Fréttatíminn - 19.06.2015, Blaðsíða 63
Á sýningunni er
sjónum beint
að aðstæðum
kvenna á Íslandi
frá því þær fengu
kosningarétt árið
1915.
Þjóðminjasafn ný sýning opnuð 19. júní
Hvað hefur áunnist
á hundrað árum?
Sýningin „Hvað er
svona merkilegt við
það? Störf kvenna í
100 ár“ verður opnuð
í Bogasal Þjóðminja-
safns Íslands í dag,
föstudaginn 19. júní.
Sýningin er framlag
Þjóðminjasafnsins á
aldarafmæli kosn-
ingaréttar íslenskra
kvenna og sýningar-
gerðin er styrkt af
afmælisnefndinni.
Á sýningunni er
sjónum beint að að-
stæðum kvenna á Ís-
landi á liðinni öld eða
frá því konur fengu
kosningarétt árið
1915. Með sýningunni
veltir Þjóðminjasafnið
upp spurningum um
hvað hefur áunnist á
þessum 100 árum og
hvert sé stefnt.
Safnkostur Þjóðminjasafnsins veitir góða
heimild um sögu kvenna á öllum sviðum atvinnu-
lífsins, að því er fram kemur í tilkynningu safns-
ins. Á sýningunni er skyggnst inn í líf kvenna
sem eru fulltrúar þeirra sem stigið hafa fram í
störfum sem áður voru aðeins unnin af körlum;
kvenna sem hafa unnið afrek á sviði stjórnmála, í
embættisstörfum eða á sviði lista og íþrótta.
Mest seldu ofnar
á Norðurlöndum
áreiðanlegur hitagjafi
10 ára ábyrgð
LÁGHITA
MIÐSTÖÐVAROFNAR
Gæði fara aldrei úr tísku
14. maí - 20. júní / 14 May-20 June 2015
TVEIR HRAFNAR
listhús, Art Gallery
Baldursgata 12 101 Reykjavík
+354 552 8822 +354 863 6860 +354 863 6885
art@tveirhrafnar.is www.tveirhrafnar.is
Opið/Open
Fim-fös;12-17/Thu-Fri; 12pm-5pm
Lau;13-16/Sat; 1pm-4pm
og eftir samkomulagi/and by appointment
Hulda Hákon
„björg, sólskin, hetjur, himinn, haf og fuglar”
“cliffs, sunshine, heroes, sky, sea and birds”
Sýningin er hluti af dagskrá 29. Listahátíðar í Reykjavík 2015.
V ið byrjuðum að hittast síðasta sumar,“ segir Alma þegar hún er spurð út í tilurð sveitarinnar.
„Gummi hafði samband við mig því hann
var að setja saman band til þess að flytja
lögin sín. Hóaði saman góðum hópi og vildi
hafa þetta í svolitlum kántrí stíl. Í byrjun
átti ég nú bara að hjálpa honum með raddir
og slíkt á einum tónleikum. Svo gengu
fyrstu tónleikarnir svo vel að við ákváðum
að halda þessu áfram og ákváðum að setja
saman þessa plötu,“ segir Alma. „Þetta
þróaðist svo aðeins meira út í dúetta og
svo syngjum við lögin sitt á hvað. Allt eftir
fílingi. Ég hef sungið mikið af röddum
og líka sóló og finnst bæði skemmtilegt,“
segir Alma en hún hefur sungið með öllum
helstu tónlistarmönnum þjóðarinnar. Nú
síðast var hún áberandi í hópnum sem
söng fyrir Íslands hönd í Eurovision í vor.
„Við byrjuðum að taka upp fyrir jólin
og kláruðum í apríl,“ segir Alma. „Ég
hafði unnið með strákunum flestum áður
í allskonar verkefnum og hópurinn small
ótrúlega vel saman. Við komum úr ólíkum
áttum en sameinumst þarna,“ segir hún.
„Við héldum útgáfutónleika í vikunni á
Rósenberg sem var ótrúlega gaman. Það
er ekki á hverjum degi sem maður er að
gefa út plötu, svo það var frábært. Í sumar
ætlum við að spila sem mest og kynna
plötuna okkar,“ segir Alma Rut, söngkona
Vestanáttarinnar.
Platan fæst í öllum betri verslunum en
einnig er hægt að panta hana í gegnum
facebook síðu sveitarinnar.
TónlisT alma RuT synguR með nýRRi hljómsVeiT gumma jóns
Vestanátt yfir landinu
Hljómsveitin Vestanáttin gaf nýverið út sína fyrstu plötu. Hljómsveitin var stofnuð fyrir ári af
lagasmiðnum og sálverjanum Guðmundi Jónssyni sem langaði að koma lögum á framfæri sem
honum fannst ekki henta hljómsveit sinni, Sálinni hans Jóns míns. Söngkona Vestanáttarinnar,
Alma Rut, segir þau syngja mikið saman og mörg lögin séu nokkurskonar dúettar.
Alma Rut er söngkona Vestanáttarinnar. Ljósmynd/Hari
Við komum
úr ólíkum
áttum en
sameinumst
þarna.
62 menning Helgin 19.-21. júní 2015