsmiklar rannsóknir
leiddu síðan til ákvæðis-kerfis, er
byggðist á beinni stykkjagreiðslu á
fermetra við hinar nýju aðstæður.
Með þessu nýja fyrirkomulagi hækk-
uðu launin frá 15—35%.
Arangur breytinganna varð einnig
sá, að vinnukostnaður við vefnaðinn
lækkaði um 28%, og hjálpaði það
til að halda verðlaginu stöðugu.
Úr „Target“, maí 1967. — J. Bj.
IÐNAÐARMÁL
63