Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2005, Síða 59

Frjáls verslun - 01.10.2005, Síða 59
F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 5 59 verða kvikmynduð undir leikstjórn Baltasar Kormáks. Slík framleiðsla gæti kostað á bilinu 150 til 200 milljónir og skapað fjölda manns vinnu. Heimildarmaður Frjálsrar verslunar telur að Arnaldur fái þó í mesta lagi 3 milljónir króna fyrir höfundarréttinn. Vinsæll víða Það eru ekki mörg ár síðan íslenskar glæpa- sögur þóttu í besta falli ótrúverðugar og í versta falli hallærislegar og það þarf vart að taka fram að þær seldust illa. En í þessum málum hefur orðið alger bylting og bækur Arnaldar um lögreglumanninn Erlend hafa einfaldlega verið langvinsælustu skáldsögur á Íslandi undanfarin ár. Sem dæmi um vinsældir Arnaldar hér á landi þá seldist Kleifarvatn (árið 2004) í nálægt 22 þúsund eintökum á Íslandi fyrir síðustu jól og þá eru ekki talin þau eintök sem seldust eftir að bókin kom út í kilju síð- asta sumar. Þetta er Íslandsmet í bóksölu! En vinsældir Arnaldar eru ekki bundnar við Ísland. Útgáfuréttur bókanna hefur verið seldur til um það bil þrjátíu landa með sölu- heimildum til enn fleiri landa. Ekki hafa allar bækur hans enn komið út í þeim löndum sem keypt hafa útgáfuréttinn; fyrsta sagan hefur einungis verið þýdd í ellefu löndum. Og hvaða lönd hafa fallið fyrir Arnaldi? Fyrir þremur árum vann hann Glerlykilinn, Norrænu glæpasagnaverðlaunin, og í kjöl- farið uppgötvuðu margir lesendur Arnald. Bækur hans hafa selst vel í Noregi, Dan- mörku og Svíþjóð. En hvergi hafa þær selst eins og vel og í Þýskalandi en þar verma verk hans metsölulistana í hvert sinn sem þau koma út og er besti árangur á listanum til þessa annað sætið sem þýðir að viðkom- andi bók var næstmest selda bók í gjörvöllu Þýskalandi þá vikuna. Bækur Arnaldar ná einnig inn á metsölu- lista annarra landa; ef einungis er litið til þessa árs voru verk hans á metsölulistum í Frakklandi, Hollandi, Noregi, Danmörku og Svíþjóð, auk Þýskalands og Íslands. Arnaldur er rétt að byrja Það er augljóst að Eddumenn hafa tröllatrú á Arnaldi og verk hans eru þau sem treyst er á í jólavertíðinni - bækur Arnaldar skapa miklar tekjur, mikil söluverðmæti. Páll Vals- son hjá Eddu segir að Arnaldur sé rétt að byrja. Nú þegar sé hann orðinn einn af sölu- hæstu höfundum Íslands fyrr og síðar og ein- ungis verk Halldórs Laxness hafa farið víðar og í stærri upplögum. „Arnaldur hefur slegið í gegn, um það er engum blöðum að fletta,“ segir Páll kampa- kátur en Eddumenn fengu enn eina ástæð- una til að fagna þegar Arnaldur vann Gull- rýtinginn um daginn, verðlaun sem Samtök breskra glæpasagnahöfunda veita. Að sögn Páls eru þetta virtustu glæpa- sagnaverðlaun heimsins og þó það séu for- dæmi fyrir því að þýdd verk fái þessi verð- laun heyrir það til undantekninga. Stundum er sagt að rithöfundar séu fyrst búnir að „meika það“ þegar bækur þeirra fást í bóka- verslunum á flugvöllum. Það er skemmst frá því að segja að bækur Arnaldar eru nú þegar á áberandi stöðum á flugvöllum víða um heim. Bragð mánaðarins? En hvað skýrir vinsældir Arnaldar? Af hverju er sakamálarithöfundur frá hinu litla Íslandi orðinn „bragð mánaðarins“ í glæpasagna- heiminum? Úlfhildur Dagsdóttir bókmenntafræð- ingur og yfirlýstur aðdáandi Arnaldar segir enga formúlu vera til sem geti útskýrt vinsældirnar. „Það er erfitt að segja til um hvað gerir bók vinsæla,“ segir hún. „Það er ákveðinn tónn í þessum norrænu sakamálasögum sem virðist falla í góðan jarðveg hjá lesendum víðs vegar um heim- inn sem er þessi samfélagslega skírskotun í bland við myrkrið sem fólk tengir við norðrið. Þessi blanda hittir einfaldlega í mark.“ Hjálpar honum að vera frá Íslandi „Það hjálpaði honum ekki fyrir nokkrum árum en í dag held ég það sé enginn vafi að það hjálpar honum að vera Íslendingur. Frá árinu 2000 hefur Ísland verið í tísku ef svo má segja,“ segir Úlfhildur en því er ekki að neita að íslenskar menningarafurðir hafa á síðustu árum vakið mikla athygli og notið vinsælda erlendis, nægir að nefna hljóm- sveitina Sigur Rós og söngkonuna Björk sem dæmi. ER STÓRT FYRIRTÆKI Samkvæmt okkar áætlun- um lætur nærri að Arnaldur hafa fengið í kringum 125 milljónir í eigin vasa fyrir bækur sínar. A R N A L D U R E R F Y R I R T Æ K I Hver er heildarveltan? Land Verð bókar (ísl. kr) Fjöldi seldra bóka Velta Þýskaland (kiljur) 600 (Amazon.de) 1.000.000 600 milljónir kr. Ísland (kiljur) 1800 75.000 135 milljónir kr. Ísland (innbundnar) 4000 75.000 300 milljónir kr. Önnur lönd 1000 350 000 350 milljónir kr. (m.a. Bretland og 1.385 milljónir kr.Norðurlöndin. Kiljur) * Þessar upphæðir eru fengnar frá fólki sem starfar innan bókageirans. Þær eru ekki nákvæmar en eru ágætis viðmið. Hvað fær Arnaldur í eigin vasa? Land Hluti höfundar af hverri bók (ísl. kr.)* Í vasa Arnaldar Þýskaland 40 kr. 40 milljónir kr. Ísland (kiljur) 200 kr. 15 milljónir kr. Ísland (innbundnar) 600 kr. 45 milljónir kr. Önnur lönd (m.a. Bretland og Norðurlöndin) 70 kr. 25 milljónir kr.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.