Fréttatíminn - 19.06.2015, Side 12
Kæli- og frystiskáparnir frá Siemens eru vel hannaðir að innan sem utan.
Í innréttingunum eru stillanlegar hillur, einstaklega björt LED-lýsing og
mikið rými.
Svo að ekki þurfi að henda mat koma „crisperBox“- og „coolBox“-skúff-
urnar að góðum notum. „crisperBox“-skúffan er með rakastillingu sem
tryggir lengur ferskleika grænmetis og ávaxta. Í „coolBox“-skúffunni er
kuldinn meiri (-2° til 3° C) en annars staðar í kælinum og eykur þar með
geymsluþol ferskra kjötvara og fisks. Í frystirými sambyggðu kæli- og
frystiskápanna eru þrjár gegnsæjar frystiskúffur, þar af ein stór
(„bigBox“).
Með því að velja skápa með „noFrost“ sleppa menn alveg við að affrysta
frystirýmið.
Kæli- og frystiskáparnir frá Siemens hafa mjög góða orkunýtni.
Þeir eru nú allir í orkuflokki A+, A++ eða A+++.
Siemens er í fararbroddi í hönnun, tækni
og nýjungum.
Smith & Norland er Siemens-umboðið á
Íslandi.
Smith & Norland sinnir varahluta- og
viðhaldsþjónustu af faglegum metnaði
á eigin verkstæði.
Kæli- og frystiskápar
frá Siemens
Ég mun virða allar
óskir um hvernig
fólk vill að frásögn
þess verði geymd og
hversu lengi.
Sigríður Hjördís
Jörundsdóttir
sagnfræðingur
hvetur þolendur
kynferðisof-
beldis til að
hafa samband
við sig. Hún
fékk þá hug-
mynd að safna
reynslusögum í
sagnfræðilegum
tilgangi í kjölfar
BeautyTips-
byltingarinnar.
Ljósmynd/Hari
án ára spurði í hópnum hvort þar
væru einhverjar sem hefðu lent í
honum. Barnsmóðirin unga gaf
sig þar fram og heitar umræður
spunnust upp. Stúlkurnar ræddu
mismunandi birtingarmyndir
kynferðisofbeldis og áreitni en
þegar umræðan virtist farin
á villigötur eyddi stjórnandi
hópsins allri umræðunni. Það
var þá sem byltingin hófst og
hver af annarri tóku stúlkur að
birta eigin reynslusögur af kyn-
ferðisofbeldi og nauðgunum og
merktu þær með „hashtag“-inu
#þöggun eða #konurtala
Þagði yfir nauðguninni
Þegar Sigríður Hjördís deildi
sinni reynslu á BeautyTips
sagðist hún gera það því kyn-
bundið ofbeldi hefði allt of lengi
verið inngróinn hluti af íslensku
samfélagi. Hún sagði síðan frá
því þegar hún fór á ball þann 16.
júní 1989. „Ég drakk ótæpilega
á þessu balli eftir að ég fékk
slæmar fréttir tengdar ástar-
málum og man ekki mikið eftir
frásögnin er aðgengileg hverjum sem vill
skoða hana og hana má nýta í rannsóknir
og til birtingar.
Sigríður Hjördís mun síðan sjá um að
prenta frásagnirnar út og ganga frá þeim
á þann hátt sem hver og ein óskar eftir.
Þeir sem senda henni frásagnir samþykkja
þið um leið að þær verði varðveittar til
framtíðar.
Þessi hópur stendur einnig að baki
heimasíðunni Konurtala.wordpress.com/
þar sem frásagnirnar verða birtar, óski
þeir sem afhenda þær eftir því, en nú hafa
þær 14 frásagnir sem Sigríður Hjördís
hefur fengið afhentar allar verið birtar þar.
kvöldinu. Ég man þó að ég fór í eftir-
partí með vinkonu minni. Ég man líka
eftir því að ég valdi að vera eftir þegar
vinkona mín fór heim en svo varð
allt svart. Næsta sem ég veit er að
ég vakna að morgni 17. júní og þá er
einhver karl á fullu ofan á mér. Hann
lauk sér af, fór svo á klósettið og ég
notaði tækifærið til að koma mér út.
Ældi reyndar áður á gólfið hjá honum
og man að ég hugsaði með mér að það
væri hefndin mín! Ég sagði engum
frá, tók þessu sem hverju öðru hunds-
biti, það var jú ég sem hafði drukkið
ótæpilega og það var ég sem valdi að
halda djamminu áfram,“ skrifaði hún í
BeautyTips.
Fjórum dögum eftir að frásagnirnar
tóku að birtast gerði Sigríður Hjördís
lauslega athugun á fjölda þeirra og
komst að því að minnst 322 þolendur
kynferðisofbeldis höfðu sagt þar frá,
og gerendurnir væri minnst 525.
„Þessar frásagnir eru bara toppurinn
á ísjakanum,“ segir hún en stærstur
hluti meðlima BeautyTips er á aldr-
inum 13-30 ára þó fjöldi eldri kvenna
hafi bæst í hópinn eftir að byltingin
hófst.
Aðeins komnar 14 sögur
Sigríður Hjördís afritar ekki sögur án
leyfis og hvetur hún fólk til að hafa
samband við sig. Enn sem komið er
hefur hún aðeins fengið 14 sögur. „Ég
mun virða allar óskir um hvernig fólk
vill að frásögn þess verði geymd. Ég
þekki vel inn á safnaheiminn og get
fullvissað alla um það að aðgengi að
frásögnunum verður lokað sé þess
óskað og sömuleiðis verða óskir um
nafnleynd virtar. Svona gagnasafn er
kjörið fyrir þá sem eru að gera rann-
sóknir, bæði sagnfræðilegu tilliti og
svo til að reyna að átta sig á þessari
byltingu,“ segir hún.
„Upphaflega ákvað ég að deila
minni sögu því ég á tvo unglinga, 19
ára strák og 15 ára stelpu, og ég von-
ast til að umræðan verði til þess að
kynferðisbrotum fækki. Ég geri þetta
ekki síst fyrir börnin mín,“ segir hún.
„Ég las að nýlega að það megi gera ráð
fyrir því að tæplega önnur hver kona
verði fyrir nauðgun eða nauðgunartil-
raun á ævi sinni. Er það eitthvað lög-
mál sem við tökum bara gott og gilt?“
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
fréttaviðtal 11 Helgin 19.-21. júní 2015