Iðnaðarmál - 01.04.1967, Side 35
Örbylgjnhitim - ný tækni
Framh. af 51. bls.
stöðvum og síðan aðeins hita hann
upp í örbylgjuofnum. Mörg húsmóð-
irin myndi einnig hafa ánægju og að-
stoð af þessari aðferð matgerðar.
Takmarkanir
Hér þarf þó að gera sér ljóst, að
örbylgjuofninn er aðeins skarðfyll-
ing við eldavél, steikarrist og önnur
eldhústæki, sem ekki verða óþörf við
tilkomu hans. Eftir eðli örbylgnanna
geta þær t. d. ekki brúnað mat, sem
af hefð á að hafa brúna, stökka skel.
Slíkt þarf að gera áður eða eftir með-
ferð í örbylgjuofninum.
Á sviði umbúðanna eru einnig tak-
markanir, sem eru þó ekki óyfirstíg-
anlegar. Þannig er ekki hægt að nota
málmílát fyrir matvæli, sem hita á í
örbylgjuofni, því að slíkt ílát verkar
eins og Faraday-búr og stöðvar al-
gerlega örbylgj urnar. Almennt þurfa
umbúðirnar að þola frystingu, og í
Svíþjóð eru t. d. notaðar pappaum-
búðir, þéttaðar með polypropylen-
húð. Lögun umbúðanna er einnig
vandamál, því að komið hefur í ljós,
að í hvössum hornum myndast of há
þétting örbylgnanna, svo að ofhitun
myndast. Af þessum ástæðum þurfa
umbúðirnar að hafa ávala kanta og
horn.
Þrátt fyrir takmarkanir örbylgn-
anna hafa þær þó svo marga kosti,
að þær munu án efa ná mikilli út-
breiðslu. Örbylgjuofnar voru fyrst
teknir upp í Svíþjóð að nokkru ráði,
og Husquarna AB, sem er stærsti
framleiðandi magnetróna í Evrópu,
hefur selt yfir 2000 slíka ofna á
Norðurlöndum einum.
Hér endar frásögn þessi í Ingeniör-
ens Ugeblad, 12. maí 1967, merkt
„toh“ sem blaðamanni.
Eftirmóli
Þessi frásögn af örbylgjuofnum
sem nýjum tækjum í matvælaiðnaði
og einkum í framreiðslu matar er
mjög athyglisverð og gæti haft mikla
þýðingu fyrir fullvinnslu í fiskiðnaði
okkar. Hér á íslandi eru 5 slíkir ofn-
ar í notkun í Reykjavík og einn í
Hafnarfirði og nokkrir í pöntun.
Enn sem komið er, eru þeir þó aðeins
notaðir til þess að halda mat heitum
og tilbúnum til framreiðslu, þegar
annatími hefst í gildaskálum. En
framtíðarmöguleikarnir geta verið
miklir og fj ölbreytilegir í sambandi
við framleiðslu, djúpfrystingu, end-
urþíðingu og upphitun tilbúinna mál-
tíða úr fiski og kjöti. Slíkar mat-
gerðarmiðstöðvar mætti staðsetja í
kauptúnum úti á landi, þar sem öfl-
un úrvalshráefnis er auðveld, og síð-
an flytja hinn tilbúna mat, djúpfryst-
an til þéttbýlisins, þar sem oft vantar
nýjan fisk í soðið.
St. B.
Vísindamenn telja sig geta
hindrað ölvunarakstur
Akvegir heimsbyggðarinnar gætu
verið öruggari til aksturs, ef vísinda-
og tæknimenn ættu ríkari þátt í hönn-
un vega og ökutækja en hingað til.
Amerískur eldflaugasérfræðingur tel-
ur vísindamenn auðveldlega geta úti-
lokað alvarlegustu slysahættuna, sem
í dag vofir yfir þjóðvegum landanna:
ölvun við akstur.
Það er geimfræðingurinn John
Kuhn. sem látið hefur þá skoðun
í ljós, að hindra megi mann, sem náð
hefur ákveðnu ölvunarstigi, í að ræsa
og aka bifreið.
Þetta megi gera með þrennu móti
að sögn hr. Kuhns:
1. Með skynjara, sem mæli áfengis-
magn andrúmsloftsins. Tveir eða
þrír andardrættir nægi til þess að
verka á rofa, sem rjúfi straum að
kveikjukerfi.
2. Með skynjara, sem mæli útgufun
um húðina í hlutfalli við áfengis-
magn í blóði. Slíkan skynjara
mætti byggja inn í stýrishringinn
eða við ræsirofa.
3. Þá mætti nota aðferð, sem byggð-
ist á hæfileika ökumanns til þess
að samræma aðgerðir skynfæra
sinna og vöðva.
Hr. Kuhn segir alla ökumenn í dag
geta ræst bifreið og ekið af stað með
því einu að snúa lykli. „Við gætum
gert það svo flókið að ræsa farar-
tækið, að eingöngu allsgáðir menn
gætu framkvæmt það“.
Lauslega þýtt úr International Manage-
ment.
Stórrekstur í matvöruverzl-
unum í SvíþjóS
Árið 1965 voru í Svíþjóð lagðar
niður 1038 smásöluverzlanir í mat-
vöru. Árleg velta þessara verzlana
var að meðaltali 200 þús. S. kr. Á
sama tímabili voru opnaðar 95 smá-
söluverzlanir í sömu grein með með-
alveltu sem samsvarar 3 millj. S. kr.
á ári. Velta hinna 95 nýju verzlana
gerir meira en að vega upp á móti
veltu þeirra 1038 verzlana, sem voru
lagðar niður.
HeilræSi
Namm — namm!
Vanhugsuð framkvæmd
Ekki hœgt!
á*. A
Hvernig?
Svona —
_____________mm
og svona!
með skipulagningu og samvinnu.
IÐNAÐARMÁL
69