Frjáls verslun - 01.01.2005, Page 60
KYNNING60 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 5
H agvangur er stofnaður 1971 og er eitt elsta ráðgjafa-fyrirtæki landsins. Upphaf ráðningarþjónustunnar má rekja til ársins 1976, en áður hafði fyrirtækið starfað á sviði rekstrarráðgjafar. Hagvangur hefur frá upphafi
lagt áherslu á nýjungar í þjónustu og áreiðanleika í ráðningum og
ráðgjöf. Starfsmenn þess hafa unnið mikið brautryðjendastarf á
Íslandi og hefur fyrirtækið verið í fararbroddi hvað varðar starfsað-
ferðir, þróun og þjónustu. Pistilhöfundur hitti Katrínu S. Óladóttur,
framkvæmdastjóra Hagvangs, Albert Arnarson og Baldur G. Jóns-
son, ráðgjafa hjá Hagvangi.
Katrín segir að fyrsta flokks þjónusta og trúnaður gagnvart við-
skiptavinum fyrirtækisins sé leiðarljós fyrirtækisins. „Við erum að því
ég best veit eina ráðningarfyrirtækið sem er búið að fara í gegnum
úttekt hjá Persónuvernd. Niðurstöðurnar eru mjög jákvæðar fyrir
okkur, ekki síst hvað varðar meðferð trúnaðarupplýsinga. Þessi
úttekt og niðurstöður hennar skipta okkur miklu máli.“
Tíminn er dýrmætur – mistök eru dýr Hver er svo hagnaður fyrir-
tækis sem leitar til Hagvangs: „Hann er mikill. Hagnaðurinn felst
fyrst og fremst í því að eiga aðgang að sérþekkingu fagfólks. Það
eykur líkur á bestu mögulegu ráðningu hverju sinni og sparar tíma
og vinnu stjórnenda. Við þekkjum vinnumarkaðinn mjög vel og
starfsfólk okkar býr yfir sérþekkingu varðandi ráðningar og mann-
auðsstjórnun. Sérþekking Hagvangs er blanda af áralangri reynslu,
HAGVANGUR ER LEIÐANDI FYRIRTÆKI Í RÁÐNINGARÞJÓNUSTU
Aukin og fjölbreyttari
þjónusta við viðskiptavini
Starfsfólk Hagvangs. Talið frá vinstri: Guðný Sævinsdóttir, Baldur G. Jónsson, Ari Eyberg, Katrín S. Óladóttir, Rannveig Haraldsdóttir, Þórir Þorvarðarson,
Sesselja Sigurðardóttir og Albert Arnarson.