Fréttatíminn - 19.06.2015, Blaðsíða 50
heilsa 49Helgin 19.-21. júní 2015
PIPAR\TBW
A • SÍA • 151922
Í Rekstrarlandi aðstoða sérfræðingar okkar við rétt val á hjálparvörum við þvagleka en
ávallt er um einstaklingsbundnar lausnir að ræða.
Eitt mesta úrval af hjálparvörum sem í boði er við þvagleka er frá hinum vandaða danska
framleiðanda Abena. Vörurnar fást í öllum stærðum og gerðum og búa yfir rakadrægni sem
hæfir hverju tilfelli fyrir sig þannig að auðvelt er að finna lausn sem hentar hverjum og einum.
Abena vörurnar eru flestar umhverfisvænar og framleiddar með það að markmiði að auka á
þægindi notenda. Þær eru mjúkar viðkomu, þægilegar og umfram allt lítt áberandi.
Skírteinishafar geta nú leitað beint til Rekstrarlands til þess að fá slíkar vörur afgreiddar
auk þess sem við sjáum um að koma vörunum heim til notenda án aukakostnaðar.
Rekstrarland er byggt á fyrrum rekstrarvörudeild Olís
og er dótturfyrirtæki Olíuverzlunar Íslands hf. Mörkinni 4 | 108 Reykjavík | Sími 515 1100www.rekstrarland.is
Upplýsingar fást í síma 515 1100 eða
á heilbrigdi@rekstrarland.is.
REKSTRARLAND býður upp
á hágæðavörur við þvagleka
sem samþykktar eru af
Sjúkratryggingum Íslands
Þ vagleki er algengt vanda-mál sem getur verið mjög íþyngjandi í daglegu lífi. Á
Íslandi á einn af hverjum sex við
þetta vandamál að stríða og er
þar um að ræða fólk á öllum aldri.
Sumir eiga erfitt með að fara í
ræktina vegna ótta við þvaglekann
og enn aðrir eiga á hættu að missa
stjórn á þvaglátum við það að hósta
eða jafnvel við að hlæja. Þar sem
þvagleki hefur verið álitinn feimn-
ismál verður vandamálið stundum
stærra en efni standa til. En ef ekk-
ert er að gert getur þvagleki skert
lífsgæði verulega og haft í för með
sér önnur vandamál og í sumum
tilvikum er hætta á félagslegri ein-
angrun. Sjúkratryggingar Íslands
niðurgreiða hjálparvörur við þvag-
leka, eins og bindi og bleiur.
Umhverfisvæn gæðavara
„Við erum með hágæðavörur frá
danska framleiðandanum Abena
sem hefur eitt mesta vöruúrval af
þvaglekabindum og -bleium í heim-
inum í dag,“ segir Jóhanna Runólfs-
dóttir, sölu- og þjónusturáðgjafi hjá
Rekstrarlandi. Jóhanna er sjúkra-
liði og hefur áralanga reynslu af
fræðslu um notkun þvaglekavara
og mikla þekkingu sem nýtist
þegar velja á réttar vörur. „Vör-
urnar eru til í ýmsum stærðum
og gerðum með mismikilli raka-
drægni þannig að allir ættu að
finna vöru sem hentar. Þetta eru
umhverfisvænar vörur, mjúkar og
þægilegar.“
Fagleg og persónuleg þjón-
usta
„Við leggjum sérstaka áherslu á
persónulega og faglega þjónustu
við notendur þessara vara og að-
standendur þeirra. Við erum með
góða aðstöðu í sérstöku viðtals-
herbergi þar sem við aðstoðum
notendur við að finna þá gerð og
stærð sem hentar. Þar erum við
með sýnishorn af hjálpargögn-
unum, góða upplýsingabæklinga
og fyrst og fremst næði til að ræða
hvað hentar hverju tilfelli fyrir
sig. Að auki sendum við sýnis-
horn heim til þeirra sem það vilja,“
segir Jóhanna, sem tekur á móti
viðskiptavinum í verslun Rekstrar-
lands í Mörkinni 4. Skírteinishafar
hjá Sjúkratryggingum Íslands geta
nú leitað beint til verslunarinnar til
að þess að fá þvaglekavörurnar af-
greiddar og sendar heim.
Unnið í samtarfi við
Rekstrarland
Þvagleki
getur verið
íþyngjandi
Þvagleki er algengara
vandamál en marga grunar.
Vörurnar frá Abena eru um-
hverfisvænar og hafa reynst
vel þeim sem glíma við
þvagleka. Jóhanna Runólfs-
dóttir sjúkraliði starfar hjá
Rekstrarlandi og veitir hún
viðskiptavinum góð ráð um
val á viðeigandi hjálpar-
gögnum.
Jóhanna Runólfsdóttir, sjúkraliði og starfsmaður hjá Rekstrarlandi.