Fréttatíminn - 19.06.2015, Síða 4
Suður England og Wales 10.-16.ágúst
Sjö daga ferð um Suður England og Wales
Ein af vinsælustu ferðunum okkar
Ekið um borgir og þorp í hjarta Englands og komið víða við.
Skemmtileg og fræðandi ferð. Skoðunarferðir alla daga og hálft fæði
innifalið. Flogið með Icelandair. Fararstjóri er Emil Örn Kristjánsson.
Verð frá 198.500,- kr
Ferðaskrifstofa Guðmundar Jónssonar
Borgartún 34, 105 Reykjavík, S: 511-1515, outgoing@gjtravel.is , www.ferdir.is
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
Léttir tiL um aLLt Land og
hLýnar jafnframt.
höfuðborgarsvæðið: Skýjað
fyrSt en Síðan Sýnir Sólin Sig.
Áfram fremur bjart og hLýtt
n- og na-Lands. skúrir s-Lands.
höfuðborgarsvæðið: Skýjað
með köflum og hæg a-átt.
na-Átt og smÁ væta sa-tiL, en annars
þurrt og bjart með köfLum.
höfuðborgarsvæðið: Skýjað að
meStu, úrkomulauSt og milt veður.
Fremur sólríkt heilt yfir
Það sem skiptir mestu með helgarspána er
að veður verður tiltölulega milt og þetta
verða fyrstu dagarnir sem munu liggja um
og ofan meðalhita árstímans. mjög víða
léttskýjað í dag, kvenréttindadaginn. horf-
ur á að þurrt verði um land allt. Sama á
morgun, nema að bakki úr suðri
leggst upp að suðurströndinni.
S-lands eru horfur á smá vætu
síðdegis og um kvöldið. á sunnu-
dag snýst í na-átt, strekkingur
á vestfjörðum. Þá sýnir þokan
sig við n- og a-ströndina, en
horfur eru á nokkuð hlýjum
degi S- og Sv-lands.
12
11 15
16
12
14
12 17
17
13
15
11 10
9
16
einar sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
78%
samdráttur hefur orðið á sölu geisla-
diska og hljómplatna frá árinu 1999 og
þar til í fyrra. í fyrra seld ust 192 þúsund
ein tök af geisladisk um og hljóm plöt-
um, eða 676 þúsund færri en árið 1999
þegar sal an nam 868 þúsund ein tök um.
Inntökupróf í Versló?
verzl un ar skóli íslands mun hugs an-
lega nota inn töku próf þegar nem end ur
verða tekn ir inn í skól ann að ári. Skól-
inn hafnaði 60 nem end um með 9,0 eða
hærra í meðal ein kunn í ár. ingi ólafsson
skólastjóri segir að einkunnir nemenda
úr grunnskólum hafi hækkað mikið frá
því samræmd próf voru aflögð í tíunda
bekk árið 2008. „Það er ótrú leg ur fjöldi
nem enda sem er hafnað í ár,
nem end ur sem und an far in ár
hefðu alltaf kom ist inn,“ segir
ingi við mbl.is.
Atvinnulaus vann 60
milljónir
atvinnulaus kona á
besta aldri vann
60 milljónir króna
í lottó um síðustu
helgi. konan var í
hálfgerðu áfalli þegar
hún mætti á skrifstofu íslenskrar get-
spár til að vitja vinningsins.
Mótmælt á þjóðhátíðardaginn
um 2.500-3.000 mann mótmæltu á
austurvelli á þjóðhátíðardaginn þegar
Sigmundur Davíð gunnlaugsson for-
sætisráðherra flutti ræðu sína. Gerð
voru hróp að Sigmundi og Ólafi Ragnari
grímssyni forseta þegar þeir lögðu
blómsveig að minnismerki jóns Sigurðs-
sonar.
vikan sem var
edda til Íslandsbanka
edda hermannsdóttir hefur
verið ráðin samskiptastjóri
íslandsbanka. hún mun
bera ábyrgð á samskiptum
og upplýsingagjöf bankans
til fjölmiðla sem og sam-
félagsstefnu bankans.
edda, sem er dóttir fjöl-
miðlamannsins hermanns
gunnarssonar, hefur
starfað sem blaðamaður
á viðskiptablaðinu frá því
2012 og verið aðstoðarrit-
stjóri frá 2014. hún
hefur einnig starfað við
dagskrárgerð á rúv.
edda er hagfræðingur
frá háskóla íslands.
F jórir dagar eru langur tími í kjaravið-ræðum,“ segir Guðmundur Ragn-arsson, formaður Félags vélstjóra
og málmtæknimanna (VM), en Samtök
atvinnulífsins (SA) slitu kjaraviðræðum við
VM og Rafiðnaðarsamband Íslands (RÍ) á
þriðjudag. Sjö sólarhringa verkfall á fimmta
þúsund iðnaðarmanna í þessum tveimur
stéttarfélögum er yfirvofandi á miðnætti
næsta þriðjudag, eftir fjóra daga, ef ekki
tekst að semja fyrir þann tíma. Verkfalli var
frestað í síðustu viku þar sem talið var að
deiluaðilar væru að nálgast hver annan.
Algjört stopp er í kjaraviðræðunum og
síðdegis í gær, fimmtudag, hafði ríkissátta-
semjari ekki boðað til nýs fundar. „Hann
hlýtur nú að boða til allavega eins fundar
áður en verkfallið skellur á,“ segir Guð-
mundur. Hann er afar ósáttur við samn-
inga SA við Starfsgreinasambandið, VR
og Flóabandalagið og telur þá hreinlega
hafa „rústað“ launakerfum landsins. „Það
er mjög slæmt hljóð í mönnum og við upp-
lifum að í framhaldi af hinum samningnum,
sem í raun var engin sátt um, sé nú verið
að troða þessu hráu niður í kokið á okkur,“
segir hann. „Þessi stóru félög sem sömdu á
undan okkur eru í raun búin að hafa af okk-
ur samningsréttinn því þau krefjast þess að
enginn fái meira en þau,“ segir Guðmundur.
Haft var eftir Þorsteini Víglundssyni,
framkvæmdastjóra SA, í Morgunblaðinu
í gær að SA hefðu slitið samningaviðræð-
unum vegna þess að fulltrúar VM og RÍ hafi
á seinustu stundu komið fram með viðbótar-
launahækkanir. Guðmundur mótmælir
þessu. „Við komum ekki með viðbótarlauna-
kröfur en við komum vissulega með ýmsar
sérkröfur. Dæmi um þær eru að við viljum
falla frá því að það taki launamann 10 ár hjá
sama fyrirtæki til að ná fullum orlofsrétti.
Ef hann hættir hjá fyrirtækinu eða fyrir-
tækið skiptir um kennitölu þarf hann að
byrja upp á nýtt að safna orlofsréttindum,“
segir Guðmundur.
Aðeins einn fundur var boðaður í gær hjá
ríkissáttasemjara en þá var fundað í kjara-
deilu mjólkurfræðinga og SA.
Uppsagnir hjúkrunarfræðinga hrannast
upp og hafa á annað hundrað uppsagnir
borist eftir að lög voru sett á verkfall Félags
íslenskra hjúkrunarfræðinga og Bandalags
háskólamanna í síðustu viku. Þar hafa verið
teknir stöðufundur en ekki boðað til fundar
um kjaraviðræður. Hafi samningar ekki
náðst um mánaðarmót fer deilan í gerðar-
dóm.
erla hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
kjaramál enn er ósamið við rÍ og vm
Reyna að troða samningi
niður í kokið á okkur
Allt stefnir í verkfall um 3400 iðnaðarmanna í Rafiðnaðarsambandi Íslands og Félagi vélstjóra
og málmtæknimanna þriðjudaginn 22. júní. Sáttasemjari hefur ekki boðað til fundar í kjaradeilu
þeirra við Samtök atvinnulífsins en upp úr viðræðum slitnaði fyrr í vikunni. ekkert miðar í við-
ræðum félags hjúkrunarfræðinga og Bandalags háskólamanna við Sa en ef ekki semst fyrir
mánaðamót tekur gerðardómur málið upp.
Boðað
verkfall
vm og rí
hefst aðfararnótt
þriðjudagsins 22.
júní. um 3400
manns fara þá í
verkfall, þar af
2700 félagar í
Rafiðnaðarsam-
bandinu og um
1700 í félagi vél-
stjóra- og málm-
tæknimanna.
enn er mikill hiti í launafólki. allt stefnir í verkfall félags vélstjóra og málmtæknimanna og rafiðnaðarsambands íslands. Þá fer
kjaradeila hjúkrunarfræðinga og Bhm við Samtök atvinnulífsins í gerðardóm ef ekki semst fyrir mánaðamót. Ljósmynd/Hari
4 fréttir helgin 19.-21. júní 2015