Frjáls verslun - 01.01.2005, Síða 78
78 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 5
F
yrsta lotan mín sem fréttastjóri á
Stöð 2 varði í tæp fimm ár, eða þar
til ég tók við sem sjónvarpsstjóri af
Þorvarði Elíassyni 1991. Það gekk
á ýmsu í eigendahópi Stöðvar 2 á
þeim tíma eins og reyndar yfirleitt.
Síðan gerist það sumarið 1994 að þáverandi
meirihluti í eigendahópi Stöðvar 2 lendir
undir, eftir að Sigurjón Sighvatsson yfirgefur
þann hóp og gengur til liðs við Jón Ólafsson.
Þá voru deilur orðnar svo hatrammar og
leiðinlegar að þær voru að setja allt fyrir-
tækið á hliðina. Á þessum tíma var mér ólíft í
starfi sjónvarpsstjóra, gat ekki gengið neinn
línudans þarna á milli. Annaðhvort var ég
vinur eða óvinur í augum eigendanna. Ég
tók þann kost að taka hatt minn og staf og
gekk út úr fyrirtækinu sumarið 1994, fór í
sjálfskipaða útlegð.“
Veturinn 1994 aðstoðaði Páll við að koma
á fót nýju vikublaði, Morgunpóstinum. Blað-
inu tengdust sumir af fyrri eigendum Stöðvar
2 sem hann hafði kynnst áður. Þar var hann
m.a. samferða Gunnari Smára Egilssyni.
Sumarið 1995 var Páll ráðinn til að koma Sýn
á laggirnar sem sjónvarpsstöð. „Ég kom Sýn
á laggirnar sem þeirri íþróttastöð sem hún er
í dag. Samdi um sýningarrétt á meistaradeild
Evrópu og fleira efni af því tagi. Þegar svo
Sýn var komin í fastar skorður haustið 1996
var ég beðinn að taka aftur við fréttastofunni
- tók þá við af Elínu Hirst. Var síðan frétta-
stjóri til haustsins 2000, þegar ég gerði hlé
á þessu fjölmiðlaharki og fór til Íslenskrar
erfðagreiningar í þrjú ár.“
Undirmaður sjálfs síns „Í ársbyrjun 2004
var ég beðinn að koma aftur til Íslenska
útvarpsfélagsins eða Stöðvar tvö, þá sem
framkvæmdastjóri dagskrársviðs útvarpsfé-
lagsins. Síðan urðu breytingar hjá fyrirtæk-
inu aftur í nóvember 2004 sem m.a. fólust í
því að gera miðlana sem sjálfstæðasta hvern
fyrir sig. Ég tók þá við sem sjónvarpsstjóri
Stöðvar 2 að því viðbættu að ég tók að mér
fréttastjórastarfið eftir að Sigríður Árnadóttir
hætti í ársbyrjun 2005. Það má því segja að
ég sé nú að einhverju leyti undirmaður sjálfs
míns þar sem fréttastjórinn heyrir undir
sjónvarpsstjórann.“
Hver er ástæðan fyrir tíðum fréttastjóra-
skiptum á Stöð 2?
„Ég held að nokkuð ör skipti á frétta-
stjórum stöðvarinnar þurfi ekki að vera neitt
óeðlileg í sjálfu sér, þótt þetta sé nú kannski
fullmikið. Það eru gerðar miklar kröfur til
þeirra sem gegna þessu starfi. Ætli það
megi ekki segja að þetta starf sé t.d. skylt
því að vera eins og hjá þjálfara fótboltaliðs.
Þar eru menn kallaðir til ábyrgðar, eftir því
hvernig gengur og það sama á við um frétta-
stjóra. Það eru sex einstaklingar sem gegnt
hafa starfi fréttastjóra á Stöð 2 á tæplega 20
árum. Þar af hef ég verið fréttastjóri tæplega
helminginn eða í samtals 9 ár. Þetta eru nú
engin ósköp.“
Lífið er samansafn af tilviljunum
Nú er þetta þriðja fréttastjóratímabilið hjá
þér. Hvers vegna kemur þú alltaf aftur?
„Ég bara veit það ekki, þetta eru tómar
tilviljanir. Ég hef tvisvar sinnum hætt í þessu
starfi, í hvorugt skiptið var það undir þeim
formerkjum að ég ætti eftir að koma aftur.
Þetta hefur bara einhvern veginn æxlast
Páll Magnússon, sjónvarpsstjóri Stöðvar 2 og fréttastjóri stöðvarinnar. „ Það er miklu betra fyrir fréttastofu ef stjórnmálamenn hallmæla henni en hæla.“