Fréttatíminn - 19.06.2015, Qupperneq 77
19. júní Helgin 19.-21. júní 20154
www.steypustodin.is
Hafðu samband og láttu sérfræðinga okkar
aðstoða þig við að finna réttu lausnina.
Hringhellu 2
221 Hafnarfjörður
Hrísmýri 8
800 Selfoss
Smiðjuvegi
870 Vík
Malarhöfða 10
110 Reykjavík
Berghólabraut 9
230 Reykjanesbær
20
YFIR
TEGUND
IR
AF HELLU
M
Graníthellur og
mynstursteypa
Graníthellur hafa mun lengri endingartíma en venju legar hellur.
Þær henta vel fyrir bílaplön, torg, stíga, þrep, litlar hleðslur og
garða. Mynstursteypa er sniðug lausn í plön, stíga og verandir.
Gæði, fegurð og góð þjónusta
4 400 400
Fjárfesting sem steinliggur
vv
1982 Samtök um kvenna-
framboð stofnuð 31. janúar
1982 Samtök um kvenna-
athvarf stofnuð; kvennaathvarf
opnaði í Reykjavík.
1994 Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir var fyrsta konan til
að verða borgarstjóri Reykja-
víkur, ein síns liðs.
1996 Nám í kvennafræðum
(kynjafræði frá 1998) hófst við
Háskóla Íslands.
Grýlurnar
Grýlurnar eru
almennt taldar
vera fyrsta íslenska
kvennahljómsveitin.
Ragnhildir Gísla-
dóttir hætti í hljóm-
sveitinni Brimkló
snemma árs 1981 og
gaf út að hún ætlaði
að stofna sína eigin
hljómsveit. Þann 1.
apríl voru Grýlurnar
formlega stofnaðar.
Ragnhildur söng
og lék á hljómborð,
ásamt Herdísi Hall-
varðsdóttir, Ingu
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
1994 varð Ingibjörg Sólrún fyrsta
konan til að verða borgarstjóri
Reykjavíkur ein síns liðs. Hún var þá
oddviti R-listans en hafði áður setið á
þingi fyrir Kvennalistann. Árið 2005 var
hún kjörin formaður Samfylkingarinnar
og tveimur árum síðar varð hún fyrsta
konan til að gegna embætti utanríkis-
ráðherra.
Ingibjörg Sólrún hefur verið yfirmaður
UN Women, stofnunar á vegum Sam-
einuðu þjóðanna, frá haustinu 2011.
Hún gegnir nú stöðu umdæmisstjóra
UN Women í Evrópu og Mið-Asíu með
aðsetur í Istanbúl í Tyrklandi, en hún
starfaði áður í Afganistan. Átján ríki
heyra undir skrifstofuna í Istanbúl, þar
á meðal nokkur ríki fyrrum Sovétríkj-
anna.
1983 Kvennalistinn stofn-
aður 13. mars upp úr Kvenna-
framboðinu.
1985 Verkfall flugfreyja.
1988 Guðrún Helgadóttir
varð forseti sameinaðs þings,
fyrst kvenna.
1991 Sigríður Snævarr tók
við embætti sendiherra Íslands,
fyrst kvenna, í Stokkhólmi.
1992 Fríða Á Sigurðar-
dóttir hlaut bókmenntaverð-
laun Norðurlandaráðs, fyrst
íslenskra kvenna, fyrir skáld-
söguna „Á meðan nóttin líður“.
1993 Björk Guðmunds-
dóttir hóf sólóferil sinn með
plötunni Debut.
1993 Kvennakirkjan
stofnuð.
Verkfall flugfreyja
Þann 24. október 1985, nánar tiltekið
á sjálfan kvennafrídaginn, setti Alþingi
lög á verkfall flugfreyja sem þá hafði
staðið yfir á annan sólarhring. Kröfur
Flugfreyjufélagsins, áður en til verkfalls
kom, var að þær fengju 33% vaktaálag
fyrir vinnu sína en þær voru á föstum
mánaðarlaunum. Gilti þá engu hversu
mikið þær unnu, og ekki var greitt sér-
staklega fyrir vinnu á helgidögum eða á
nóttunni. Vinna yfir jól var lögð að jöfnu
við vinnu á hefðbundum mánudegi.
Mikil reiði ríkti meðal flugfreyja þegar
ljóst varð með hvaða hætti leysa ætti
kjaradeilu þeirra við Flugleiðir. Forseti
Íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, áskildi
sér ótiltekinn frest til að undirrita lögin
og harmaði hún að íslensk stjórnvöld
skyldu hafa verið svo óheppin að þurfa
að setja slík lög varðandi konur þennan
tiltekna dag, en skrifaði undir að lokin.
Free the nipple
Upphaf Free the nipple hreyfingarinnar
má rekja til Bandaríkjanna en hún náði til
Íslands í mars á þessu ári þegar Femín-
istafélag Verzlunarskóla Íslands auglýsti
Free the Nipple-daginn og fleiri skólar
fylgdi í kjölfarið. Dagurinn varð mjög
sýnilegur á samfélagsmiðlum en á
Twitter, Facebook og Instagram
eru geirvörtur ekki leyfðar. Með
því að frelsa geirvörtuna vilja
konur taka til sín völdin og
fá eignarhaldið yfir sínum
eigin líkama aftur til baka,
því á sama tíma og henni er
bannað að sýna geirvörtuna,
vegna laga eða siðferðis-
vitundar, er líkami hennar misnotaður á
marga vegu, til að mynda sem söluvara
og með hrelliklámi.
Björk Guðmundsdóttir
1993 hóf Björk sólóferil sinn með
plötunni Debut en síðan hefur Björk gefið
úr ellefu plötur. Björk hefur hlotið fjölda
verðlauna, meðal annars tónlistarverð-
laun Norðurlandaráðs árið 1997.
Björk fæddist í Reykjavík 21. nóvember
1965. Hún er einn þekktasti Íslendingur-
inn fyrr og síðar og farsælasta tónlistar-
kona landsins. Hún hóf tónlistarferilinn
11 ára gömul þegar hún byrjaði að læra
á píanó og ári síðar kom út platan Björk
þar sem hún söng þekkt íslensk barnalög.
Hún heillaðist síðar af pönktónlist og árið
1983 stofnaði hún ásamt félögum sínum
hljómsveitina Kukl sem þróaðist yfir í
hljómsveitina Sykurmolana. Sykurmol-
arnir náðu nokkrum frama á erlendum
vettvangi og þegar þeir lögðu upp laup-
ana árið 1992 hóf hún sólóferil. Platan
Debut sló í gegn og hefur Björk síðan
verið alþjóðleg stjarna. Hún vakti mikla
athygli á Óskarsverðlaunahátíðinni árið
2000 þegar hún mætti í svanakjólnum
fræga en þá var hún tilnefnd til Óskars-
verðlauna fyrir lagið „Í ve seen it all“
úr mynd Lars Von Trier, Myrkradansar-
anum. Nýjasta platan hennar Vulnicura,
kom út í mars síðastliðnum.
19. júní hefur sérstakan sess í mínum huga sem dagur mik-
illar undrunar. Hverjum datt eigin-
lega í hug að missa af vitsmunum
helmings mannkyns? Og undrunin
er ekki minni í dag þegar við höfum
séð að baráttunni er hvergi lokið.
Það þarf sífellt að sporna við öflum
sem vilja minnka áhrif kvenna og
draga í efa skoðanir þeirra og sýn á
tilveruna. Það er því jafn mikilvægt
og áður að halda deginum á lofti og
undrast að einungis séu hundrað
ár liðin frá kosningarétti kvenna.
Jafnframt fögnum við öllum sigrum
og framfararsporum, stórum
sem smáum, til jafnréttis í dag og
gleðjumst saman með því að njóta
hugverka kvenna um alla borg. Til
hamingju með daginn, við öll!
Hvaða þýðingu Hefur
19. júní
í þínum augum?
Hallfríður Ólafsdóttir,
1. flautuleikari
Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
1997 Helga Kress skipuð
forseti heimspekideildar við Há-
skóla Íslands, fyrst kvenna til að
gegna embætti deildarforseta
við háskólann.
1998 Guðfinna Bjarna-
dóttir ráðin rektor Háskólans
í Reykjavík, fyrst kvenna til að
bera titil rektors.
2000 Vala Flosadóttir
fyrsta íslenska konan til að
hljóta brons á ólympíuleikum.
2000 Feður fá sjálf-
stæðan rétt á fæðingarorlofi.
2003 Femínistafélag Ís-
lands stofnað.
2005 Kristín Ingólfsdóttir
skipuð rektor Háskóla Íslands,
fyrst kvenna við HÍ.
2009 Jóhanna Sigurðar-
dóttir varð forsætisráðherra,
fyrst íslenskra kvenna.
2012 Agnes M. Sigurðar-
dóttir var kjörin biskup Íslands,
fyrst íslenskra kvenna.
2013 Vilborg Arna Giss-
urardóttir lauk eins síns liðs 60
daga göngu yfir suðurpólinn,
fyrst íslenskra kvenna.
2015 „Free the nipple“ og
„Bjútítipsbyltingin“.
Rún Pálmarsdóttur sem
spilaði á gítar og Lindu Björk
Hreiðarsdóttur sem spilaði á
trommur.
Tónlist Grýlanna einkenndist
af pönki og framsæknu rokki.
Árið 1982 voru þær fengnar
til að leika í kvikmynd Stuð-
manna, Með allt á hreinu,
undir nafninu Gærurnar. Í
kjölfar myndarinnar öðluðust
þær þónokkrar vinsældir,
þær komu fram á plötu úr
myndinni og gáfu jafnframt
út sína fyrstu og einu breið-
skífu, Mávastellið árið 1983.
Grýlurnar fóru í tónleika-
ferðir bæði til Skandinavíu og
Bandaríkjanna.