Iðnaðarmál - 01.04.1967, Síða 37
Nýtt ferðarafsuöutæki,
vegur aðeins 26 kg
Með því að nota nýjan og óháðan
afriSil var hægt aS minnka þyngd á
„gerS 170“ rafsuSutæki í aSeins 26
kg. AfriSillinn gerir einnig taugar ó-
þarfar.
Auk minni þyngdar hefur nýting-
arhæfni rafsuSutækisins aukizt um
50—70 af hundraði. BæSi rið- og
rakstraumur er fyrir hendi, þegar
tækið er í gangi. RafsuðutækiS hefur
riðstraumssuðusvið frá 40—170
amper. Tíðnin er 2880 rið/sek við
7200 snúninga rafals á mínútu. Bezti
gildleiki suðuvírs er 1,6—4 mm í
þvermál.
Framleiðandi er McCulloch Corp.
í Los Angeles, Californiu, U.S.A.
Ur „World Industrial Reporter", apr. 1967.
Aflskæri fyrir málma og
plastefni
Aflskæri 002EBH geta klippt
málmplötur, formica og önnur svip-
uð efni. Þau skera 4,6 m á mínútu
af 1,6 mm þykkri stálplötu. SkurS-
urinn getur verið beinn eða boginn
og skurðbrúnir hreinar. Urgangur
kemur úr í óslitnum lokk, og er auð-
velt að hreinsa hann burt.
Aflskærin vega 2 kg og eru gerð
fyrir 110 volta riðstraum, 50—60
riða. Straumnotkun er 3,5 amper og
skurðslög eru 2700 á mínútu.
Framleiðandi er Borg-Warner Int-
ernational, Chicago, 111., U.S.A.
Úr „World Industrial Reporter“, febr. 1967.
Verkfærakassi með 41 teg-
und afdráttarverkfæra
I þvingusamstæðu nr. CJ-1000-B
eru útskiptanlegir hlutir, sem setja
má saman og fá 41 mismunandi teg-
und afdráttarverkfæra. Sem nokkur
dæmi má nefna afdrátt gíra, reim-
hjóla, bremsuskála, öxla, stýrishjóla,
smurkoppa, lega o. fl. Þvingukraftur-
inn er fenginn með þrýstiskrúfu eða
rennihamri.
Framleiðandi er Snap-On Tools
Corp., Kenoska, Wisconsin, U.S.A.
Úr „World Industrial Reporter", febr. 1967.
Flytjanleg þrýstiloftsdæla
fyrir fljótandi eldsneyti
Flytjanleg þrýstiloftsdæla, nefnd
„Fullboy“, vinnur við lágan loft-
þrýsting, sem auðveldlega má fá frá
hemla- eða stýrikerfum flestra drátt-
arvagna, traktora og vegagerðarvéla.
„Fullboy“ getur dælt brennslu-
olíum, smurolíum, fljótandi áburði,
„Fullboy“ uppsettur á tunnu: 01: dœlu-
búnaSur, 02: inntaksslanga, 03: úttaks-
slanga, 04: loftslanga, 05: lofttempislanga
og 12: stútstýring.
úðunarvökvum og öðrum ekki
sprengifimum vökvum.
Allur útbúnaðurinn er gerður af
fimm aðalhlutum:
a) dælubúnaðurinn, sem fellur við
benzíntunnu, b) 0,7 m slöngu inni
í tunnunni, c) 4 m ytri slöngu, d)
afgreiðslustút og e) 6 m slöngu til
að tengja við þrýstigjafann. Vökva-
magnsmæli má fá aukalega.
„Fullboy“-dælan fæst í tveim
stærðum. Dælumagn minni gerðar-
innar er 45 lítrar á mín. af vatni og
dísilolíu, 24 lítrar á mín. af SAE 10
olíum og 8 lítrar á mín. af SAE 140
gírolíum. Samsvarandi afköst stærri
gerðarinnar eru 300, 200 og 70 lítrar
á mínútu. Meðalvinnuþrýstingur er
0,5 kg/cm2 (1,5 ata).
Upplýsingar veitir Industrie-Ver-
mittelung, Adelg. Wehefritz-Weigel,
4018 Langenfeld, Nordstr. 12A,
Þýzkalandi.
Úr „World Industrial Reporter", febr. 1967.
Nýjungar á næsta leiti
Þrýstilofts-flugbelti gera manni
fært að fljúga einn til tvo kílómetra.
Gert hefur veriö ljósastæði með
innbyggðum tafarbúnaði, svo að ljós-
ið lifir um hálfa mínútu eftir að mað-
ur styður á slökkvarann.
I Vestur-Þýzkalandi hefur verið
prófuð ný aðferð til að geyma raf-
orku. Afgangsorka er notuð til að
dæla þrýstilofti í gamlar, óvirkar
saltnámur. Þrýstiloftið er síðar leyst
úr læðingi til að knýja túrbínurafal.
iðnaðarmál
71