Frjáls verslun - 01.10.2005, Qupperneq 82
82 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 5
JÓLIN KOMA
KYNNING
Hljóðdeyfing eða hljóðdreifing er bráðnauðsynleg í mörgum fundarherbergjum. Sama á við um stór, opin vinnurými þar sem margir þurfa að tala samtímis í síma,
einbeita sér að úrvinnslu verkefna eða jafnvel
skiptast á skoðunum. Ekki er úr vegi að kanna
hvort bæta megi aðstöðuna með því að setja
upp hljóðdeyfiplötur annaðhvort frá sænska
fyrirtækinu Offecct eða finnska fyrirtækinu
ShowroomFinland. Hér á landi er það Epal í
Skeifunni 6 sem býður upp á þessar lausnir. Frá
Woodnotes í Finnlandi koma einnig umhverfis-
væn teppi eða mottur sem fara vel á heimili eða
skrifstofu auk gólfsessa, hnalla og blaðagrinda.
Efniviðurinn í mottum og áklæðum er sérunnið
og sérstaklega meðhöndlað pappírsgarn.
Offecct í Svíþjóð hefur starfað í hálfan annan
áratug og framleiðir m.a. hljóðdeyfiplötur sem
bera heitið Soundwave og eru hönnun Finn-
ans Teppo Asikainen. Soundwave-plöturnar
eru úr polyestertrefjum og fást í nokkrum
litum og með mismunandi útliti. Í Epal eru til
á lager Swell- og Luna-plötur, steingráar, ljós-
gráar og gráhvítar, að sögn Eyjólfs Pálssonar
framkvæmdastjóra. Ummál platnanna er 585
x 585 x 80 mm og eru þær festar á vegg eða loft með frönskum
rennilás svo auðvelt er að koma þeim fyrir og taka þær niður aftur
gerist þess þörf.
Þá framleiðir finnska fyrirtækið ShowroomFinland hljóðdeyfi-
plötur úr næfurþunnum birkispæni sem festur er á viðarramma.
Plöturnar kallast Ply Wall Element og Ply Acoustic
Element. Þær eru 595x595 mm að flatarmáli og
fást í mismunandi útfærslum og eru jafnauðveldar
í uppsetningu og Soundwave-plöturnar. Hönnuður-
inn er Finninn Jouko Kärkkäinen.
Umhverfisvæn gólfteppi og mottur Þegar búið er
að ráða niðurlögum óþægilegra umhverfishljóða
á skrifstofunni, já eða heima í stofu, er rétt að
hugleiða hvort umhverfisvænar mottur gætu ekki
gert okkur lífið enn þægilegra. Finnska fyrirtækið
Woodnotes framleiðir umhverfisvænar vörur úr
svokölluðu pappírsgarni, m.a. gólfteppi og -mottur
í náttúrulegum litum, hönnun Ritva Puotila og hafa
verk hennar vakið svo mikla athygli að þau eru til
sýnis á Museum of Modern Art í New York. Auk
þess hafa þau hlotið fjölmörg hönnunarverðlaun
og viðurkenningar á borð við þýsku red dot verð-
launin og Good Design Award í Japan. Frá Wood-
notes koma borðrenningar, töskur, snyrtibuddur,
púðar, blaðagrindur, hnallar og gólfsessur.
Þessi náttúruvæna vara nýtur mikilli vinsælda
meðal þeirra sem vilja leggja sitt af mörkum til að viðhalda hreinni
og ósnortinni náttúru og hafa sem mest af náttúrulegum efnum í
kringum sig. Hér er því komin jólagjöf náttúruunnandans.
Hljóðdeyfiplötur
og umhverfisvæn teppi í Epal
Hljóðdeyfiplötur á veggi
bæta aðstöðuna og
auðvelda samskipti.
Eyjólfur Pálsson, fram-
kvæmdastjóri Epal,
heldur hér á Swell-
hljóðdeyfiplötu.
Woodnotes-teppi, hnallur og pokar
undir blöð eða smádót, allt úr
umhverfisvænu pappírsgarni.
BestLite er fram leiddur
af danska hönnunar-
fyrirtækinu GUBI.
(www.bestlite.dk)
Þótt hann sé nú orðinn
75 ára gamall þykir hann
dæmi um frábæra
hönnun sem setur stíllegt
yfirbragð á umhverfi sitt.
Hann er til í nokkrum
útgáfum; sem borðlampi,
vegglampi og gólflampi.
Hér á landi er hann
seldur í Epal.
Skeifunni 6 • Sími 568 7733 • Fax 568 7744 • www.epal.is • epal@epal.is
BestLite-lampinn komst í tölu þjóðar ger sema
Breta í seinni heimsstyrjöldinni, enda stóð
hann þá á skrifborði Winston Churchills í
loft varnarbirginu undir White hall. Einn af
þekkt ustu hönnuðum Breta á 20. öld, Robert
Dudley Best, hannaði BestLite árið 1930.
Lampinn er talinn fyrsta verk sem hannað
var í anda Bauhaus-stefnunnar í Bretlandi en
Robert Dudley Best stundaði nám í iðnhönn-
un á Düsseldorf og París og var í nánu sam-
bandi við Walter Grophius og þá sem tengdust
Bauhaus-skólanum í Weimar og Berlin. Lamp-
inn er til sýnis í Design Museum í London. BE
ST
A
JÓ
LA
G
JÖ
FI
N
!
EPAL.lampi.indd 1 25.11.2005 13:21:43