Frjáls verslun - 01.10.2005, Side 68
JÓLIN KOMA
KYNNING
Casa selur vörur frá:
Poltrona Frau, Kartel
Ligne Roset, I4Mariani
Rexite, Driade,
Gramrode, Gyform,
Fontana Arte, Flos
Artemide, Luceplan,
Ritzenhoff, Dualit,
Rosendahl, 2B International,
Mono Machalke, Oluce
Í 30 ár hafa Íslendingar komið í Casa til að kaupa húsgögn, ljós og gjafavöru frá öllum frægustu framleiðendum og hönnuðum heims,“ segir Skúli Rósantsson, eigandi Casa. Eigendaskipti
urðu á fyrirtækinu fyrir rúmu ári og á sama tíma flutti Casa í nýtt og
stærra húsnæði í Síðumúla 24 við hlið Kosý-húsgagna sem er í eigu
sömu aðila.
„Tilgangurinn með að færa Casa í nýtt húsnæði var að geta sýnt
þessa vönduðu og fallegu vöru á gólfi en ekki einvörðungu í bækl-
ingum og það hefur alveg hitt í mark,“ segir Skúli. „Við leggjum mikla
áherslu á að þjóna viðskiptavinum okkar sem best og upplýsa þá um
allt sem þeir vilja vita, um leið og við leggjum okkur fram um að vera
í fararbroddi þeirra sem bjóða þessa vönduðu, „high end“ vöru eins
og hún er kölluð.“
Hjá Casa geta menn fengið flottar hönnunarvörur, sama hvort
um er að ræða húsgögn, gjafavöru eða ljós. Skúli segir að þeir sem
eignast eitthvað úr Casa eigi hlutina í 30-40 ár og þyki þeir alltaf jafn-
fallegir, enda séu þetta hlutir sem lifi, ólíkt því sem gerist um ódýrar
vörur sem oftast er skipt út fyrir annað eftir ákveðinn árafjölda.
„Design“-vörur í fyrirrúmi „Við leggjum áherslu á að vera með
„design“-húsgögn, gjafavöru og ljós, þ.e. gólf- og borðlampa. Nýlega
fengum við umboð fyrir Poltrona Frau
sem er eitthvert frægasta húsgagnafyrir-
tæki í heiminum og er í eigu Ferrari-fjöl-
skyldunnar. Það framleiðir húsgögn bæði
í stofur og borðstofur og eru þau með því
vandaðasta sem gerist í dag. Poltrona Frau
á einnig Cappellini og er nýbúið að kaupa
hið þekkta, ítalska fyrirtæki Cassina.
Þótt jólin nálgist og margir leggi leið sína í Casa í leit að jóla-
gjöfum þá ber að hafa í huga að gjafavaran í Casa gengur svo sannar-
lega allt árið um kring og þótt hún sé frábær til jólagjafa er hún t.d.
ekki síður eftirsótt í brúðargjafir, enda er þetta gjafavara sem lifir. Í
Casa getur fólk verið með hina vinsælu gjafalista með óskagjöfunum
svo gefendur geti komið og valið gjafir við hæfi fyrir þá sem þeir ætla
að gleðja með fallegri gjöf.“
Skúli Rósantsson segir að lokum að vörurnar í Casa séu klassík
um leið og þær séu nútímalegar og bætir við að húsgögn frá franska
fyrirtækinu Ligne Roset séu með því vinsælasta þessa stundina,
sama hvort um sé að ræða húsgögn eða gjafavöru, og ekki megi
heldur gleyma gegnheilum, dönskum borðstofuhúsgögnum sem falli
vel að smekk Íslendinga.
68 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 5
Klassík sem lifir í Casa
Casa með umboð
fyrir Poltrona
Frau sem er í
eigu Ferrari-
fjölskyldunnar.
Skúli Rósantsson
eigandi Casa og Kósý
húsgagna og Kristín
Lind Andrésdóttir
verslunarstjóri í Casa.
Síðumúla 24 | Sími: 588 0640 | Fax: 588 0641
casa@isl.is | www.casa.is