Fréttatíminn - 19.06.2015, Page 18
Ragga. Inga Rún gítarleikari hafði
lært á klassískan gítar en einnig
verið að spila með Upplyftingu og
hafði rafgítarreynslu þannig að hún
small inn. Svo var það Herdís bassa-
leikari sem hafði verið að semja lög,
sem var svo frábært, og fantaflink
á bassann. Þarna voru Grýlurnar
komnar og af því að ég hafði minnst
á þetta í þessu viðtali, þá var ég svo-
lítið búin að stilla mér upp við vegg,“
segir Ragga. „Það biðu allir eftir
þessu og það var mikil pressa, en
næsta ögrun var að segja já við því
að spila á fyrstu tónleikunum, sem
voru í Austurbæjarbíói,“ segir hún.
„Þetta var tíu dögum eftir að band-
ið var stofnað og við vorum skelfi-
legar. Örugglega eins heimskulegt
og hægt er að hugsa sér að segja já
við þessu,“ segir Ragga með glotti.
„Það kom umfjöllun á bakhliðinni
á DV með mynd af okkur, þar sem
stóð „Ekki nógu góðar Grýlur,“ seg-
ir Ragga. „Skotleyfið hafði verið gef-
ið og við skotnar í kaf. „Ég gleymi
ekki stundinni í æfingarhúsnæðinu
daginn eftir. Ég var með ábyrgðina
á þessu klúðri og varð því að taka
peppstund. „Þetta var bara frábært
stelpur! Eftir þetta er leiðin aðeins
upp á við. Nú fáum við að vera í friði
og byrjum bara að æfa.“ Svo þetta
var kannski ekki svo slæmt að fá
þessa útreið í DV,“ segir Ragga.
Rafmagnið tekið af
Grýlurnar gáfu út smáskífu þar
sem lagið Fljúgum hærra eftir Jó-
hann G Jóhannsson var á, og varð
vinsælt. Sveitinni fór mikið fram
og árið 1983 kom út stóra platan,
Mávastellið. Ragga segir að um-
talið um Grýlurnar hafi alltaf verið
gott, en hún sagði samt að margir
strákanna í bransanum hafi ekki
verið að fíla þetta.
„Veit ekki hvort það var vegna
þess að þetta var kraftmikil og
ákveðin kvennarokkhljómsveit
sem var alls ekki að afsaka sig eða
þeim fannst við ekki nógu flinkar.
Það mætti líkja þessu við fótbolt-
ann þar sem kvennafótbolti fór í
taugarnar á mönnum í byrjun af því
þær voru ekki alveg komnar með
æfinguna eða milljón ára reynslu
eins og þeir,“ segir Ragga. „Nú eru
þær loksins að fá viðurkenningu.
Konur þurfa greinilega að leggja
sig margfalt fram miðað við karl-
ana svo þær séu marktækar og
virtar.
Við spiluðum einu sinni í Sigtúni
ásamt fleiri hljómsveitum og ein-
hver sló út rafmagnið í miðju lagi
hjá okkur, “ segir hún. „Við auðvi-
tað kenndum þekktri karlrembu-
sveit um verknaðinn, þó svo það
hafi ekki verið staðfest, gott atriði
svona eftir á og hefur birst í bíó þar
sem Gærurnar klippa á rafmagns-
vírinn,“ segir hún. „Þeim fannst
einhver ógn stafa af okkur, við
vorum þarna komnar inn á þeirra
heimasvæði. Það voru ósjálfráð
viðbrögð sem birtust þannig að
það var gert grín að okkur með
einhverjum töffarafrösum sem
eru fyndnir en undir niðri er það
smá hroki og þar af leiðandi smá
hræðsla við að missa eitthvert vald
og stjórnun.
Það eimir eftir af þessu ennþá
hjá allt of mörgum sem kannski
mætti segja að sé einhvers konar
ávani líka. En ef maður skoðar
hvar vandinn liggur í bransanum,
svona yfir höfuð og af hverju kon-
ur hafa sig svo lítt í frammi, held
ég að hann liggi í því að stjórnunin
í all flestum ef ekki öllum útgáfu-
fyrirtækjunum er karllæg,“ segir
Ragga. „Þeir eru komnir með ein-
hverja formúlu sem virkar vel, fyr-
ir þá. Þetta er merkilega geirneglt
út um allan heim. Þess vegna eru
þeir búnir að ákveðna hvernig kon-
urnar birtast í þessum bransa, og
það er lang þægilegast að hafa þær
eftir þeirra reglum, útlitslega og
tónlistarlega. Þetta er grunnurinn
að vandanum. Konur nenna ekki að
taka þátt í svona rugli sem gengur
út á þessa formúlu, en við vitum að kon-
ur eru út um allan bæ að búa til tónlist,
það vantar sko ekki. Nú þarf að birta
tónlistina eins og þær vilja að hún birt-
ist,” segir Ragga.
Sjúkar Grýlur
„Við fórum þá leið að heita Grýlurnar af
því að það var svona samheiti yfir „kell-
ingar“ frá Pétri heitnum Kristjáns,“ seg-
ir Ragga. „Ef einhver var sjúk Grýla,
þá var það mjög flott kona. Með þessu
var konum haldið aðeins fyrir neðan
strákana. Við ákváðum bara að fara alla
leið með þetta og hafa þema sem er að
gera grín að karlrembunni. Við ákváð-
um að vera Grýlurnar en ekki tröllin í
fjöllunum og ekki fegurðardrottningar
heldur konur í vígaham,“ segir hún.
„Við máluðum okkur með einhvers-
konar stríðsmálningu, klæddum okkur
í blúndubuxur, utan yfir gammósíurnar
og allt til þess að vera með kaldhæðni á
það sem átti að vera sexí. Allir textarn-
ir fjölluðu líka um það hvað karlarnir
væru æðislegir, í kaldhæðni. Aðdáunin
og undirgefnin voru mjög ríkjandi um-
fjöllunarþema, sem var okkar sterkasta
vopn til þess að koma okkar skoðun á
framfæri,“ segir hún.
Hvernig tóku aðrar stelpur í þetta?
„Þær voru algerlega með okkur í liði,“
segir Ragga.
„Af því að við gerðum ekki út á staðl-
aða fegurð heldur kraft og dirfsku þá
fundu aðrar stelpur samsvörun í okkur.
Stór hópur aðdáenda okkar var í hópi
samkynhneigðra, bæði konur og karl-
ar,“ segir hún. „Þessir hópar eltu okkur
hvert á land sem var. Eftir að við vorum
með í bíómyndinni Með allt á hreinu,
með Stuðmönnum, fengum við alveg
helling að gera og vorum við þakk-
látar fyrir þá snilld,“ segir Ragga. „Við
spiluðum í Skandinavíu þar sem við
fengum feiknalega góðar viðtökur, og
Steinar Berg, sem þá var plötuútgefandi
hér heima, vildi endilega gefa okkur
út á Norðurlöndunum,“ segir hún. „Þá
vorum við komnar í mikinn ham og til
þess að gera langa sögu stutta þá gáf-
ust stelpurnar upp, og málið var dautt,“
segir Ragga.
Bjóst við meiri áhrifum
Grýlurnar ruddu ákveðna braut hvað
varðar kvennahljómsveitir á Íslandi.
Það hafa þó ekki verið margar eftir
þeirra daga sem eru skipaðar eingöngu
konum, en konum fer fjölgandi sem
semja tónlist og spila í hljómsveitum,
hvort sem þær eru einar með strákun-
um, eða í meirihluta. Ragga segir þó að
hún væri til í að sjá fleiri.
„Ég hélt á sínum tíma að það yrði
meiri gróska en varð,“ segir hún. „Það
voru svo margar stelpur sem komu
í prufurnar að ég hélt að þær myndu
bara stofna sínar eigin hljómsveitir.
Þetta var og er mikið hark og þú getur
ekki gert mikið annað með. „Stelpur
hafa í grunninn aðra sýn og tilfinningu
í tónlist en karlmenn, sem er frábært að
átta sig á og samþykkja, en það er ekki
endilega það sem rokkbransinn í sínu
karllæga formi býður upp á í heimin-
um. Konur eignast líka börn, sem tekur
tíma. Það tekur tíma að ganga með þau
og ala þau upp,“ segir Ragga.
„Það getur verið mjög erfitt að byrja
aftur eða halda áfram. Vonandi á þetta
eftir að breytast og verða aðgengilegra
fyrir konur. Það gerist ef konur taka
í taumana og setja línuna eins og þær
vilja hafa hana. Það þarf kjark í það því
þessi karllægi yfirmannabransi er ansi
valdamikill og sterkur,“ segir hún. „En
konur þurfa ekki að sanna sig með því
að vera eins og karlmenn. Gleymum því
rugli. Það held ég að sé mikilvægast
í þessu. Þær geta opnað dyrnar fyrir
jafnt konum sem körlum og þegið að
slíkt hið sama sé fyrir þær gert. Ég
vil gagnkvæma virðingu og jafnrétti
kynjanna á öllum sviðum og þannig
verður það.“
Eiga Grýlurnar eftir að koma saman?
„Nei, það verður ekki,“ segir Ragga
Gísla, með bros á vör – og við það situr.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
En konur
þurfa ekki
að sanna sig
með því að
vera eins og
karlmenn.
Gleymum
því rugli.
Það held ég
að sé mikil-
vægast í
þessu.
viðtal 17 Helgin 19.-21. júní 2015
Hulstur
að verðmæti
4.990 kr.
fylgir
Sá allra besti frá
Samsung
Galaxy S6 frá Samsung hefur slegið í gegn í sumar.
Nú færðu Clear Cover hulstur, að verðmæti 4.990 kr.,
í kaupbæti með öllum Galaxy S6.*
Nýttu tækifærið!
Vodafone
Við tengjum þig
*Gildir ekki fyrir Samsung Galaxy S6 Edge og aðeins á meðan birgðir endast.
**ÁHK 7,57%
Samsung Galaxy S6 – 32GB
5.390 kr.
á mán. í 24 mán.**
119.990 kr. stgr.