Fréttatíminn - 19.06.2015, Blaðsíða 46
Lín Design Laugavegi 176 Glerártorgi Sími 533 2220 lindesign.is
Brúðkaupsgjön
sem mýkist ár eftir ár
Rúmföt frá 7.990 - 9.990 kr
Yr 50 gerðir rúmfata til brúðargjafa
Rúmföt 7.990 kr - 9.990 kr
Við virðum náttúruna
Þess vegna notum við
ölnota innkaupapoka
honum dóttur um haustið 1927,
Veru. Ingibjörg var þá ein með
barn, 26 ára gömul eins og móður
hennar hafði verið. Hún flutti með
barnið til Parísar þar sem hún hélt
áfram listnámi.
Sambandið við Ísland hafði ekki
slitnað. Vitað er að Ingibjörg H.
Bjarnason skrifaðist á við fyrrum
mágkonu sína og eflaust hefur
Adeline haft hvetjandi áhrif á Ingi-
björgu. Þegar Ingibjörg yngri var
komin til Parísar í listnám með
ungbarn sótti föðurfjölskylda henn-
ar um styrk til Alþingis svo hún
gæti lokið námi. Þar sat einmitt
Ingibjörg H. Bjarnason fyrir Íhalds-
flokkinn eftir að hafa verið kosin á
þing fyrir Kvennalistann fyrri fyrst
kvenna. Og auðvitað fékk Ingibjörg
yngri styrkinn. Þannig virka lítil
samfélag. Þeir sem eru í góðri að-
stöðu leyfa ættingjum og vinum að
njóta með sér.
Ástir, afbrýði og abstrakt
Næsta sem við vitum er að hún
hengir þrjú verk upp á samsýning-
unni í Galerie 23 við rue la Boétie í
apríl 1930, þá 28 ára gömul, innan
um verk listamanna sem eiga eftir
að verða áhrifavaldar í lista- og
menningarlífi álfunnar.. Á myndum
frá sýningunni heldur Michel Seup-
hor um arm hennar og lætur vel að
henni, enda er Ingibjörg í einhverj-
um heimildum kölluð frú Seuphor.
Michel Seuphor var áhrifamaður
í listalífi Parísar, kannski ekki svo
góður málari en mikill kenninga-
smiður, útgefandi og primusmótor.
Hann þekkti alla og tengdi saman
fólk. Við hlið hans var Ingibjörg í
hringiðu listalífsins og þétt upp við
viss straumhvörf. Listamennirnir
í kringum Seuphor vildu nýja list á
nýjum forsendum. En Ingibjörg var
ekki í hópnum bara fyrir Seuphor.
Þegar sænskur listfræðingur, Ulf
Thomas Moberg, var löngu síðar að
viða að sér efni um Cercle et Carré
málaði Seuphor eftir minni endur-
gerðir af málverkum Ingibjargar.
Hún kallaði þær fiskabúr; þetta
voru kringlótt form í dimmum
litum með rauðum litlum kössum
– hringur og kassi. Verkin sjálf eru
hins vegar annað hvort glötuð eða
hanga á veggjum fólks sem hefur
ekki hugmynd um hvað þau gætu
lífgað upp á íslenska listasögu.
Þegar upp úr ástarsambandi
Ingibjargar og Seuphor slitnaði
lokaðist þessi veröld fyrir henni.
Sagan segir að Seuphor hafi fyllst
afbrýði út í vin sinn, ungverskan
málara og ástmann Ingibjargar, Zil-
zer að nafni. Þar getur hugsanlega
verið um að ræða Gyula Zilzer, ung-
verskan málara sem vann víða um
Evrópu en fluttist síðar til Banda-
ríkjanna. Vandinn er hins vegar sá
að Vera, dóttir Ingibjargar, hét Vera
Zilzer og hún fæddist nokkrum
árum fyrr. Það má hins vegar vel
vera að Zilzer sé listamaðurinn á
berklahælinu. Eða þá að Ingibjörg
hafi gefið Veru Zilzer-nafnið síðar
og eftir að hún kynntist Gyula.
Ljósbrot frá meginlandinu
Við vitum hins vegar ekki hversu
lengi samband þeirra entist. Ingi-
björg hraktist til Þýskalands undan
afbrýðisemi Seuphor og flutti síðan
með Veru til Íslands árið 1934 þar
sem hún opnaði snyrtistofu og bjó
til smyrsl og sápur úr kindatólg
meðal annars. Hún nýtti þar efna-
fræðinámið sitt og námskeið sem
hún hafði sótt til Helenu Ruben-
stein í gerð snyrtivara. Ingibjörg
skýrði stofuna og kremin Vera
Simillon, eftir sjö ára dóttur sinni
að hluta. Hugsanlega er enn til fólk
sem man Veru Simillon. Ingibjörg
auglýsti kremin og stofuna mikið
og víða. Og hún seldi framleiðsluna
þegar hún flutti út aftur. Lengst
var Vera Simillon júgursmyrsl
framleitt, líklega fram á sjöunda
áratuginn.
Sænski listfræðingurinn Moberg
spurðist fyrir um Ingibjörgu þegar
hann var að skrifa um Cercle et
Carré. Hún var heillandi en alltaf
mjög dularfull, sagði Þorvaldur
Skúlason. Halldór Laxness sagði að
henni hefði fylgt ljósbrot frá megin-
landinu. Það bendir til að Halldóri
hafi þótt nokkuð til hennar koma
enda var drengurinn frá Laxnesi
ætíð að elta þetta ljós frá meginland-
inu. Þráði ekkert heitar en að til-
heyra evrópskum menningarheimi.
Lækningamáttur listarinnar
Ingibjörg flutti aftur út til Þýska-
lands 1937. Þorleifur faðir hennar
dó ári eftir að hún flutti til landsins
og hugsanlega hefur hún verið of
lítið tengd landinu til að tolla. Fátt
er vitað um hana eftir þetta nema
hvað hún fór til Bandaríkjanna í
stríðsbyrjun og þaðan til Argentínu.
Hún bjó í Buenos Aires til dauða-
dags, 1978. Ingibjörg mun hafa
gifst aftur og starfað að mannúðar-
málum. Talið er að flest málverk
hennar og persónulegir munir hafi
glatast og eyðilagst þegar heimili
hennar var rænt.
Vera dóttir hennar ólst upp við
listir og varð málari. Hún vann að
listmeðferð með geðsjúkum með
kunnum argentískum geðlækni og
menningarfrömuði, Salomon Res-
nik. Sá trúði mjög á lækningamátt
listarinnar enda menningarmaður
sjálfur og mikill vinur skáldanna
Jorge Luis Borges og Aldo Pel-
legrini. Við getum ímyndað okkur
að þær mæðgur hafi tengst inn í
listalífið í Buenos Aires. Vera hélt
áfram að starfa við listmeðferð,
meðal annars við Lincolnspítalann í
Bronx í New York þegar hún fluttist
þangað. Síðar fluttist hún til Tórínó
á Ítalíu þar sem hún starfaði að list-
meðferð og gaf meðal annars úr
bók um þau fræði. Vera Zilzer dó
fyrir rúmum tíu árum, rétt tæplega
77 ára gömul.
Götótt saga af konum
Svona er sagan sem ég sagði
Sóleyju um föðursystur kjörömmu
hennar sem sýndi í húsinu þar sem
fasteignasala er í dag. Ég veit ekki
hvort allt af þessu er satt og rétt. Ég
týndi þetta til af internetinu og mik-
ið upp úr grein sem Hávar Sigur-
jónsson skrifaði í Lesbók Moggans
fyrir sextán árum. Mig langaði að
fóðra dóttur mína á sögum um kon-
ur sem höfðu lifað skemmtilegu lífi
sem þær mótuðu sjálfar. Og ég birti
þessi slitur hér í von um að einhver
taki sig til og reyni að ná betur utan
um sögu þessara góðu kvenna.
Sagan segir margt um síðustu öld
og baráttu kvenna fyrir að fá að lifa
sínu eigin lífi.
Og auðvitað segja holurnar sína
sögu um stöðu kvenna í sögunni. Í
listasögu okkar er Ingibjörg Stein
Bjarnason varla neðanmálsgrein
þótt hún hafi tilheyrt hópi lista-
manna sem stóð fyrir straumhvörf-
um í listasögunni. Það er ekki eins
og saga okkar sé uppfull af slíkum
skemmtilegheitum. Það myndi lífga
upp á hana að fá söguna af Ingi-
björgu Stein Bjarnason þar inn.
samtíminn 45 Helgin 19.-21. júní 2015