Frjáls verslun - 01.10.2005, Qupperneq 53
F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 5 53
Lífshættir þeirra voru þotustíllinn, grímu-
ball í Feneyjum einn daginn og ball í New
York þann næsta, glæsiíbúð á Manhattan
- sem Black hafði reyndar keypt af Hollinger
á svo góðu verði að bandarísk yfirvöld gerðu
9 milljónir dala upptækar til að leiðrétta þau
kaup þegar Black seldi hana nýlega, 11 her-
bergja híbýli í Kensington sem hann hefur
nú selt en þótti á sínum tíma einhver mesta
glæsivistarvera borgarinnar.
Eina húseignin sem hann á eftir er slot á
Palm Beach á Flórída, metið á 36 milljónir
dala, en hana reyna bandarísk yfirvöld nú
að leggja hald sitt á. Um þá aðgerð hefur
lögfræðingur Blacks sagt að þar með sé
verið að gera Black ómögulegt að verja sig,
hliðstætt því að Davíð væri sviptur slöngu-
vaðnum í baráttunni við Golíat.
Þegar Black stóð til boða að taka við
breskum lávarðatitli 1999 voru góð ráð dýr.
Jean Chretien, þáverandi forsætisráðherra
Kanada, sem var af vinstrivængnum og þar
með undir stöðugri gagnrýni Black-blað-
anna, úttalaði sig harkalega - kanadískum
þegnum er nefnilega bannað að taka við
erlendum titlum af þessu tagi. Black fór
í mál til að láta reyna á lögin, tapaði því
2001, lét þá kanadíska ríkisborgararéttinn
róa og gerðist lávarðurinn af Coldharbour.
Það fylgir titlinum að kenna sig við stað og
Black valdi lestarstöð rétt hjá höfuðstöðvum
Telegraph - sem væri sambærilegt því að
ritstjóri DV hefði á sínum tíma orðið lávarð-
urinn af Hlemmi.
Black hefur skrifað þrjár bækur Black
hefur einnig skrifað þrjár bækur, fyrst
sjálfsævisöguna sem kom út 1993 þegar
hann var 49 ára. Síðan hefur hann skrifað
bók um kanadískan stjórnmálamann og svo
1200 blaðsíðna ævisögu Franklin D. Roose_
velts Bandaríkjaforseta, sem kom út 2003,
þegar klögu- og kærumálin voru komin á
fulla ferð. Black lét það þó ekki á sig fá,
heldur kom ótrauður fram til að kynna bók-
ina og árita í bókabúðum.
Skipulegt þjófræði Það voru ekki ófáir
sem sáu ástæðu til að kanna nánar stjórnar-
hætti Blacks og félaga hans eftir að Tweedy
Browne gerði athugasemdir við þá. Eftir
að Hollinger hafði gert úttekt á greiðslum
til Blacks, David Radlers, hins 63 ára fram-
kvæmdastjóra Hollingers og nokkurra ann-
arra stjórnenda kom fyrst í ljós að þeir
höfðu fengið 32 milljónir sem metið var að
væru án samþykktar.
Black sagði greiðslurnar með öllu eðli-
legar, tilkynnti að hann hætti sem forstjóri
en héldi stjórnarformennskunni. Sú staða
BLACK FYRIR DÓMSTÓLA
Nú er Black aftur forsíðu-
efni því saksóknari í Norð-
ur-Illinois hefur lagt fram
ákæru upp á 80 milljónir
dala á hendur Blacks.
L U N D Ú N A P I S T I L L S I G R Ú N A R