Fréttatíminn


Fréttatíminn - 19.06.2015, Page 50

Fréttatíminn - 19.06.2015, Page 50
heilsa 49Helgin 19.-21. júní 2015 PIPAR\TBW A • SÍA • 151922 Í Rekstrarlandi aðstoða sérfræðingar okkar við rétt val á hjálparvörum við þvagleka en ávallt er um einstaklingsbundnar lausnir að ræða. Eitt mesta úrval af hjálparvörum sem í boði er við þvagleka er frá hinum vandaða danska framleiðanda Abena. Vörurnar fást í öllum stærðum og gerðum og búa yfir rakadrægni sem hæfir hverju tilfelli fyrir sig þannig að auðvelt er að finna lausn sem hentar hverjum og einum. Abena vörurnar eru flestar umhverfisvænar og framleiddar með það að markmiði að auka á þægindi notenda. Þær eru mjúkar viðkomu, þægilegar og umfram allt lítt áberandi. Skírteinishafar geta nú leitað beint til Rekstrarlands til þess að fá slíkar vörur afgreiddar auk þess sem við sjáum um að koma vörunum heim til notenda án aukakostnaðar. Rekstrarland er byggt á fyrrum rekstrarvörudeild Olís og er dótturfyrirtæki Olíuverzlunar Íslands hf. Mörkinni 4 | 108 Reykjavík | Sími 515 1100www.rekstrarland.is Upplýsingar fást í síma 515 1100 eða á heilbrigdi@rekstrarland.is. REKSTRARLAND býður upp á hágæðavörur við þvagleka sem samþykktar eru af Sjúkratryggingum Íslands Þ vagleki er algengt vanda-mál sem getur verið mjög íþyngjandi í daglegu lífi. Á Íslandi á einn af hverjum sex við þetta vandamál að stríða og er þar um að ræða fólk á öllum aldri. Sumir eiga erfitt með að fara í ræktina vegna ótta við þvaglekann og enn aðrir eiga á hættu að missa stjórn á þvaglátum við það að hósta eða jafnvel við að hlæja. Þar sem þvagleki hefur verið álitinn feimn- ismál verður vandamálið stundum stærra en efni standa til. En ef ekk- ert er að gert getur þvagleki skert lífsgæði verulega og haft í för með sér önnur vandamál og í sumum tilvikum er hætta á félagslegri ein- angrun. Sjúkratryggingar Íslands niðurgreiða hjálparvörur við þvag- leka, eins og bindi og bleiur. Umhverfisvæn gæðavara „Við erum með hágæðavörur frá danska framleiðandanum Abena sem hefur eitt mesta vöruúrval af þvaglekabindum og -bleium í heim- inum í dag,“ segir Jóhanna Runólfs- dóttir, sölu- og þjónusturáðgjafi hjá Rekstrarlandi. Jóhanna er sjúkra- liði og hefur áralanga reynslu af fræðslu um notkun þvaglekavara og mikla þekkingu sem nýtist þegar velja á réttar vörur. „Vör- urnar eru til í ýmsum stærðum og gerðum með mismikilli raka- drægni þannig að allir ættu að finna vöru sem hentar. Þetta eru umhverfisvænar vörur, mjúkar og þægilegar.“ Fagleg og persónuleg þjón- usta „Við leggjum sérstaka áherslu á persónulega og faglega þjónustu við notendur þessara vara og að- standendur þeirra. Við erum með góða aðstöðu í sérstöku viðtals- herbergi þar sem við aðstoðum notendur við að finna þá gerð og stærð sem hentar. Þar erum við með sýnishorn af hjálpargögn- unum, góða upplýsingabæklinga og fyrst og fremst næði til að ræða hvað hentar hverju tilfelli fyrir sig. Að auki sendum við sýnis- horn heim til þeirra sem það vilja,“ segir Jóhanna, sem tekur á móti viðskiptavinum í verslun Rekstrar- lands í Mörkinni 4. Skírteinishafar hjá Sjúkratryggingum Íslands geta nú leitað beint til verslunarinnar til að þess að fá þvaglekavörurnar af- greiddar og sendar heim. Unnið í samtarfi við Rekstrarland Þvagleki getur verið íþyngjandi Þvagleki er algengara vandamál en marga grunar. Vörurnar frá Abena eru um- hverfisvænar og hafa reynst vel þeim sem glíma við þvagleka. Jóhanna Runólfs- dóttir sjúkraliði starfar hjá Rekstrarlandi og veitir hún viðskiptavinum góð ráð um val á viðeigandi hjálpar- gögnum. Jóhanna Runólfsdóttir, sjúkraliði og starfsmaður hjá Rekstrarlandi.

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.