Frjáls verslun - 01.01.2006, Qupperneq 100
100 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 6
RÁÐSTEFNUR OG FUNDIR
Eftir langar fundasetur og erfiðar ákvarðanatökur má fullyrða að gæðasmurbrauðið frá Jómfrúnni í Lækjargötu auðgar hug-myndaflugið og eflir krafta fundarmanna, enda eru þeir ófáir
sem velja að bjóða upp á smurbrauð í hádegisverðarhléum, snittur
þegar líða tekur á daginn og kokteilsnittur, öðru nafni fingramat, í
fundarlok.
Jómfrúin tók til starfa fyrir tíu árum og hafa
vinsældir smurbrauðsins, sem þar er fram borið,
farið stöðugt vaxandi. Eigendur Jómfrúarinnar,
þeir Jakob Jakobsson og Guðmundur Guðjóns-
son, lærðu smurbrauðsfagið í Danmörku og fluttu
heim með sér þessa þekkingu. Jakob segir að
smurbrauðshefðin sé að sjálfsögðu dönsk þótt
smurbrauð hafi aflað sér vinsælda annars staðar
á Norðurlöndunum og jafnvel víðar. Þeir félagar
halda sig auðvitað algjörlega við hina
dönsku hefð í hráefnisvali og
útfærslu brauðsins og gæðin
þekkja þeir sem reynt hafa.
„Við tökum að okkur að
framreiða smurbrauð fyrir
stjórnarfundi, og alla minni
fundi hjá fyrirtækjum og stofn-
unum en stundum sinnum við
líka stærri uppákomum og kokteil-
boðum. Hér á veitingastaðnum Jóm-
frúnni er mest um heilar brauðsneiðar en
þegar beðið er um smurt brauð í hádegisverð
er mestum um að valið sé svokallað hálfbrauð, öðru nafni
kantínusmurbrauð. Þessar hálfu sneiðar eru vinsælar vegna þess
að fólk borðar sig yfirleitt satt af einni heilli brauðsneið, en getur
langað til að fá meiri fjölbreytni sem skapast með tveimur hálfum
sneiðum. Oftast er aðstaða í fyrirtækjunum til þess að leggja á fund-
arborðið en hálfbrauðin er ekki hægt að borða nema af diski og
með hníf og gafli.“
Sneiðarnar minnka þegar á líður Þegar líða tekur á daginn er frekar
beðið um minni sneiðar eða það sem kallast snittur
og þá er gert ráð fyrir 4-5 snittum á mann. Snitturnar
krefjast líka diska og hnífapara og nú getur hver
og einn fengið sér að smakka brauð með nokkrum
áleggstegundum. Velja má úr a.m.k. 8-12 tegundum,
en á áleggsseðli
Jómfrúarinnar
eru ekki færri
en 40 tegundir.
Þegar komið er enn lengra
fram á daginn og efnt til síð-
degisdrykkju, t.d. í kjölfar
langrar fundarsetu, fær fólk sér
smásnittur eða fingramat sem er
að öllu leyti í takt við smurbrauð
þeirra Jómfrúarmanna. „Við
höfum þann sið við þessi tæki-
færi að vera með steikt brauð sem
gerir fólki auðveldar að höndla snitturnar og
minni hætta er á að brauðið láti undan álegg-
inu,“ segir Jakob.
Rétt er að minna á að nauðsynlegt er að panta
brauðið fyrir fundinn eða ráðstefnuna daginn áður. Hjá Jóm-
frúnni er ekki smurt á lager heldur fá menn glænýtt smurbrauð og
eftirspurninni er mætt með því að koma til vinnu enn fyrr á morgn-
ana! Jómfrúin er opnuð klukkan 11 og opin til klukkan 18 en yfir
sumarið og í desember er opið frá klukkan 11 til 22.
JÓMFRÚ IN VIÐ LÆKJARGÖTU:
Jómfrúarbrauðið
auðveldar ákvarðanatökuna
Smurbrauðið getur
verið ótrúlega
fjölbreytt því velja
má úr allt að 40
áleggstegundum.
KYNNING