Frjáls verslun - 01.10.2005, Qupperneq 72
JÓLIN KOMA
KYNNING
Stemmningin er notaleg í Bakarameistaranum á Smáratorgi, nýjasta bakaríi og kaffihúsi fyrirtækisins. Hönnun húsnæðis-ins er falleg, innréttingar vandaðar og veggir, loft og húsbún-
aður í litum sem fengnir eru úr vöru-
merki Bakarameistarans, okkurgulir og
rauðir og dökkbrúnn viður á milli. Menn
koma langt að til að njóta veitinganna
og þeir sem leið eiga hjá standast ekki
freistinguna heldur bregða sér inn til að
gæða sér á alls konar hollustu og eðal-
brauðum í bland við gómsætar kökur,
kaffi og ýmsa aðra hressingu.
Vigfús Hjartarson, framkvæmda-
stjóri Bakarameistarans, segir að við
hönnun Smáratorgs hafi þýski arki-
tektinn Edgard Hauser, sem er þekktur
fyrir verk sín í Þýskalandi, unnið að því
að uppfylla þær óskir sem Bakarameistarinn vildi ná
fram við hönnun og uppbyggingu Smáratorgs. Þetta
er ekki í fyrsta skipti sem Bakarameistarinn leitar til
þýskra hönnuða og hafa þarlendir hannað öll fimm
bakarí og kaffistaði fyrirtækisins; í Suðurveri, Mjódd,
Glæsibæ, Húsgagnahöllinni og nú síðast á Smáratorgi.
Nú sem fyrr hefur tekist vel til og það svo, að hróður
fyrirtækisins berst víða um lönd og hafa greinar verið birtar um Bak-
arameistarann í fagtímaritum víða um heim, svo sem í Þýskalandi, á
Norðurlöndum og allt til Ástralíu.
Veglegur kaffibar Bakarí Bakarameistarans eru ekki
síður kaffihús en bakarí, enda sest fólk þar niður
og nýtur þess að fá sér hollan skyndibita, heita
rétti og súpur og eitthvað gómsætt með upp-
áhaldskaffinu á eftir. Á Smáratorgi er kaff-
ibarnum gert hátt undir höfði og segir
Vigfús það bráðnauðsynlegt, enda
leggi fólk meira upp úr gæðakaffi
en áður og sé ekki síður vandlátt á
kaffið sitt en rauðvínið.
Nú er bryddað upp á ýmsum
nýjungum í Bakarameistaranum.
Til dæmis er breiðtjaldsskjár
þar á vegg svo fólk getur jafnvel
fylgst með boltanum í sjónvarpinu
meðan það fær sér hressingu. „Auk
þess er ætlunin að kynna á skjánum
framleiðslu Bakarameistarans og hvernig við vinnum vöruna,“ segir
Vigfús.
Bakarameistarinn nálgast nú þrítugsaldurinn. Sigþór Sigurjónsson
stofnaði fyrirtækið árið 1977 ásamt
konu sinni, Sigrúnu Stefánsdóttur.
Bakarameistarinn er hefðbundið fjöl-
skyldufyrirtæki. Sigþór og Vigfús, sem
er jafnframt tengdasonur hans, ásamt
elstu dótturinni Sigurbjörgu, sjá um
allan daglegan rekstur fyrirtækisins.
Starfsmenn eru 140 talsins. Opnun-
artími Bakarameistarans á Smáratorgi
fylgir opnunartíma stórverslananna í
kring á föstudögum og laugardögum
en þar er þó opnað klukkan sjö á
morgnana. Í jólamánuðinum verður
opið lengur en endranær og í takt við
verslanirnar á torginu.
Í öllum verslunum Bakarameistarans kaupir fólk
sér nú sem fyrr hinar þekktu handgerðu jólasmá-
kökur, þýsku stollenbrauðin og ensku jólakökurnar
sem færa jólailminn inn á heimili viðskiptavinanna.
Það ríkir þægileg
kaffihúsastemmning
í Bakarameistar-
anum á Smáratorgi.
Vigfús Hjartarson í bráðhuggu-
l egu bakaríi og kaffihúsi
Bakarameistarans á Smáratorgi.
Kaffihúsastemmning í
Bakarameistaranum á Smáratorgi
72 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 5
Suðurveri • Glæsibæ • Húsgagnahöllinni • Mjódd • Smáratorgi
Bragðgóðar jóla- og áramótagjafir
fyrir einstaklinga og fyrirtæki
M
IX
A
•
fí
t
•
5
1
0
0
4
Glæsilegar gjafakörfur
Konfekt, tertur og kökur
Pantanir í síma 533 3000