Frjáls verslun - 01.10.2005, Qupperneq 88
JÓLIN KOMA
KYNNING
Mikill áhugi hefur verið á listaverkum eftir íslenska sam-tímalistamenn að undanförnu,“ segir Hrönn Harðardóttir, framkvæmdastjóri Gallerí Listar í Skipholti 50d. „Almenn-
ingur virðist mjög vel meðvitaður um gildi þess að prýða heimili sín
með ekta listmunum, en úrval listmuna er mjög mikið
í Gallerí List og á það jafnt við um myndlist og aðra
listmuni.“
Gallerí List er elsta starfandi gallerí á Íslandi en það
var stofnað árið 1987. Núverandi eigendur tóku við
rekstri þess fyrir tveimur árum. Galleríið er í björtu
og rúmgóðu húsnæði þar sem listaverkin njóta sín
frábærlega vel og um leið er auðvelt að virða þau fyrir sér og velja
það sem hugurinn girnist. Frá upphafi hefur verið lögð áhersla á
að sinna Íslendingum og íslenskum heimilum, að sögn Hrannar, og
fólk kemur gjarnan í Gallerí List til þess að velja þar brúðar- eða
afmælisgjafir.
Þjóna sem breiðustum hópi Að jafnaði eru verk eftir 80 til 100
listamenn í Gallerí List. Þess vegna er galleríið vinsæll viðkomu-
staður þeirra sem eru í gjafaleit, hvort sem um er að ræða stórar
eða smáar gjafir, enda er lögð áhersla á að þjóna sem breiðustum
hópi viðskiptavina og að vera með verk í öllum verðflokkum. Einnig
virðast viðskiptavinir kunna vel að meta það að auðvelt er að skipta
verkum ef þau falla ekki að smekk þess sem gjöfin er ætluð, en hún
er ævinlega merkt með gjafadegi og síðan er hægt að
skipta henni innan ákveðins tíma þaðan í frá. Engar
kvaðir eru varðandi skiptin svo skipta má skál í mynd
og mynd í skál, sé þess óskað.
Gallerí List heldur sig að mestu leyti við hin hefð-
bundnu listform, þ.e. grafík, þrykk, vatnslitamyndir
og málverk ásamt munum úr postulíni, leir og gleri. Mikil áhersla er
lögð á góða þjónustu og fallega innpökkun sem hæfir viðkomandi
verki. Margir velja einnig að kaupa gjafakort fremur en að velja
sjálfir ákveðna gjöf og getur fólk þá komið í galleríið og valið sjálft.
Hrönn segir að fólk sé farið að hugsa á annan hátt en áður var
um híbýli sín. Íslendingar séu duglegir að stækka við sig húsnæði.
Því fylgi að víða séu stórir og bjartir fletir sem kalli hreinlega á stór
málverk og menn velji gjarnan þá leið að kaupa fáa en vandaða hluti
og leggi meira upp úr samræmi og stíl en oft hefur verið. Fallegt lista-
verk á vegg sé á við marga smærri hluti. Einnig segir hún að litaval
hafi breyst og fólk sé nú aftur farið að velja sterka liti og form og
kaupi myndir og muni sem setja afgerandi svip á heimilið. Í Gallerí
List er vissulega einfalt að velja það sem hæfir hverju heimili.
Verk eftir hátt í
hundrað listamenn
á boðstólum
í Gallerí List
Listaverk
eru prýði
hvers heimilis
Karólína Lárusdóttir er ein af listamönnunum sem eru með verk í
Gallerí List.
88 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 5
Það er bæði vítt til
veggja og bjart og yfir-
bragðið einstaklega
fallegt í Gallerí List .