Fréttatíminn


Fréttatíminn - 19.06.2015, Blaðsíða 2

Fréttatíminn - 19.06.2015, Blaðsíða 2
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is UP! MEÐ ÖRYGGIÐ VW Up! frá aðeins: 1.790.000 kr. CCP í Vatnsmýrina Tölvuleikjafyrirtækið CCP mun flytja starf- semi sína á Íslandi á svæði Vísindagarða Háskóla Íslands í Vatnsmýri. Fyrirtækið hefur verið með skrifstofur við Grandagarð en færir sig yfir í nýbyggingu í Vatnsmýr- inni á næstunni. Samningar þess efnis voru undirritaðir á fimmtudag. Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri CCP, Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, og Hilmar Bragi Janusson, stjórnarformaður Vísindagarða Háskóla Íslands, undirrituðu samkomulagið. „Við sjáum fram á að efla enn frekar farsælt samstarf okkar við háskólasamfélagið og skapandi greinar hérlendis,“ segir Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri CCP. Höggmynd af Ingibjörgu H. Bjarnason afhjúpuð Stytta af Ingibjörgu H. Bjarnason, alþingis- manni og forstöðukonu Kvennaskólans í Reykjavík, verður afhjúpuð við Skála alþingis í dag, 19. júní. Ingibjörg var fyrsta konan sem sat á alþingi, en hún var kjörin af kvennalista árið 1922. Hún sat á alþingi í átta ár, eina konan á meðal karlanna. Styttan er fyrsta heila höggmyndin af nafngreindri konu í Reykjavík. Listaverkið er eftir Ragnhildi Stefánsdóttur, mynd- höggvara. Hún hefur gert höggmyndir af ýmsum persónum úr íslensku þjóðfélagi, meðal annars brjóstmynd af Auði Auðuns borgarstjóra, sem er í Ráðhúsinu. Högg- myndin af Ingibjörgu var steypt í brons á bronsverkstæðinu Kollinger í Elchingen í Þýskalandi. Listaverkið verður afhjúpað við hátíðlega athöfn klukkan 16.20 við Skála alþingis. Menningarmerkingar og skáldabekkir til heiðurs konum Reykjavíkurborg heiðrar minningu merkra kvenna með nýjum menningarmerkingum í Reykjavík í tilefni 100 ára afmælis kosn- ingaréttar kvenna. Í dag, 19. júní, verða tvær merkingar settar upp, annars vegar til heiðurs Þorbjörgu Sveinsdóttur ljós- móður og hins vegar tveimur frumkvöðlum í kvenréttindabaráttunni, þeim Bríeti Bjarnhéðinsdóttur og Ingibjörgu H. Bjarna- son. Fyrrnefnda merkingin er á Skóla- vörðustíg 11, þar sem Tobbukot stóð, en sú síðari í Templarasundi. Þá verður hægt að hlýða á upplestur á skáldskap eftir nokkrar íslenskar skáldkonur á skáldabekkjum á Skólavörðustíg og Austurvelli. Kvennatvíeyki stýrir N4 Stjórn norðlenska fjölmiðlafyrirtækisins N4 hefur ráðið Maríu Björk Ingvadóttur sem framkvæmda- og rekstrarstjóra og Hildu Jönu Gísladóttur sem framkvæmda- og sjónvarpsstjóra. Þær hafa báðar unnið hjá fyrirtækinu um nokkurra ára skeið og hafa í sameiningu stýrt N4 undanfarna 2 mánuði með góðum árangri, að því er kemur fram í tilkynningu frá N4. Jón Steindór Árnason, formaður stjórnar N4, segir að með ráðningu kvennanna vilji stjórnin undirstrika kraft kvenna og trú á hæfni Hildu Jönu og Maríu Bjarkar og þykir stjórninni það sérstaklega við hæfi á þessu ári, þegar þess er minnst að 100 ár eru liðin frá því íslenskar konur fengu kosningarétt. Báðar hafa þær áralanga reynslu af starfi á fjölmiðlum. -eh Ferðamenn leita sér upplýsinga á Umferðarmiðstöðinni vegna lokaðra fjallvega. Mynd/Hari.  Ferðaþjónusta Vegir lokaðir Vegna snjóþunga Starfsfólk ferðaþjónustunnar hefur þurft að liðsinna ferða- mönnum og benda þeim á nýjar slóðir vegna snjóþunga á fjallvegum. Linda Björk Árnadóttir hjá Höfuðborgarstofu segir upplýsingamiðstöðina fá fjölda símtala og heimsókna frá ferða- mönnum sem viti ekki hvað þeir eigi af sér að gera. Kjölur opnar í fyrsta lagi um mánaðamót.  Borgarmál Borgarstjórn eykur ForVarnir gegn kynBundnu oFBeldi Ofbeldisvarnarnefnd borgarinnar tekin til starfa Borgarstjórn hefur falið sérstakri ofbeldisvarnarnefnd að vinna til- lögur að aðgerðum borgarinnar til að styrkja forvarnarstarf vegna kynbundins ofbeldis og mæta þörf- um þolenda. Þetta var samþykkt á fundi borgarstjórnar þann 16. júní en nefndin tók til starfa í gær. Stofnun nefndarinnar var sam- þykkt á hátíðarfundi kvenna í borg- arstjórn í tilefni af 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna í vor og er henni ætlað að takast á við ofbeldi í sinni víðustu mynd - öllu ofbeldi alls staðar. Ofbeldisvarnarefndin verður skipuð sjö fulltrúum og jafnmörg- um til vara. Borgarstjórn kýs þrjá fulltrúa og þrjá til vara, lögreglu- stjórinn á höfuðborgarsvæðinu til- nefnir einn fulltrúa og einn til vara, Stígamót tilnefna einn fulltrúa og einn til vara, Samtök um kvennaat- hvarf tilnefna einn fulltrúa og einn til vara og embætti landlæknis til- nefnir einn fulltrúa og einn til vara. Í tilkynningu frá Reykjavíkur- borg segir að hin svokallaða Beauty Tips-bylting hafi sýnt að nauðsynlegt sé að tryggja ráðgjöf og stuðning við hæfu, og sporna jafnframt gegn frekara ofbeldi. „Það er samdóma álit allra flokka að ástandið í samfélaginu, sterk rödd hundruða ef ekki þúsunda kvenna á samfélagsmiðlum og ákall um ábyrgð hins opinbera krefjist viðbragða,“ segir þar enn- fremur. - eh Sóley Tómasdóttir, forseti borgarstjórn- ar, flutti tillöguna en hún var samþykkt þvert á flokka. Mynd/Hari s tarfsmenn ferðþjónustufyr-irtækja hafa staðið í ströngu við að aðstoða ferðamenn sem höfðu skipulegt hálendis- ferðir en þurfa nú að breyta ferð- um sínum vegna snjóþunga á há- lendinu. Linda Björk Árnadóttir hjá Höf- uðborgarstofu segir fjölda fólks hringja eða mæta í upplýsinga- miðstöðina í Aðalstræti til að leita sér aðstoðar. „Það er mikið hringt í okkur, bara í dag hef ég fengið þrjú sím- töl frá fólki sem ætlaði í Land- mannalaugar en kemst ekki því vegurinn hefur enn ekki verið opnaður. Fólk er líka að hringja að utan svo upplýsingarnar hafa greinilega borist út fyrir land- steinana.“ Mesta ásóknin er í Land- mannalaugar „Þetta fólk er miður sín því það hefur skipulagt ferðalag hingað oft með margra mánaða fyrirvara og svo gengur planið ekki upp. Margir eru miður sín og við höfum séð fólk koma hingað grátandi yfir því að komast ekki í þá göngu sem það ætlaði sér í,“ segir Linda Björk. Hún segir ráðvilltu ferðamennina aðallega vera göngu- fólk sem komi til Íslands á eigin veg- um, ferðist á bílaleigubíl eða með langferðabílum og ætli sér að gista í skálum eða tjöldum. „Við reynum að liðsinna þessu fólki svo það þurfi ekki að vera í Reykjavík að mæla göturnar. Við bendum því á aðrar gönguleiðir, eins og að fara upp í Hengil, á Reykja- nesið eða út á Snæfellsnes þar sem hægt er að ganga fjörurnar.“ Sigurbergur Steinsson, fram- kvæmdastjóri Reykjavík Excursions, hefur svipaða sögu að segja. Á Um- ferðarmiðstöðina komi fólk sem hafi ætlað sér að ferðast í Landmanna- laugar en starfsfólk hafi þurft að leið- beina því og benda á aðrar leiðir þar sem vegurinn þangað hafi ekki enn verið opnaður. Kjölur lokaður til mánaðarloka „Það er enn lokað í Landmannalaugar og Kjölur opnar í fyrsta lagi um mán- aðamót,“ segir Jón Hálfdán Jónsson, þjónustufulltrúi hjá Vegagerðinni. „Það hefur verið þungur vetur og kalt vor og því frekar einfalt reiknings- dæmi. Þetta er auðvitað misjafnt eftir leiðum og það eru ákveðnar leiðir sem oft eru opnaðar í fyrrihluta júní en það er allt að opnast töluvert seinna núna en venjulega. Að öllu jöfnu á ekki að moka hálendisvegi og það er aðallega spurning um fjármagn. Svo er ekki nóg að snjórinn fari heldur þarf vegur- inn að jafna sig.“ Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is Ráðvilltir ferðamenn gráta lokun hálendisins 2 fréttir Helgin 19.-21. júní 2015
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.