Fréttatíminn


Fréttatíminn - 19.06.2015, Side 16

Fréttatíminn - 19.06.2015, Side 16
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | SÍMI 510 1700 | WWW.VR.IS „Vér heilsum glaðar framtíðinni, þar sem karlar og konur vinna í bróðerni saman að öllum landsmálum, bæði á heimilunum og á Alþingi.“ Jafnréttisbaráttan Verzlunarmannafélag Reykjavíkur var stofnað árið 1891 en fyrsta konan fékk ekki inn göngu fyrr en árið 1900. Næstu ár voru tími mikilla breytinga, ekki síst á viðhorfum til kynhlutverka. Árið 1907 var Kvenréttindafélag Íslands stofnað á heimili Bríetar Bjarnhéðinsdóttur til að „starfa að því að íslenskar konur fái fullt stjórnmálajafnrétti á við karlmenn, kosningarétt, kjörgengi svo og rétt til embætta og atvinnu með sömu skilyrðum og þeir“. Sama ár urðu verkakonur í Hafnarfirði fyrstar íslenskra kvenna til að fara í verkfall og uppskera launahækkun. 19. júní 1915 var ný stjórnarskrá staðfest. Konur, 40 ára og eldri, fengu þar með rétt til að kjósa til Alþingis. Fimm árum síðar voru sett lög sem færðu öllum 25 ára og eldri kosningarétt, óháð kyni, hjúskapar- og eignastöðu. Konur fylkja liði Atvinnuþátttaka kvenna jókst næstu ára tugi. Það var þó ekki fyrr en 1958 að sam þykkt voru lög um að sérstakir kvenna taxtar skyldu hverfa úr samningum. Á kvennafrídaginn, 24. október 1975, tóku konur sig saman um allt land og lögðu niður störf. Þannig sýndu þær fram á ótvírætt mikilvægi vinnuframlags kvenna. Þann dag þurftu feður margir hverjir að taka börn sín með til vinnu og sáu þá sum börn vinnustað feðra sinna í fyrsta sinn. Þegar Vigdís Finnbogadóttir var kjörin forseti árið 1980, fyrst kvenna í lýðræðisríki í heiminum, varð hún fyrirmynd kynslóða sem ólust upp við það sem sjálf sagðan hlut að þjóðhöfðingi geti verið kvenkyns. Málefni beggja kynja Árið 1970 var samið um rétt mæðra til 10 daga fæðingarorlofs. Sex árum síðar var fest í lög að konur fengju sem svarar 90 daga atvinnuleysisbótum eftir að hafa eignast barn. Það var ekki fyrr en um alda- mótin 2000 að réttur beggja foreldra til fæðingarorlofs var loks tryggður og í dag þykir það sjálfsagt mál að báðir foreldrar taki sér fæðingarorlof. Kynbundinn launamunur hefur minnkað jafnt og þétt á 21. öldinni, en hann var þó enn 8,5% í VR árið 2014. Það þýðir að konur í stærsta stéttarfélagi landsins vinna launalaust einn mánuð á ári miðað við karla. Jafnlaunavottun VR var kynnt til sögunnar árið 2013 og er markviss leið til að leiðrétta þennan launamun. * *Bríet Bjarnhéðinsdóttir flytur hátíðar- ræðu á Austurvelli, 7. júlí 1915. VR óskar konum og körlum til hamingju með daginn. Við minnum á að baráttunni er ekki lokið. Í tilefni dagsins verða skrifstofur VR lokaðar eftir hádegi.

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.