Frjáls verslun - 01.10.2005, Page 62
62 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 5
Rafnar. Eiginkona hans er
Lilja Dóra Halldórsdóttir
aðjúnkt við Háskólann í
Reykjavík og eiga þau tvö
börn, Steinunni sem er 15
ára og Jónas Rafnar sem
er 8 ára.
Með ákveðnar skoð-
anir Eins og fyrr segir
vakti ræða Jónasar Fr. á
ársfundi Fjármálaeftirlits-
ins nú á dögunum mikla
athygli í fjármálaheiminum
en þar sagði hann m.a.:
„Það verður að segjast að
nokkur misbrestur hefur
verið á að fjármálafyrir-
tækin hafi sinnt upplýsinga-
gjöf til Fjármálaeftirlitsins
á fullnægjandi hátt. Einnig
virðist vera einhver túlkunarágreiningur um það
hversu víðtækar heimildir fjármálafyrirtækin
hafa til slíkrar hliðar- eða tímabundinnar starf-
semi og eru nokkur tilvik nú til skoðunar af
hálfu eftirlitsins. Á næstu mánuðum mun Fjár-
málaeftirlitið leggja áherslu á að bæta fram-
kvæmd þessa, afgreiða ágreiningsmál og hugs-
anlega endurskoða tilmæli sín og vænti ég góðs
samstarfs við fjármálafyrirtækin í þessu efni.“
Fyrir skömmu kom upp ágreiningur um rétt
Fjármálaeftirlitsins til að leggja dagsektir á ein-
staklinga sem ekki veita eftirlitinu tilteknar upp-
lýsingar. Ákvæði laganna þykja óljós.
Á meðan Jónas starfaði hjá EFTA gagnrýndi
hann íslensk stjórnvöld fyrir seinagang í því
að innleiða tilskipanir sem samþykktar höfðu
verið á Evrópska efnahagssvæðinu. Í viðtali við
Morgunblaðið 21. nóvember 2001 sagði hann
að frammistaða Íslands á þessu sviði hefði ekki
verið nógu góð en bætti við að stjórnvöld hefðu
þó gert sér grein fyrir nauðsyn þess að bæta
stöðuna. „Það skiptir máli að lögleiða reglur á
réttum tíma. Ef það er ekki gert er ekki hægt
að tala um einsleitt efnahagssvæði með sömu
reglur fyrir alla. Það þýðir að markaðurinn er í
raun og veru ófullkominn og skilar ekki því sem
hann á að skila. Þetta veldur líka hindrunum
fyrir einstaklinga og lögaðila. Þeir geta ekki nýtt
þau tækifæri sem innri markaðurinn býður upp
á. Þess vegna leggja bæði EFTA og ESB mikla
áherslu á að innleiðing reglna gangi hratt fyrir
sig.“ Hann sagði að það vekti sérstaka athygli
hvað Ísland stæði sig illa í að innleiða reglur á
sviði umhverfis- og félagsmála.
„Hamhleypa til vinnu“ Birgir Ármannsson
þingmaður er æskuvinur Jónasar og ber honum
vel söguna. „Ég er búinn að þekkja Jónas lengi
og vann með honum í nokkur ár. Að mínu mati
er Jónas afskaplega traustur og góður drengur,
hann er skiplagður, agaður og hamhleypa til
vinnu og gerir miklar kröfur til sjálfs sín og
þeirra sem hann vinnur með. Jónas er fljótur
að átta sig á aðalatriðum og setur sér skýr mark-
mið sem hann vinnur eftir og ann sér eiginlega
ekki hvíldar fyrr en hann hefur náð þeim.“ Að
sögn Birgis getur Jónas verið fastur fyrir og það
þarf sterk rök til að telja honum hughvarf ef
hann hefur sannfæringu fyrir einhverju. „Það er
ekkert auðvelt að róta í honum en eins og allir
skynsamir menn þá kann hann að taka rökum
þegar þannig ber undir.“ Birgir segist hafa
þekkt Jónas síðan þeir voru börn og að hann
hafi alltaf verið ráðhollur og ræktarsamur.
„Hann er skemmtilegur félagi og mér þykir
gaman að hafa hann í kringum mig á góðri
stundu. Jónas er líka mikill keppnismaður í öllu
sem hann tekur sér fyrir hendur hvort sem það
tengist vinnu eða til þess að fara út að skokka
til að ná af sér einhverjum aukakílóum eins og
hann tók upp á að gera fyrir nokkrum árum.
Hann gerir allt af alvöru.“
Gunnar Þór Pétursson, lögmaður hjá Acta-
vis sem kynntist Jónasi Fr. úti í Brussel, hefur
svipaða sögu af honum að segja. „Það er afskap-
lega gott að vinna með Jónasi, hann hefur skýr
markmið og vinnur skipulega að þeim. Hann
er ósérhlífinn en gerir um leið miklar kröfur
til þeirra sem vinna með honum án þess þó að
vera óréttlátur. Hann hefur án efa haft gott af
náminu í stjórnun sem hann bætti við sig eftir
laganaámið.“
Að sögn Gunnars er Jónas óhræddur við að
segja skoðun sína á málefnum líðandi stundar.
„Hann hefur án efa einhvern pólitískan metnað
en hefur gott lag á að hafa stjórn á þeim. Jónas
hefur sterka réttlætiskennd og er óhræddur við
að setja undir sig hausinn og koma málum í
höfn svo lengi sem hann veit að þau eru bæði
réttlát og lögleg.“
Gunnar Þór Pétursson
lögmaður segir að Jónas
hafi án efa einhvern
pólitískan metnað en hafi
gott lag á að hafa stjórn á
þeim. „Jónas hefur sterka
réttlætiskennd og er
óhræddur við að setja und-
ir sig hausinn og koma
málum í höfn.“
N Æ R M Y N D - J Ó N A S F R I Ð R I K J Ó N S S O N
Jónas er mikill keppnismaður og
spilar fótbolta með félögum sínum
í hádeginu tvisvar í viku.