Fréttatíminn - 19.06.2015, Síða 69
Í takt við tÍmann ingibjörg Elsa turchi
Rokkar á bassanum og kennir forngrísku
Ingibjörg Elsa Turchi er 26 ára tónlistarkona sem er einn skipuleggjenda og kennara á Stelpur
rokka! námskeiðinu sem nú stendur yfir. Hún er uppalin og búsett í miðbæ Reykjavíkur en ættar-
nafnið sækir hún til ítalsks föður síns.
Ingibjörg Elsa er annar tónlistarstjóra á tón-
leikunum Höfundur óþekktur sem haldnir
eru í tilefni af 100 ára afmæli kosningaréttar
kvenna. Á tónleik-
unum syngja
karlar lög
íslenskra
kvenhöfunda
við undir-
leik og hljóm-
sveitarstjórn kvenna.
Tónleikarnir eru í Eld-
borgarsal Hörpu í kvöld,
föstudaginn 19. júní, og hefjast
klukkan 20.30. Miðasala er á Harpa.
is en tónleikarnir eru í beinni útsendingu
á RÚV.
Staðalbúnaður
Ég geng eiginlega alltaf í kjólum eða pilsi.
Fallegir, síðir, „second hand“ blómakjólar
eru í miklu uppáhaldi. Ég kaupi mikið í
„second hand“ búðum en svo versla ég líka
þegar ég fer til útlanda.
Hugbúnaður
Ég spila á bassa í hljómsveitum eins og
Ylju, Boogie Trouble, Babies og bandi Teits
Magnússonar en svo er ég líka í FÍH og að
kenna. Ég er líka með BA-próf í fornfræði
og kenni forngrísku í MR. Tónlistin tekur
mikið af tíma mínum, bæði vinnan sjálf og
að æfa sig, spá og spekúlera. Þegar ég á
lausan tíma finnst mér gaman að hanga með
vinum mínum og að lesa. Ég verð kannski
að fá mér fleiri áhugamál? Þegar ég fer út
að skemmta mér fer ég oftast á Húrra eða
Palóma. Það er líka mjög gaman að spila á
Húrra. Á barnum panta ég mér bjór eða eitt-
hvað beisik, kannski gin & tónik. Ég horfi
ekki á sjónvarp en ég horfi stundum á þætti.
Mér finnst líka gaman að horfa á allskyns
músík-heimildarmyndir. Ég var til dæmis að
horfa á Standing in the Shadows of Motown
um daginn sem er um Motown-hljóðfæra-
leikara.
Vélbúnaður
Ég myndi nú ekki segja að ég sé mjög
tæknivædd. Ég er með spjallsíma og svo
fékk ég mér iPad um daginn til að vera með
í framtíðinni. Ég er á Facebook en nota það
aðallega til að fylgjast með öðrum, auglýsa
tónleika og fyrir samskipti í grúppum. Ég
held að ég hafi tvisvar póstað lögum á Fa-
cebook. Í tónlistinni spila ég oftast á Fender
Precision bassa.
Aukabúnaður
Ég hef gaman af því að elda og er alveg góð
í því. Ég er góð í taka það sem til er og gera
eitthvað gott úr því. Ég geri til dæmis ágætis
pasta. Svo finnst mér mjög gott að koma við
á Stofunni og fá mér súpu. Það er mjög næs
kaffihús. Ég borða líka stundum á Noodle
Station. Ég er ekki með bílpróf og fer því um
allt gangandi eða sníki mér far. Í sumar er ég
að fara að spila dálítið mikið, til dæmis úti í
Drangey og svo verður nóg að gera á Stelpur
rokka! námskeiðinu.
Lj
ós
m
yn
d/
H
ar
i
KEA skyr - próteinríkt og fitusnautt
ÍS
LE
N
SK
A
SI
A.
IS
M
SA
7
17
42
0
3/
15
68 dægurmál Helgin 19.-21. júní 2015