Iðnaðarmál - 01.04.1967, Page 36
NYTSAMAR NYIUNGAR
PlastgirSing stöSvar út-
breiSslu olíu á vatni
Innan þriggja vikna eftir að olíu-
flutningaskipið „Torrey Canyon“
brotnaði á rifi undan Cornwall-strönd
í Bretlandi í marzmánuði síðastliðn-
um, hafði bandarískur framleiðandi
afskipað 6100 metrum af plastgirð-
ingu til þess að verja enskar hafnir
og strandlengjur fyrir hinni gífur-
legu brák á sjónum.
Girðingin er nefnd „Slickbar“ og
er gerð af polyethylene-svuntu, sem
nær 16 cm niður fyrir vatnsyfirborð-
ið. Henni er haldið lóðréttri, flot-
holtum úr frauðefnum við efri brún
svuntunnar, en blýsökkum í neðri
brún hennar. Flotholtin eru 2,75 m
löng hvert og fest við svuntuna með
polyethylene-böndum, sem lokað er
með ryðfríum stálboltum og róm.
Girðinguna má hafa eins langa og
þurfa þykir með því að tengja saman
153 m lengdareiningar. Þegar hún er
ekki í notkun, má brjóta hana saman
í 3 metra lengdir til geymslu.
Ein 76 m lengdareining með 10
cm flotholtum að þvermáli vegur
aðeins 45 kg og rennur greitt út við
lagningu.
Aður en „Torrey Canyon“-slysið
bar að, höfðu þessar girðingar aðal-
lega verið notaðar kringum skipa-
kvíar til þess að hindra olíumengun
vegna leka eða úrgangs. Plastgirð-
ingarnar eru framleiddar af Neirad
Industries, Inc., Saugatuck, Conn.,
U.S.A.
Ur „World Industrial Reporter", apr. 1967.
Gathöggvari meö hand-
örmum gefur 7,5 tonna kraft
Þessi kraftmikli hand-gathöggvari
hefur fjarlægjanlega pípuarma, svo
að auðvelt er að geyrna hann í verk-
færakassa. Hann framleiðir 7,5 tonna
kraft með gíri og hjámiðja hjólbún-
aði. Þetta gerir mögulegt að höggva
allt að 15 mm göt í 3,6 mm þykkt
smíðastál eða allt að 9,5 mm göt í
6,4 mm þykkt smíðastál.
Gathöggvarinn er gerður af sér-
hertu stáli og slitfletir hitahertir.
Með honum fylgir höggvari og
mót og einnig styllilykill.
Framleiðandi er W. A. Whitney
Mfg. Co., Rockford, 111., U.S.A.
Úr „World Industrial Reporter“, febr. 1967.
Merkipenni með 12 litum
Nýr kúlumerkipenni, sem nota má
til að merkja málma, tré, plast og
gler, er kominn á markað. Merki-
penninn hefur ógegnsætt hlek í 12
óafmáanlegum litum, sem ekki flagna
af eða dofna, jafnvel við óhagstæð
veðurskilyrði. Blekfyllingin er 15 cm
löng og með henni má fá þrjár gerðir
kúlustúta fyrir þrjár línubreiddir.
Fáanlegir bleklitir eru: Svart, hvítt,
gult, appelsínugult, rautt, grænt, blátt,
purjrurarautt, brúnt, ljósbrúnt, grátt
og ljósrautt.
Framleiðandi er John P. Nissen,
Jr. Co„ Glenside, Pensylvania, U.S.A.
Úr „World Industrial Reporter", apr. 1967.
IÐNAÐARMÁL