Fréttatíminn


Fréttatíminn - 19.06.2015, Qupperneq 84

Fréttatíminn - 19.06.2015, Qupperneq 84
Kísilsteinefni unnið úr 100% náttúrulegum jarðhitakísil K ísill er lífsnauðsynlegt stein­efni og hefur oft verið kall­að gleymda næringarefnið. Kísill er eitt algengasta steinefni jarðar og gegnir lykilhlutverki í myndun og styrkingu bandvefs í lík­ amanum. Beinvefur, sinar, liðbönd og húð eru allt dæmi um bandvef. Af hverju ættir þú að taka inn kísilsteinefni? Því við fáum ekki nægan kísil úr fæðu: Rannsóknir hafa sýnt að auk­ in dagleg inntaka á kísil er sterk­ lega tengd auknum beinþéttleika. Meðal kísilinntaka úr fæðu er al­ mennt ekki talin nægileg, og því er mælt með aukinni inntöku af kísil með fæðu. Rannsóknir hafa einnig sýnt að hæfni líkamans, til að taka upp kísil, minnkar með aldrinum. Losar þungmálma úr líkam- anum: Sýnt hefur verið fram á að kísill hjálpar líkamanum að losa sig við ál og aðra þungmálma úr líkamanum. Álsöfnun í líkamanum veldur einkennum sem svipa til ein­ kenna Alzheimer sjúkdóms og var lengi talið að uppsöfnun áls væri orsök sjúkdómsins. Það hefur verið að mestu leyti hrakið en engu að síður er uppsöfnun áls í líkamanum alvarleg. Fyrir meltingarveginn: K ís ­ ill vinn ur gegn því að sníkju dýr, myglu­ og kandí da svepp ir geti þrif st í líkaman um. Kís ill hjálp ar til við að afeitra líkamann og los ar hann við eit ur efni sem safn ast hafa fyr ir í melting ar fær um. Engin eitrunaráhrif: Neysla kís­ ils hefur engin þekkt eitrunaráhrif. Kísill safnast ekki upp í líkaman­ um heldur tekur líkaminn upp það magn sem hann þarf úr fæðunni og skilar umfram magni, ef eitthvað er, út með þvagi. Fólk með eðlilega nýrnavirkni ætti því ekki að geta orðið meint af hóflegri kísilsneyslu. Vegna þessa hefur Matvælaörygg­ isstofnun Evrópu (EFSA) enn ekki gefð út nein efri þolmörk fyrir kís­ ilneyslu. Fyrir stinnari og sterkari húð: Kísilsteinefni styrkir húðina og gerir hana stinnari. Rannsóknir hafa sýnt að kísill örvar myndun kollagens í líkamanum og getur því grynnkað hrukkur og lagað skemmdir á húð vegna of mikils sólarljóss. Fyrir sterkara hár og neglur: Rannsóknir hafa sýnt að kísilstein­ efni styrkir hár og neglur. Einnig getur kísill komið í veg fyrir eða minnkað hárlos og klofna enda. Gjöf frá móður jörð GeoSilica Iceland ehf. framleiðir kísilinn beint úr iðrum jarðar og er því eins náttúrulegur og kostur er á. Fyrirtækið hefur þróað aðferð til að vinna kísilinn beint úr jarð­ hitavatni Hellisheiðarvirkjunar. Kísillinn er styrktur og hreinsaður svo að eftir stendur náttúrulegur og hreinn kísill í vatnslausn. Kísil­ steinefnið inniheldur agnarsmá kísilkorn sem líkaminn á auðvelt með að vinna úr og nýta til styrk­ ingar líkamans. Ráðlagður dag­ skammtur er ein matskeið (10­15 ml). Kísilsteinefni Geosilica fæst í öllum helstu apótekum og heilsu­ húsum um land allt. Unnið í samstarfi við GeoSilica Fida Abu Libdeh, fram- kvæmdarstýra GeoSilica Iceland ehf. Fyrirtækið spratt upp úr lokaverkefni hennar og Burkna Páls- sonar í orku- og umhverfis- tæknifræði við Háskóla Íslands. Verkir horfnir og lífið léttara "Ég hef aldrei verið neitt gefin fyrir vítamín eða fæðubótaefni er kannski af gamla skólanum.Hef alltaf talið að það besta fyrir líkaman væri að borða af öllum fæðuflokkum og það dygði. Leist samt vel á Kísilvökvann frá Geosilica og ákvað að prófa 1 flösku. Eftir 3 vikur tók ég eftir að margra ára verkur sem ég hef haft í mjöðm hafði hjaðnað all verulega, 3 vikum síðar var hann nánast horfinn. Á sama tíma tók ég eftir að ég var hætt öllu narti á kvöldin,sykurfíknin horfin og vigtin sagði 5 kg. voru farin. Þetta er ekki allt,ég sef betur og er léttari upp á morgnanna og allt þetta eftir aðeins 4 mánuði á kísilvökvanum frá Geosilica. Núna er verkurinn í mjöðminni með öllu horfinn ég get ekki annað en verið ánægð með þennan frábæra árangur.” - Birna Sigurbjörnsdóttir Innilega til hamingju með daginn - án kraftmikillar baráttu kvenna hefði GeoSilica ekki orðið til 19. júníHelgin 19.-21. júní 2015 11
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.