Frjáls verslun - 01.10.2005, Blaðsíða 78
78 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 5
JÓLIN KOMA
KYNNING
Í Leonard í Kringlunni og í Flugstöð Leifs Eiríks-sonar er ótalmargt sem gleður augað og þar má fá jóla- eða tækifærisgjafir við hæfi. Í Leonard
fást úr frá yfir 30 helstu úraframleiðendum heims
og skartgripir og fylgihlutir í öllum þekktustu tísku-
merkjunum. Nú síðast hafa bæst við skartgripir
frá bæði Bulgari og Gucci.
Sævar Jónsson, eigandi Leonard, segir
Gucci- og Bulgari-skartgripi njóta mikilla vin s -
ælda erlendis og nú sé komið að því að Íslend-
ingar geti keypt þá hér heima. „Það er mikil
viðurkenning að fá að selja þessa gripi, og
reyndar ekkert sjálfgefið, en verslunin nýtur virðingar hjá erlendum
framleiðendum og Gucci- og Bulgari-skartgripirnir eru frábær viðbót
í skartgripaflóruna hjá okkur. Við seljum um 20 skartgripamerki og
30-40 tegundir af úrum í öllum verðflokkum.“
Úr og skartgripir við allra hæfi Margir halda að í Leonard fáist
aðeins mjög dýr úr og skartgripir en svo er ekki. Þar fást úr frá 5000
krónum og upp úr og meðal úramerkja má nefna tískuúrin frá Guess
sem eru mjög vinsæl, auk úra frá Omega, Tag Heuer, Breitling,
Gucci, Bulgari, Calvin Klein, Cartier, Diesel, DKNY og ótalmörgum
öðrum.
Skartgripaúrvalið er ekki síðra. Nýjustu merkin
eru Bulgari og Gucci, en síðan er t.d. Thomas
Sabo sem er með silfurskartgripi með fallegum,
lituðum steinum og skartgripir íslenska hönnuð-
arins Hendrikku Waage. Þess má geta að Leonard
hefur hafið samstarf við Guðbjörgu Kr. Ing-
varsdóttur um sölu á skartgripum frá Aurum
í Kringlunni og Leifssöð.
Fylgihlutir eru alltaf nauðsynlegir og þá er
einnig að finna í Leonard; slæður og fína kanín-
utrefla, ítalskar töskur, og aðrar ódýrari t.d. frá
Guess. Þeir sem leita að tækifærisgjöfum fyrir
karlmenn finna þær í Leonard: Penna frá Mont Blanc, bindisnælur,
lítil seðlaveski og margt fleira.
Gullsmiður og úrsmiður þjóna viðskiptavinum Faglega þjónustu
bæði úr- og gullsmiðs er veitt í Leonard. Rúnar Hannah sem er af
þekktri úrsmiðaætt, leiðbeinir fólki sem er að velja sér úr, skiptir
út rafhlöðum og sinnir viðgerðum, gerist þess þörf. Sigurður Ingi
Bjarna son gullsmiður smíðar síðan giftingarhringa í samræmi við
óskir viðskiptavinanna.
Leonard heldur úti öflugri heimasíðu sem er uppfærð reglulega,
www.leonard.is. Þar getur fólk skoðað vöruúrvalið í rólegheitum
heima í stofu og sent inn fyrirspurnir. Fyrir jólin verður gefinn út í
annað sinn vandaður bæklingur um fyrirtækið og vöruúrvalið sem
dreift verður inn á öll heimili landsins. Heimasíðan og bæklingurinn
auðvelda fólki svo sannarlega að velja gjafirnar í ár. Rafrænt gjafa-
kort, sem leggja má inn á ákveðna fjárhæð, er einnig á boðstólum í
Leonard og alltaf má bæta inn á það að vild.
Öll frægustu úra-
og skartgripamerkin í Leonard
Rafræn gjafakort í
fallegum umbúðum
eru vinsæl jólagjöf.
Sævar Jónsson og
Helga Daníelsdóttir
eru eigendur
Leonard sem
rekur verslanir
í Kringlunni og
Flugstöð Leifs
Eiríkssonar.
WHAT ARE YOU MADE OF ?
m
o
c.r
e
u
e
h
g
a t.
w
w
w
BRAD P ITT and h i s Ca r re ra Tachymet re Au tomat i c Ch ronog raph S W I S S AVA N T - G A R D E S I N C E 1 8 6 0
Kringlan Leifsstöð www.leonard.is