Frjáls verslun - 01.01.2005, Síða 112
112 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 5
RÁÐSTEFNUR OG FUNDIR
ÍS
L
E
N
S
K
A
A
U
G
L
†
S
IN
G
A
S
T
O
F
A
N
/S
IA
.I
S
1
/2
0
0
4
JÁ, VIÐ ERUM
GAMALDAGS
ef það er gamaldags
að standa við gefin loforð
Hjá Gutenberg er nýjasta tækni sjálf-sagður hlutur – en ekki aðalatriði. Aðalatriðin
verða alltaf þau sömu; traust, sveigjanleiki og fagmennska. Engin tækni kemur í
staðinn fyrir það að standa við gefin loforð. Það er þessi hugsun og metnaður
starfsfólksins sem tryggt hefur Gutenberg sæti meðal fremstu prentsmiðja landsins í
100 ár. Á morgun fögnum við nýjum degi og nýjum verkefnum með þessu sama
„gamaldags“ hugarfari.
ÍS
L
E
N
S
K
A
A
U
G
L
†
S
IN
G
A
S
T
O
F
A
N
/S
IA
.I
S
G
U
T
2
3
2
7
0
1
2
/2
0
0
3
Síðumúla 16 Sími 545 4400
gutenberg.is
Oft þarf hraðann á við prentun ráðstefnugagna sem yfirleitt eru ekki heldur prentuð í ýkja stóru
upplagi. Við slíkar kringumstæður er
stafræn prentun ákjósanlegur kostur,
enda fara saman hraði og hagstætt verð.
Sömuleiðis býður stafræna prentunin
upp á að prentgripirnir séu merktir pers-
ónulega hverjum viðtakenda – og getur
hitt í mark í beinni markaðssetningu.
Prentsmiðjan Gutenberg er velþekkt
fyrir að vinna hlutina bæði fljótt og vel, sem á ekki síst við um staf-
ræna prentun sem er vaxandi þáttur í starfseminni.
Tilbúið síðdegis „Okkur var í gær sendur prentgripur umbrotinn og
tilbúinn, sem prenta skyldi í 400 eintökum. Þetta var ekkert mál,
við rúlluðum þessu í gegn á tveimur tímum. Í morgun hringdi þessi
sami viðskiptavinur svo aftur til okkar og sagðist þurfa 1.300 eintök
í viðbót. Við því var auðvelt að bregðast, við settum prentun strax af
stað aftur og ljúkum henni núna síðdegis. Þetta er gert í snarti. Í off-
setprentun tekur ferlið hins vegar mun lengri tíma og möguleikinn á
ýmiss konar sérmerkingum á prentgripina er ekki fyrir hendi,“ segir
Bjarni Brynjólfsson, verkstjóri í stafrænu deildinni hjá Gutenberg.
Ýmiss konar smáprent segir hann raunar einboðið að fari í stafræna
prentun; til dæmis nafnspjöld, dreifibréf, kynningapésar, auglýsinga-
borðar og fleira slíkt.
Gjarnan eru textar og myndir send um Netið í Gutenberg, þar
sem efnið er brotið um og búið til prentunar á skömmum tíma.
Oftast er hægt prenta og ganga frá bókbandi samdægurs.
„Stafræn prentun ráðstefnugagna verður æ umfangsmeiri hjá
okkur, en einnig eru skólarnir að koma sterkar inn. Fyrir til dæmis
námskeið í háskólanum er tekið saman námsefni og sett í bók, sem
prenta þarf í einhverjum tugum eintaka fyrir ákveðið námskeið. Ef
til vill verða svo nemendur þess fleiri en séð var fyrir – og þá er lítið
mál að prenta nokkur eintök í viðbót,“ segir Bjarni – og bætir við
að með nýjum tækjabúnaði í prentsmiðjunni muni bókband ganga
hraðar fyrir sig.
E-póstur eykst Svonefndur e-póstur er vaxandi þáttur í stafrænni
prentun Gutenbergs, en það er prentun hvers konar reikninga. Hjá
stærri stofnunum og fyrirtækjum færist í vöxt að viðskiptareikn-
ingar séu sendir netleiðis á sérstakri línu til prentsmiðju, þar sem
þeir eru prentaðir út. Gutenberg hefur í e-póstdeildinni prentara sem
afkastar allt að 195 blaðsíðum á mínútu. Hægt er að prenta öðrum
eða báðum megin á blaðið og raða saman allt að fimm mismunandi
eyðublöðum sem raðast saman í mismunandi fjölda í bréf. Hægt er
að prenta texta hvar sem er á blaðið og jafna hann hvernig sem er
og einnig einfalda grafík.
„Þessi prentun er í sérstöku rými hér í prentsmiðjunni og að
henni er takmarkaður aðgangur, sem er mikilvægt, enda er hér verið
að meðhöndla viðkvæmar persónuupplýsingar. Á einum og sama
staðnum eru reikningar prentaðir og lagðir í umslög, sem fara svo
héðan beint á pósthús,“ segir Bjarni.
Vita hvað er best En þrátt fyrir að möguleikar í prentun séu margir
leggur Bjarni Brynjólfsson samt áherslu á að viðskiptavinir leiti
áður upplýsinga hjá sölu- og prentráðgjöfum Gutenbergs. Af langri
reynslu þekki þeir hvað henti best og sé ódýrast í hverju tilviki um
sig; stafræn prentun eða offset. Sé til dæmis verið að prenta árs-
skýrslu fyrirtækis geti hugsanlega borgað sig að prenta skýrsluna
sjálfa í stafrænu – en kápuna í offset. Allt séu þetta atriði sem vega
þurfi og meta í hverju tilviki um sig.
Bjarni Brynjólfsson segir að hjá Gutenberg þyki sjálfsagður
hlutur að vera alltaf með það nýjasta í prenttækninni, en fjarri lagi
sé að slíkt sé aðalatriði. Mestu skipti að standa undir væntingum
viðskiptavinanna og mæta þörfum þeirra bæði fljótt og vel. Ný tækni
geri þetta sífellt betur mögulegt, en mestu skipti þó vel þjálfað starfs-
fólk sem getur leyst fram úr hverju viðfangsefni.
Stafrænar prent-
lausnir í snatri
GUTENBERG
„Stafræn prentun ráðstefnugagna verður æ umfangsmeiri
hjá okkur,“ segir Bjarni Brynjólfsson hjá Gutenberg.
Ráðstefnugögn eru
oft prentuð í litlu
upplagi og hlutirnir
þurfa að gerast fljótt.
Stafræn prentun hjá
Gutenberg er
þá góður kostur.