Frjáls verslun - 01.10.2005, Page 35
F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 5 35
S
kömmu áður en leigubíllinn kom að sendiherrabú-
stað Íslendinga í Kalorama, diplómatahverfinu í Was-
hington DC, var ekið fram hjá svörtum jeppa með
dökkum rúðum. Hann var kyrrstæður og í honum
mátti sjá tvo menn sem fylgdust grannt með öllum
mannaferðum. Húsið, sem jeppinn stóð fyrir utan, var hús Don-
alds Rumsfelds, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. Þar er
vörður allan sólarhringinn.
Við þessa sýn varð manni ósjálfrátt hugsað til þess hvað
heimurinn hefur breyst mikið á skömmum tíma. Það er ekki
lengur „saklaust“ kalt stríð sem skekur heiminn - núna er ógnin
frá hryðjuverkamönnum raunveruleg hvunndags.
Leigubíllinn dólaði áfram í tæpar tvær mínútur áður en hann
staðnæmdist fyrir utan íslenska sendiherrabústaðinn, fallegt og
virðulegt hús sem keypt var í sendiherratíð Péturs J. Thorsteins-
sonar árið 1965.
„Gjörið svo vel og gangið í bæinn,“ sögðu sendiherrahjónin
Helgi Ágústsson og Hervör Jónasdóttir að góðum íslenskum sið.
Á augabragði vorum við komin heim til Íslands. Stundin varð
skyndilega ekta íslenskt síðdegiskaffi, skemmtilegt spjall - með
hlátrasköllum inni á milli.
Fas Helga er rólegt og yfirvegað og hann hefur afslappaða
nærveru. Hann er engu að síður nokkuð formlegur, að sið
diplómata. Hann á mjög auðvelt með að skipta um gír, færa
sig úr alvarlegum málum yfir á léttari nótur. Hann er sagnakarl,
kann margar sögur. Það á við um þau bæði, hjónin. Þau Heba,
eins og Hervör er jafnan kölluð, hafa búið saman í bráðum fjöru-
tíu og fjögur ár, börnin eru fjögur og barnabörnin sextán.
Helgi er 64 ára, lögfræðingur að mennt, fæddur 16. október
1941. Hann er löngu þekktur í íslensku samfélagi fyrir störf
sín í utanríkisþjónustunni til 35 ára - sem og úr heimi íþrótt-
anna. Nafn hans komst fyrst á kortið í utanríkisþjónustunni í
báðum þorskastríðunum á áttunda áratugnum þegar hann var
sendiráðunautur í London og annaðist samskipti við breska
blaðamenn.
Störf hans í utanríkisþjónustunni hafa verið mörg og marg-
vísleg. Sendifulltrúi, sendiráðunautur, skrifstofustjóri, formaður
varnarmálanefndar, ráðuneytisstjóri, sendiherra í London,
Kaupmannahöfn og Washington DC - auk setu í fjölmörgum
nefndum, oftast sem formaður.
Mikill KR-ingur
„Mér er sagt, Helgi, að eini gallinn við þig sé sá að þú ert KR-
ingur,“ dengi ég á hann sem sannur Framari þegar við tyllum
okkur. Hann hlær og svarar að bragði að það sé líklegast einn
sinn helsti kostur að vera KR-ingur.
Hann bregður þó strax fyrir sig góðum siðum diplómatsins,
hefur prótókolið á hreinu og segist hafa leikið sér sem gutti
á gamla Framvellinum við Stýrimannaskólann og eigi þaðan
góðar minningar og hugsi hlýtt til félagsins þó aldrei hafi hann
náð því að verða Framari.
KEPPNIS
MAÐURINN
HELGI
Hjónin Helgi Ágústsson, sendiherra Íslands í Washington DC
og Hervör Jónasdóttir, Heba. Glæsilegir fulltrúar Íslands vestanhafs.