Frjáls verslun - 01.10.2005, Qupperneq 28
28 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 5
S T J Ó R N U N
MIKAEL SKOGSBERG,
DHL
Mikael Skogsberg er nýtekinn við sem forstjóri hrað-
flutningafyrirtækisins DHL á Íslandi. Mikael, sem er
Svíi, hefur enn ekki mikla reynslu af vinnuháttum
Íslendinga þar sem hann hefur ekki verið lengi í starfi.
Mikael tók við starfinu í nóvember og er bjartsýnn á
samvinnuna við Íslendinga.
-Hvaða hugmyndir hefur þú um íslenskt
vinnusiðferði?
,,Það er í rauninni of snemmt fyrir mig að dæma um
það eftir svo stuttan tíma. Hins vegar á ég von á því
að vinnuhættir hér á landi séu á svipuðu róli og annars
staðar á Norðurlöndunum. Við fyrstu sýn eru Íslend-
ingar hörkuduglegir og skorast ekki undan því að
vinna langan vinnudag.“
-Hvernig leggst nýja starfið í þig?
,,Bara mjög vel og ég hlakka til að vinna með Íslend-
ingum.“
JAKUP JACKOBSEN,
RÚMFATALAGERNUM
Færeyingurinn Jakup Jackobsen er forstjóri Rúmfata-
lagersins. Hann hefur umtalsverða reynslu af íslensku
atvinnulífi enda verið hér á landi í 18 ár og talar ljóm-
andi góða íslensku. Hann er ekki spar á lofið:
,,Íslendingar eru mjög vinnusamir. Þeir eru líka mjög
opnir og viðræðugóðir, það er aldeilis ekki fýlunni fyrir
að fara hjá þeim. Íslendingar eru sveigjanlegir og blátt
áfram sem eru afar góðir kostir og koma sér einkar vel
þegar ræða þarf málin eða lagfæra eitthvað sem betur
mætti fara.“
HOLGER SÖE JENSEN,
HÖRPU-FLÜGGER
Holger Söe Jensen hefur starfað sem forstjóri Hörpu-
Flügger í tæpt ár og segist hafa góða reynslu af
Íslendingum til vinnu:
„Ég kann virkilega vel að meta bæði
starfshætti og staka vinnusemi Íslend-
inga. Þótt þeir séu einstakir í sinni röð
þá eru Íslendingar mjög líkir öðrum
Norðurlandabúum. Þeir eru hörkudug-
legir og léttir í lund, samningagóðir
og skemmtilegir.“
Svíinn Mikael Skogsberg,
forstjóri DHL á Íslandi,
175. stærsta fyrirtækis
landsins.
Holger Söe Jensen, forstjóri
Hörpu- Flügger (nú Flügger lita).
Michael F. Hassing er
annar tveggja forstjóra
Samskipa. Hann starfar
erlendis.