Frjáls verslun - 01.10.2005, Side 103
F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 5 103
Viðar Þorkelsson, fjármálastjóri
Dagsbrúnar-samstæðunnar (Og
Vodafone og 365 miðla), segist
hafa spilað fótbolta frá því hann
var gutti. Hann var um tíu ára
gamall þegar hann byrjaði að æfa
með Fram. „Það hefði legið bein-
ast við að æfa með Þrótti miðað
við hvar ég bjó en vinir mínir
æfðu með Fram.“
Viðar fór að æfa með meist-
araflokki árið 1981. Hann var í
íslenska landsliðinu í fótbolta á
árunum 1985-1989 og spilaði 26
landsleiki.
Í dag æfir hann með tveimur
liðum. Annars vegar er það „old
boys“ hjá Fram sem keppir í
lávarðadeildinni. Hins vegar æfir
hann með liðinu „Fussball“ og í
því liði eru núverandi og fyrrver-
andi vinnufélagar.
„Það sem heillar mig við
fótbolta er keppnin. Ég er mik-
ill keppnismaður. Nú skiptir þó
félagsskapurinn meira máli.“
En hvað er fótbolti í augum
Viðars? „Fótbolti er fyrst og
fremst leikur sem á að hafa
gaman af. Hluti af því er keppni. Í
fótbolta felst heilmikil „strategía“
og fótbolti er í raun listgrein að
mörgu leyti. Það eru til listamenn
í fótbolta. Fótbolti reynir á margt,
svo sem hópvinnu sem er fínn
undirbúningur fyrir atvinnulífið.“
Svo mörg voru þau orð:
„Íslenski tryggingamarkaðurinn er takmarkaður og nokkurn veginn
mettaður markaður enda Íslendingar ekki nema tæp 300 þúsund.
Til þess að stækka þurfum við að fara í útrás.“
Finnur Ingólfsson, forstjóri VÍS. Viðskiptablað Morgunblaðsins, 3. 11..
„iSEC er hlutabréfamarkaður fyrir framsækin fyrirtæki, frumkvöðla-
fyrirtæki í örum vexti og er leið þeirra á hlutabréfamarkað sem ekki
er háður jafnströngum skilyrðum eins og á aðalmarkaði en veitir með
skipulögðum hætti upplýsingar um reksturinn.“
Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar Íslands.
Viðskiptablað Morgunblaðsins, 27. október.
„Ég vil vera í verkefnum sem ég hef brennandi áhuga á. Sérstaklega
ef ég sé tækifæri til að breyta einhverju til betri vegar og þarf að fara
ótroðnar slóðir. En þetta reynir auðvitað á fólkið í kringum mann en
ég hef verið mjög heppinn.“
Ólafur M. Magnússon, framkvæmdastjóri Mjólku. Markaðurinn, 26. 10..
Sælkeri mánaðarins:
DRUKKINN LAX
Hildur Árnadóttir, fjármálastjóri
Bakkavarar, fékk uppskriftina
hjá systur sinni í sumar en um er
að ræða forrétt. Hún marinerar
laxana sem hún veiddi sjálf og
hefur boðið upp á réttinn í mat-
arboðum. Hún segir að laxinn
veki lukku; líka á meðal þeirra
sem drekka ekki vín. Hún tekur
fram að gestum sínum hafi þótt
jafngott og jafnvel betra að borða
laxinn með góðri soya-sósu,
wasabi og engifer og sleppa
sósunni sem fylgir upphaflegu
uppskriftinni.
Uppskriftin er fyrir 6-8.
600 g beinlaust og ósoðið laxa-
flak. Skafið roðið vel og þerrið
það. Mikilvægt er að plokka
beinin úr flakinu.
1/2 bolli olía (ekki græn)
1/4 bolli gin
1/4 bolli sykur
2 msk. fínt salt
2 msk. Martini (dry)
2 msk. Pernod
1 msk. sítrónupipar
nokkrir dropar af Tabasco-sósu,
Teryaki-sósu og soya-sósu.
Hellið þessu öllu í skál og hrærið
saman. Setjið laxinn á fat, hellið
blöndunni yfir og setjið filmu yfir.
Látið bíða í kæliskáp í a.m.k. tvo
sólarhringa. Ausið blöndunni öðru
hverju yfir flakið.
Takið laxinn úr leginum u.þ.b.
6-12 tímum áður en það á að
borða hann og látið leka vel af.
Pakkið honum inn í álpappír og
frystið. Takið laxinn úr frystinum
um einni klst. áður en þið berið
hann fram og skerið í þunnar
sneiðar.
Sósa
2 dósir melónujógúrt
2 msk. sætt sinnep
2 msk. majones
1/2 laukur smátt skorinn (fínt
að nota rifjárn)
sellerí eftir smekk smátt skorið
(a.m.k. einn stöngul, jafnvel tvo)
Sósan verður enn betri ef hún er
útbúin nokkrum klst. áður en rétt-
arins er neytt.
Hildur Árnadóttir, fjármálastjóri Bakkavarar, er sælkeri mánaðarins.
„Í fótbolta felst
heilmikil „strategía“
og fótbolti er
í raun listgrein að
mörgu leyti.“
Fótbolti:
REYNIR Á LIÐSHEILDINA