Frjáls verslun - 01.01.2005, Blaðsíða 67
F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 5 67
starf við hæfi. „Það er staðreynd að það er erfiðara að
aðlaga sig að samfélaginu ef maður getur ekki verið
þátttakandi að öllu leyti.“
Kunningjaþjóðfélagið á Íslandi En er til í dæminu
að kunningsskapur og skyldleiki ráði enn úrslitum á
íslenskum vinnumarkaði? Guðný telur það af og frá.
„Menn leita til ráðningarþjónustu einmitt til að forðast
persónuleg tengsl. Tengslamyndun á sér auðvitað alltaf
stað einhvers staðar, en hún hefur minnkað til muna á
undanförnum árum. Ég held að það sé undantekning í
dag að fólk sé ráðið í störf vegna kunningsskapar.“
Einar hefur hins vegar aðra sögu að segja. „Ég held
að á Íslandi sé kunningjaþjóðfélagið ennþá svolítið
ríkjandi. Persónuleg tengsl og orðspor virðast skipta
máli. Íslendingar kunna því til dæmis vel að geta
hringt til einhvers sem þeir þekkja til að fá meðmæli.“
Hann segist muna eftir tilfellum þar sem erlendum
ríkis borgurum hafi ekki fundist þeir hafa fengið verð-
skuldað tækifæri til að sanna sig. „En ég held að
ástandið sé að batna og aukin útrás íslenskra fyrir-
tækja hefur sitt að segja. Ég held því að atvinnulífið sé
að breytast mjög mikið og verða fjölmenningarlegra.“
Sérhæfðu störfin frátekin fyrir Íslendinga? Í janúar
kom út skýrsla sem Félagsvísindastofnun Háskóla
Íslands vann um viðhorf og aðstæður innflytjenda á
Austurlandi og Vestfjörðum. Einn kafli er tileinkaður
atvinnumálum og þar kemur meðal annars fram að af
þeim 50% svarenda sem vinna ósérhæfð störf á Íslandi
unnu einungis 8% ósérhæfð störf í heimalandi sínu. Af
þeim sem störfuðu sem sérfræðingar í heimalandi sínu
vinnur fjórði hver ósérhæft starf hér á landi, einungis
1% af þeim 13% svarenda sem vann sérhæfð störf eða
tæknistörf í heimalandi sínu er í sambærilegu starfi
hér og aðeins annar hver stjórnandi fær stjórnunar-
starf á Íslandi, svo dæmi séu tekin. Þó að könnunin
nái aðeins til afmarkaðra svæða virðist hún benda til
þess að innflytjendur vinni fyrst og fremst ósérhæfð
störf hér á landi.
Ådne Skjelstad, 26 ára Norðmaður:
Eftir níu mánaða leit
hljóp loksins á snærið!
Å
dne Skjelstad er 26 ára gamall Norðmaður með mastersgráðu í við-
skiptatengdri iðnaðarverkfræði, nánar tiltekið Industrial Economics
and Technology Management, eins og það heitir á ensku. Hann hefur
búið hér á landi frá því í maí í fyrra og hefur sótt um hátt í 50 störf. Hann
fékk yfirleitt jákvæð viðbrögð – en því miður enga vinna. Það var svo fyrir
nokkrum dögum að leit hans bar loks árangur. Hann fékk vinnu í Íslands-
banka.
„Ég gerði svo til allt sem mér datt í hug,“ segir Adne. „Ég sótti um
auglýst störf, skráði mig hjá ráðningarskrifstofum, hafði samband beint
við fyrirtæki og einnig reyndi ég að spyrjast fyrir í gegnum vini og vanda-
menn þar sem því var við komið. Viðbrögðin voru iðulega mjög góð, fólk
var bæði áhugasamt og jákvætt í minn garð – en vinnuna vantaði. Loksins
hljóp svo á snærið hjá mér fyrir nokkrum dögum þegar ég fékk vinnu í
Íslandsbanka. Þá var ég raunar orðinn úrkula vonar.“
Ådne telur sennilegt að það hafi lengst af sett strik í reikninginn að
menntun hans sé ekki þekkt á íslenskum vinnumarkaði. „Menntun mín
spannar mjög breitt svið og fólk með þessa menntun er eftirsótt í mörgum
ólíkum starfsgreinum erlendis. Þrátt fyrir það virðist svo vera sem hér falli
hún mitt á milli tveggja sviða og þyki hvorki fullnægjandi fyrir verkfræði-
tengd störf né viðskipti. Tilgangurinn með því að blanda þessu saman er
hins vegar einmitt að skapa tengsl á milli þessara ólíku greina. Maður með
þessa menntun skilur hvernig verkfræðingur hugsar, en hann skilur einnig
hvernig viðskiptafræðingur hugsar.“
Ådne nam íslensku í sumarskóla Námsflokka Reykjavíkur og hefur náð
ágætum tökum á málinu. „Til að byrja með óttaðist ég að tungumálið yrði
mér fjötur um fót. En hvert sem ég fer keppist fólk við að fullvissa mig
um að það sé í raun alger óþarfi að tala íslensku og að enska sé fullkom-
lega gjaldgengt samskiptamál á vinnumarkaðnum.“ Ådne finnst þó sjálfum
mikil vægt að læra málið betur til að komast almennilega inn í samfélagið
og segir Íslendinga gleðjast yfir því þegar útlendingar spreyta sig á málinu.
Ådne fluttist til Íslands daginn eftir að hann útskrifaðist og hér kann
hann afar vel við sig. Hann er í sambúð með íslenskri konu og á með henni
litla dóttur. Hann segir það skipta sig miklu máli að hafa
fengið hér vinnu því hér vilji hann búa og ala dóttur
sína upp. „Það er hins vegar slæmt ef það líður of
langur tími frá útskrift þar til fólk fær sitt fyrsta
starf. Ég var búinn að sækja um á yfir 50 stöðum
frá því í maí í fyrra áður en ég fékk starfið hjá
Íslandsbanka. Ég var að verða úrkula vonar um
að fá hér starf og var farinn að íhuga það alvarlega
að sækja um í Noregi. En ég hefði aldrei litið öðru
vísi á það en sem tímabundna lausn og leið til að afla
mér starfsreynslu áður en ég reyndi aftur fyrir mér
á íslenskum vinnumarkaði. Hér vilja búa með
íslenskri konu minni og dóttur.“
Ådne Skjelstad, vel menntaður 26 ára
Norðmaður. Eftir að hafa árangurslaust leitað
að vinnu í níu mánuði hljóp loksins á snærið
hjá honum fyrir nokkrum dögum.
Ådne Skjelstad, 26 ára Norðmaður:
EFTIR NÍU MÁNUÐI HLJÓP
LOKSINS Á SNÆRIÐInnflytjendum hefur fjölgað verulega á íslenskum
vinnumarkaði. Árið 1997
voru þeir 1,8% af íslensku
vinnuafli en árið 2002 voru
þeir orðnir 3,9%.