Fréttatíminn - 19.06.2015, Síða 87
19. júní Helgin 19.-21. júní 201514
M eð jafnlaunavottuninni hefur bankinn fengið staðfestingu á því að búið
sé að kerfisbinda launaákvarðanir
og að hann sé með jafnlaunakerfi
samkvæmt kröfum ÍST 85:2012. Í
tilkynningu frá VR og Arion banka
var haft eftir Ólafíu B. Rafnsdóttur,
formanni VR, að það væri ánægju-
legt og ekki síður mikilvægt þegar
stór banki á við Arion banka bætist
í hóp jafnlaunavottaðra fyrirtækja.
Jafnlaunavottun VR tekur nú til 24
fyrirtækja og stofnana á íslenskum
vinnumarkaði.
Ábyrg vinnubrögð
Jónas Hvannberg, starfsmannastjóri
hjá Arion banka, segir jafnlauna-
vottunina hafa mikla þýðingu fyrir
bankann, jafnt inn á við sem út á við.
„Starfsfólk getur verið öruggt um að
við séum að vinna eftir ákveðnum
vinnureglum og ferlum. Það skiptir
einnig máli að almenningur viti að
við erum að vinna á ábyrgan hátt
hvað varðar jafnrétti. Fólk sem sækir
um vinnu hjá okkur getur verið visst
um að karlar og konur njóti sömu
launaréttinda.“ Vottunarferlið hófst
síðastliðið haust og frá áramótum
hefur sérstakur verkefnastjóri starf-
að innan bankans að því að undir-
búa vottunina. Mikill vilji var meðal
starfsfólks að innleiða jafnlaunakerfi
og margir lögðu verkefninu lið. „Það
er mikil ánægja með niðurstöðuna,“
segir Jónas.
Jafnlaunakerfið nær til fleiri
þátta en jafnréttis kynjanna
„Markmiðið með Jafnlaunavottun
VR er að sjálfsögðu að jafna hlut
kynjanna þegar kemur að launamál-
Arion banki
fyrsti bankinn
til að hljóta jafn-
launavottun VR
Jafnlaunavottun VR var fyrst kynnt í febrúar 2013 og er markviss
leið fyrir atvinnurekendur til að uppfylla kröfur nýs jafnlauna-
staðals Staðlaráðs Íslands. Arion banki er stærsta fyrirtækið sem
hefur hlotið þessa vottun og fyrsti bankinn. Kerfið mun tryggja að
starfsfólki Arion banka sem vinnur sambærileg störf sé ekki mis-
munað í launum.
um. Það kom okkur þó skemmtilega
á óvart að þegar líða tók á ferlið átt-
uðum við okkur á því að jafnlauna-
kerfið nær til fleiri þátta. Þannig
tryggir kerfið að jafn verðmæt störf
eru borin saman þvert yfir bank-
ann, ekki eingöngu á milli kynja.
Sem dæmi má nefna að sambærileg
störf eru borin saman á milli höfuð-
borgarsvæðisins og landsbyggðar,
milli deilda og sviða og á kerfið að
tryggja að sambærileg laun séu
greidd fyrir jafn verðmæt störf óháð
búsetu eða öðrum þáttum. Jafn-
launavottunin tryggir því jafnrétti
starfsmanna almennt, þvert yfir ein-
ingar, en ekki aðeins á milli kynja.
Ég get ekki annað en mælt með því
að sem flest fyrirtæki fari í gegnum
þetta ferli sem er virkilega hollt og
lærdómsríkt,“ segir Jónas.
Hluti af stærri jafnréttisstefnu
Ísland telst vera fremst í flokki í
jafnréttismálum á heimsvísu, sam-
kvæmt Global Gender Gap Report.
„Það er skýr krafa starfsmanna
Arion banka að þeir geti treyst því
að konur og karlar sitji við saman
borð þegar kemur að launaákvörð-
unum og er jafnlaunavottunin liður
í því að tryggja að svo sé. Við erum
með skýra jafnréttisstefnu og sér-
staka jafnréttisnefnd starfandi inn-
an bankans. Þar er verið að huga
að ýmsum öðrum þáttum eins og
til dæmis ráðningum og kynjaskipt-
ingu í deildum,“ segir Jónas. „Að
lokum vil ég fyrir hönd starfsfólks
Arion banka óska landsmönnum öll-
um til hamingju með 100 ára afmæli
kosningaréttar kvenna.“
Unnið í samstarfi við
Arion banka
Jónas Hvannberg, starfsmannastjóri hjá Arion banka. Arion banki er stærsta fyrirtækið sem hlotið hefur jafnlaunavottun VR.
Þess má geta að listaverkið sem er í bakgrunni er eftir listakonuna Ingunni Fjólu Ingþórsdóttur en verkið er hluti af sýningunni Fletir sem
nú stendur yfir í Arion banka. Mynd/Hari.
B orgarsögusafn Reykjavíkur stendur fyrir tveimur merki-legum sýningum í tilefni
þess að 100 ár eru liðin frá því að
konur fengu kosningarétt. Um er
að ræða sýningarnar Sjókonur sem
búið er að koma fyrir í Sjóminjasafn-
inu í Reykjavík og sýninguna Hjá-
verkin sem sýnd er í Árbæjarsafni
en bæði söfnin heyra undir Borgar-
sögusafn.
Sjósókn íslenskra kvenna í
fortíð og nútíð
Sjókonur er ný sýning í Sjóminja-
safninu í Reykjavík sem rekur sögu
íslenskra kvenna sem sóttu sjóinn,
í fortíð og nútíð. Sýningin er sam-
starfsverkefni Borgarsögusafns
og dr. Margaret E. Willson, mann-
fræðings við háskólann í Washing-
ton í Bandaríkjunum. „Undanfarin
ár hefur hún safnað heimildum um
sjósókn íslenskra kvenna, frá upp-
hafi byggðar til vorra daga. Sýning-
in byggir á áður óbirtum rannsókn-
um dr. Willson en þær kollvarpa
þeim hugmyndum sem uppi eru
um sjósókn kvenna sem var og er
mun almennari en áður var talið,“
segir Íris Gyða Guðbjargardóttir
sýningarstjóri. Frásagnir af konum
sem sóttu sjó markast ekki síst af
hugdirfsku þeirra á sjó, útsjónar-
semi og styrk. Heimildir greina frá
aflsæknum konum og kvenkyns
formönnum. Finna má frásagnir
af konum sem fæddu börn úti á
opnu hafi eða í flæðarmáli rétt eftir
lendingu. Þessi dæmi og fjölmörg
fleiri benda til þess að sjósókn hafi
verið eðlilegur hluti af lífi margra
kvenna.
Hjáverkin
Á Árbæjarsafni opnaði nýverið sýn-
ingin Hjáverkin – atvinnusköpun
kvenna í heimahúsum 1900-1970
sem byggir á safnkosti Borgarsögu-
safns Reykjavíkur og rannsóknum
safnsins á vinnu kvenna. Ábyrgð
kvenna á eigin afkomu og afkomu
fjölskyldunnar hefur almennt ekki
verið mikils metin í samfélagslegri
umræðu, bókmenntum og sögu-
bókum. Langt fram eftir 20. öld
voru karlar fyrirvinnur en konur
voru heima. Framleiðsla kvenna
hefur í gegnum tíðina verið vand-
lega falin og vantalin í hagrænum
skilningi. „Sýningin er því óður
til kvenna. Óður til framtaksemi
þeirra, hugmyndaauðgi og sjálfs-
bjargarviðleitni. Konur hafa ætíð
axlað ábyrgð en möguleikar þeirra
hafa oft á tíðum verið afar takmark-
aðir,“ segir Gerður Róbertsdóttir
sýningarhöfundur. Á sýningunni
er ljósi varpað á þessa földu veröld
kvenna, hvernig konum tókst að afla
tekna í hjáverkum samhliða skyldu-
störfum til að sjá sér og sínum far-
Sýningar um
sjómennsku og
atvinnusköpun
kvenna
borða. Frítt verður inn á Árbæjar-
safn í dag, 19. júní, og boðið verður
upp á leiðsögn um öll hús safnsins
klukkan 11 og 14.
100 viðburðir í tilefni 100 ára
Sýningarnar eru hluti af 100 við-
burðum sem borgin stendur fyrir
í tilefni af því að 100 ár eru liðin
frá því að íslenskar konur fengu
kosningarétt og kjörgengi. Ár-
bæjarsafn og Sjóminjasafnið eru
opin daglega frá kl. 10-17. Árbæjar-
safn er í Kistuhyl, 110 Reykjavík
og Sjóminjasafnið í Reykjavík er
á Grandagarði 8, 101 Reykjavík. Á
vefsíðunni www.borgarsogusafn.
is má nálgast nánari upplýsingar
og þar er einnig að finna viðburða-
dagatal sem sýnir alla viðburði
safnsins.
Unnið í samstarfi við
Borgarsögusafn Reykjavíkur
Sýningin Sjókonur fer
fram í Sjóminjasafn-
inu í Reykjavík í tilefni
100 ára afmælis kosn-
ingaréttar kvenna.
Mynd/Borgarsögusafn
Sýningin Hjáverkin í Árbæjarsafni fjallar um atvinnu-
sköpun kvenna í heimahúsum á tímabilinu 1900-1970.
Frítt er inn á safnið í dag, 19. júní. Mynd/Borgarsögusafn