Frjáls verslun - 01.10.2005, Qupperneq 46
46 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 5
tæki í eigu þriðja ættliðarins, kannski fólks sem
hefur aflað sér góðrar háskólamenntunar og hefur
löngun til þess að starfa við eitthvað allt annað en
sölu á iðnaðarvörum. Við erum því að koma inn í
rekstur þarna ytra á besta tíma,“ segir Hermann.
Nú á síðari hluta ársins hefur Bílanaust keypt
þrjú fyrirtæki í Bretlandi. Þau verða öll rekin
undir nafninu AT Toolcenter Ltd. og eru höf-
uðstöðvarnar í Northampton, í Mið-Englandi.
Kaupin á þessum þremur fyrirtækjum eru, að
sögn Hermanns, aðeins upptaktur að öðru og
meira.
„Núna erum við komnir með ákveðnar
grunneiningu ytra; það er vöruhús, dreifikerfi
og verslanir sem við þurfum að nýta enn
betur. Stefnum því að kaupum á tveimur til
þremur fyrirtækjum til viðbótar sem eru í
sambærilegum rekstri. Í raun eru þetta alveg
sömu kringumstæður og þær sem leiddu til
þess að við jukum umsvifin í rekstrinum hér heima;
það er að nýta fjárfestingar betur. Reksturinn í Bret-
landi styrkir okkur líka hér heima. Erum í krafti
rekstrar okkar ytra að ná hagstæðari innkaupum
en við höfum áður gert,“ segir Hermann sem kveðst
ánægður með hvernig öll mál hafi þróast.
Fjárfest fyrir 2,5 milljarða króna
Á þessu ári verður velta Bílanausts 4,3 milljarðar
króna, þar sem lætur nærri að hver þriggja sneiða
í kökunni sé ámóta stór. Velta í dekkjageiranum
verður um 1,5 milljarðar og sala á vörum og vara-
hlutum í bíla, sem er best þekkti þáttur starfsemi
Bílanausts, er viðlíka. Reksturinn í Bretlandi veltir
1,3 milljarði króna.
„Bílanaust er gamaldags verslunarfyrirtæki
með sterkan undirliggjandi rekstur og gott
tekjustreymi. Í Bretlandi þykir ekkert sérstak-
lega flott að reka fyrirtæki sem sérhæfa sig í
iðnaðarvörum. Við viljum hins vegar gjarnan
kaupa slík fyrirtæki og erum mjög kátir ef þau
eru í 7 til 10% vexti á ári, svo fremi að hann sé
arðbær. Við höfum ekkert endilega áhuga á fyr-
irtækjum sem vaxa þetta 20 til 50% á ári.“
Stundum er sagt að sterk bein þurfi til þess
að þola góða daga og að rekstur fyrirtækja sé
vandasamari en ella sé vöxtur þeirra ör. Þannig
velti Bílanaust 900 milljónum króna árið 2001 en
nú er ársveltan komin nokkuð á fimmta milljarð.
Markmið næstu þriggja ára er veltuaukning í sex
til sjö milljarða króna og samkvæmt því er starfað.
Alls nema fjárfestingar Bílanausts á þessu ári 2,5
milljörðum króna og þar eru undir eigið fé, lán og í
þriðja lagi hefur fjár verið aflað með sölu eigna.
Gott samstarfsfólk mikilvægt
Í dag eru starfsmenn Bílanausts hér heima um 170
og rúmlega áttatíu í Bretlandi. Hermann Guðmunds-
son segir að við þessar kringumstæður skipti öllu
að stjórnandinn sjái heildarmyndina og kunni að
útdeila verkefnum. „Ég sjálfur kemst ekki yfir nema
ákveðin verkefni, öllu skiptir að velja sér gott sam-
starfsfólk og gefa því ákveðið frjálsræði. Við höfum
hér öfluga millistjórnendur sem síðan deila verk-
efnum til deildarstjóra. Með svona verkaskiptingu
gengur þetta upp,“ segir Hermann.
Allir starfsmenn Bílanausts í Bretlandi, það er
dótturfyrirtækisins AT Toolcenter Ltd., eru þar-
lendir. „Við höfum mjög öflugan mann sem stýrir
rekstrinum í Bretlandi og höfum gefið honum
frjálsar hendur, samkvæmt þeirri stefnu sem við
höfum mótað hér heima. Nokkurn tíma hefur tekið
að fá Bretana til að ganga í sama takt og við Íslend-
ingar, sem förum þrefalt hraðar í hlutina. Við tökum
ákvörðun í dag, framkvæmum á morgun og krefj-
umst árangurs þriðja daginn. Í Bretlandi eru menn
ekki innstilltir á svona vinnubrögð og þar finn ég
líka fyrir mikilli stéttaskiptingu. Þá múra viljum við
brjóta niður og blása mönnum kapp í kinn svo hlutir
gangi greiðar fyrir sig.“
Haldið á Höfðann
Um mitt þetta ár flutti Bílanaust starfsemina í nýjar
höfuðstöðvar við Bíldshöfða í Reykjavík, þar sem
Hampiðjan var áður til húsa. Flutningarnir á Höfð-
ann áttu sér alllangan aðdraganda. Matthías Helga-
son og fjölskylda hans, stofnendur Bílanausts, seldu
fyrirtækið árið 1999 en héldu húseigninni við Borgar-
tún eftir og leigðu nýjum eigendum til fimm ára.
„Snemma á árinu 2004 fórum við að skoða hús-
næðismál og höfðum fyrst augastað á IKEA-húsinu
við Holtagarða, þar sem skrifstofur Samskipa voru.
En skömmu áður en samningar um það húsnæði
voru undirritaðir bauðst okkur að kaupa Hampiðju-
húsið og eftir nokkra skoðun slógum við til. Þetta
hús er 10.000 fermetrar og að vera í svona rúmgóðu
húsi hefur verið okkur algjör vítamínsprauta. Við
sáum ýmsa kosti felast í því, ekki síst að borgin
byggist í austur og hér erum við í námunda við
mörg önnur fyrirtæki í bílgreininni. Staðsetning
verslana okkar í Kópavogi, Hafnarfirði, á Akur-
Á þessu ári verður velta
Bílanausts 4,3 milljarðar
króna. Dekkjasalan verður
um 1,5 milljarðar, sala á
vörum og varahlutum í bíla
verður um 1,5 milljarðar.
Reksturinn í Bretlandi
veltir 1,3 milljarði króna.
Ú T R Á S B Í L A N A U S T S
„Hjólbarðar eru áhuga-
verður markaður með um
þriggja milljarða króna
heildarveltu á ári. Nú höf-
um við náð þarna um 40%
hlutdeild á markaðnum.“